Tölvumál - 01.11.2009, Síða 30
Notkun sýndarveruleika í kennslu
Hér verður fjallað um MUVE - Multi-User Virtual Environment[1]. eða
fjölspilunar sýndarveruleika í kennslu og sjónum beint að kennsluefninu
River City Project. Staðan á notkun MUVE á Íslandi er skoðuð og horft til
framtíðarmöguleika.
MUVE er sýndarveruleiki þar sem margir nemendur geta tekið þátt í
gagnvirkum samskiptum í gegnum myndræna persónu sína eða AVATAR.
Hægt er að skapa AVATAR í eigin mynd eða sem ímyndaða persónu.
Sýndarveruleiki bíður upp á marga möguleika varðandi gagnvirk samskipti í
rauntíma enda eru leikir vel til þess fallnir að kenna sambandið milli orsakar
og afleiðingar og frá kennslufræðilegu sjónarmiði henta þeir til þess að
kenna nánast hvaða fag sem er. Það sem nemendur læra í gegnum leik er
líklegt til þess að varðveitast í minni þeirra vegna gagnvirkninnar sem leikir
bjóða upp á í náminu. MUVE leikir krefjast færni í rökhugsun og lausnaleit
ásamt því að bjóða upp á æfingu í ákveðinni færni og skilningi á námsefninu.
Rannsóknir á gildi MUVE í námi hafa sýnt að kennsla í sýndarveruleika er
áhugahvetjandi og árangursrík. Það að geta blandað saman leik og námi
og tengt nám í skóla og heimavinnu í gegnum MUVE er spennandi kostur.
Það má búast við því að MUVE eflist sem kennslutæki og taki meira pláss í
lífi nemenda í framtíðinni en það er mikilvægt að rannsaka áhrif leikjanna í
breiðara samhengi en nú er gert s.s. hvaða áhrif leikirnir hafa á sjálfsmynd
nemenda og þroska (Tüzün o.fl., 2009).
Það er ekki einfalt mál að hanna, þróa og innleiða notkun flókinna leikja
í kennslustofum. Kostnaður er einn þáttur, það er tímafrekt að hanna og
prófa nýjan leik og ef það er gert þá þarf að fá kennara til að nota leikinn
og þar geta hindranir eins og lengd kennslustunda (Prensky, 2008) og
tæknihræðsla kennara haft áhrif. Einnig má nefna skort á tækjakosti og
háhraða tenginum við Netið sem hugsanlegar hindranir ásamt slæmu
aðgengi að tölvum á skólatíma. Allir þessir þættir og góður faglegur og
tæknilegur stuðningur við kennara verður að vera í góðu lagi ef vel á að
takast við að innleiða og nota nýja möguleika í gagnvirkri kennslu (Wheeler
og John, 2008).
Notkun nýrrar tækni í kennslu kallar á nýjar áskoranir og hafa ungir kennarar
í ríkara mæli reynt að nota MUVE leiki sem stuðningsefni í kennslu sinni.
Hér verður að skoða hlutverk nemenda, kennara og upplýsingatækninnar
frá nýju sjónarhorni með það í huga að samhæfa hlutverk þeirra í
kennslumhverfinu (Rappa, Yip og Baey, 2009). Þetta reyndu hönnuðir River
City Project að gera með því að setja námsefni í MUVE.
River City verkefnið
River City er gagnvirkt námsefni í sýndarveruleika sem lítur út eins og
tölvuleikur og er leikurinn afhentur skólum í Bandaríkjunum án endurgjalds
þar sem verkefnið er styrkt af The National Science Foundation.[2] Leikurinn
er hannaður fyrir 12 til 14 ára nemendur og ætlaður til að kenna þeim að
gera vísindalegar rannsóknir.
Fjölspilun
í kennslu
sýndarveruleika
Signý Óskarsdóttir, verkefnastjóri kennslu í
sýndarveruleika á Bifröst og Sóley Birgisdóttir,
lýðheilsufræðingur MPH
Rannsóknir á gildi MUVE í námi hafa
sýnt að kennsla í sýndarveruleika er
áhugahvetjandi og árangursrík
Það er mikilvægt að rannsaka áhrif
leikjanna í breiðara samhengi en nú
er gert s.s.hvaða áhrif leikirnir hafa
á sjálfsmynd nemenda og þroska.
Rannsóknir á gildi sýndarveruleika, (MUVE, Multi-User Virtual Environment) í námi hafa sýnt að kennsla
í sýndarveruleika er áhugahvetjandi og árangursrík. Það má búast við því að sýndarveruleiki eflist sem
kennslutæki og taki meira pláss í lífi nemenda í framtíðinni en mikilvægt er að rannsaka áhrif leikjanna í
breiðara samhengi en nú er gert, s.s. hvaða áhrif leikirnir hafa á sjálfsmynd nemenda og þroska þeirra.
3 0 | T Ö L V U M Á L