Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Blaðsíða 7

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Blaðsíða 7
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 2012 3 Síðustu mánuði hefur hjúkrunarfræðinám verið til umfjöllunar innan Evrópu­ sambandsins. Verið er að endurskoða viðauka við þá tilskipun sambandsins sem fjallar um gagnkvæma viður kenningu á námi milli landa. Í þessum viðauka er kveðið á um þá færni sem hjúkrunarfræðinemar eiga að búa yfir við brautskráningu úr námi og hvaða námsáfanga ber að kenna til að tryggja þá færni. Markmiðið með slíkri tilskipan og viðauka er að sjálfsögðu að tryggja rétt bæði hjúkrunarfræðinga og skjólstæðinga. Þegar hjúkrunarfræðingur ræður sig til starfa utan heimalands á, með slíkri samræmingu náms og krafna um færni, að vera tryggt að viðkomandi uppfylli lágmarkskröfur viðtökulandsins til hjúkrunarfræðinga. Nám í hjúkrunarfræði er afar ólíkt milli Evrópulandanna. Lengd náms, áður en hjúkrunarfræðinám er hafið, er einnig mismunandi og nú berjast Evrópusamtök hjúkrunarfélaga (EFN) fyrir því að gerð verði krafa um 12 ára nám áður en hjúkrunarfræðinám er hafið, en krafan nú er 10 ár. Hjúkrunarfræðinámið sjálft hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum, sérstaklega í löndum Austur­Evrópu. Áhersla hefur verið lögð á að hjúkrunarfræði sé að minnsta kosti kennd á háskólastigi ef ekki í háskóla. Lengd námsins er víðast þrjú heil ár eða 30­33 mánuðir. Við breytingar á hjúkrunarfræðinámi er gjarnan horft til Bologna­yfirlýsingarinnar en þar er gerð krafa um að grunnnám í hjúkrunarfræði sé að lágmarki þrjú ár, meistaranám tvö ár og síðan doktorsnám. Í Háskóla Íslands hafa margar deildir lagað nám sitt að þessu tveggja þrepa námsfyrirkomulagi. Nám til BA­ eða BS­gráðu tekur þá þrjú ár og síðan tekur við tveggja ára meistaranám. Starfsréttindi fást þá fyrst eftir fimm ára nám og meistaragráðu. Slíkar breytingar voru síðast gerðar á námi grunnskólakennara og leikskólakennara. En hvað með hjúkrunarfræðina? Þar er námið 4+2 ár og starfsréttindi fást eftir fjögurra ára BS nám. Er ástæða til að skoða þetta fyrirkomulag með það fyrir augum að fimm ára nám til meistaragráðu verði grundvöllur starfsréttinda hjúkrunarfræðinga? Ljóst má vera að slíkar breytingar hafa bæði kosti og galla. Fjöldi spurninga vaknar, meðal annars: • Hvaða áhrif (ef einhver) mun það hafa á ímynd hjúkrunarfræðinga og starfskjör á næstu árum að hjúkrunarfræðingar fá starfsréttindi eftir fjögurra ára grunnnám en til dæmis leikskólakennarar eftir fimm ára meistaranám? • Mun ólík lengd náms til starfs­ réttinda og ólíkar námsgráður hafa áhrif á samkeppnishæfni hjúkrunar­ fræðideildanna um nemendur? • Myndu fleiri hjúkrunarfræðingar fara í doktorsnám ef náminu yrði breytt? • Hvaða áhrif hefði lengra nám til starfsréttinda á gæði þjónustunnar? • Hvaða áhrif hefði krafan um meistara­ gráðu á möguleika hjúkrunarfræðinga til sérhæfingar? • Er mögulegt að, þegar fram líða stundir, yrði gerð krafa um að fyrsta þrepið, þriggja ára BS­nám, nægði til starfsréttinda (á tímum manneklu og niðurskurðar)? • Er hugsanlegt að þeir nemendur, sem kynnu að hætta námi eftir fyrsta stig, yrðu gerðir að einhvers konar aðstoðarhjúkrunarfræðingum? Þessar spurningar og margar fleiri þarf að ræða og leita svara við á næstu mánuðum og misserum. Hjúkrunarfræðinámið hér á landi hefur verið metið mjög gott hjá þeim aðilum sem fengnir hafa verið til slíks námsmats á undanförnum árum. Það er vissulega ánægjulegt og hjúkrunarfræðideildunum til sóma en þýðir þó ekki að sífelldrar endurskoðunar á náminu sé ekki þörf. Lengd náms er eitt, innihald annað. Í umræðunni um hjúkrunarfræðinám þarf einnig að ræða til dæmis: • Hvað ræður áherslum og innihaldi námsins, það er þarfir samfélagsins fyrir hjúkrun á hverjum tíma, þarfir stofnana fyrir vinnuafl eða fræðasvið kennara? • Hvaða áhrif á áhersla stjórnvalda á heilsugæslu og þjónustu við aldraða að hafa á skipulag hjúkrunarfræðináms? • Er rétt að hefja hér „nurse practitioner“ nám í ljósi áherslna á heilsugæsluna? • Hvaða áhrif á áhersla stjórnenda sjúkrahúsa á aukna þjónustu á dag­ og göngudeildum að hafa á skipulag hjúkrunarfræðináms? • Þarf að auka sveigjanleika og val í námi, til dæmis að nemendur geti tekið einhverja áfanga úr öðrum deildum háskólanna, eins og víða tíðkast? Miklar breytingar hafa orðið og munu verða á háskólanámi hér á landi. Hjúkrunarfræðingar þurfa að taka þátt í þeirri umræðu og vera tilbúnir að gera þær breytingar á námi sem taldar eru nauðsynlegar og til bóta til framtíðar litið. Breytingar á hjúkrunarfræðinámi í Evrópu hljóta líka að hvetja hjúkrunarfræðinga og stjórnendur hjúkrunarfræðideildanna til að horfa til framtíðar og ræða innihald, skipulag og lengd hjúkrunarfræðinámsins hér á landi. Orð eru til alls fyrst. Ég hvet hjúkrunar­ fræðinga til að láta sig menntunarmálin varða og velta fyrir sér þeim spurningum sem ég hef varpað hér fram. Það á að vera metnaðarmál okkar hjúkrunarfræðinga að á hverjum tíma sé nám okkar eins og best verður á kosið, að það skapi þá þekkingu og færni sem hjúkrunarfræðingum er nauðsynleg til að veita bestu mögulegu þjónustu, skjólstæðingum okkar og samfélaginu til heilla. ERU BREYTINGAR Á HJÚKRUNARFRÆÐINÁMI TÍMABÆRAR? Formannspistill Elsa B. Friðfinnsdóttir. Opið virka daga kl. 9 -18 og laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Skurðstofu- og skoðunarhanskar Steriking pökkunarvörur frá WIPAK Hágæða hanskar af öllum gerðum til notkunar á heilbrigðisstofnunum. Fyrir sjúkrahús, heilsugæslu, hjúkrunarheimili og læknastofur. Framúrskarandi framleiðslutækni tryggir áreiðanleika og öryggi. Mýkt og þægindi. Vörn gegn sýkingum. Sempermed byggir á yfir 90 ára reynslu í vöruþróun Allt sem til þarf fyrir dauðhreinsun í autoklava. Sótthreinsipokar og rúllur. Pappírsarkir til pökkunar. Gæða vara og rétt notkun tryggir áhrifaríka dauðhreinsun og örugga meðhöndlun áhalda. Örugg pökkun í þínum höndum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.