Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Page 14
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 201210
Gísli Jónsson
Gamlar perlur
BROT ÚR SÖGU STARFSHEITIS
Oft hefur verið á það minnst í þáttunum
hve ríka tilhneigingu yfirvöld hafa til þess
að gera ástkæra ylhýra málið að náttúru
lausum og ópersónulegum steingervingi.
Einn liður í þessari leiðu þróun, sem varnar
venjulegu fólki skilnings á áður tömum
hugtökum, er hin fádæma fáviskulega
atlaga jafnréttisstjóranna að málinu.
Það er ekki eingöngu að menn og fólk
hafi breyst í orku og heiti nú kraftar í
auglýsingum heldur þykjast menn vinna
jafn réttinu gagn með því að breyta öllum
stöðu heitum í karlkyn einvörðungu. Mætti
þó álíta það hámark misréttisins. Nú er
meðal annars búið að útrýma hjúkrunar
Stefna félagsins í hjúkrunar og
heilbrigðismálum var samþykkt
á aðalfundi félagsins 9. maí
á síðasta ári. Stefnuna er að
finna á vefsvæði félagsins undir
Fagsvið. Hún verður einnig gefin
út á prentuðu formi.
NÝ STEFNA FÉLAGSINS
Í HJÚKRUNAR OG
HEILBRIGÐISMÁLUM
konum, skrifstofustúlkum og leikkonum og
nefnast þau „öfl“ nú hjúkrunar fræðingar,
skrifstofumenn og leikarar.
Með sanni má segja að sumar þessar
breytingar fara ekki illa í málinu en aðrar
eru óhæfa ein. Hjúkrunarfræðingur er
stirt, langt og ljótt orð og gefur síður en
svo réttari mynd af þeim starfsmanni
sem svo er nefndur en gamla orðið.
Hvers vegna fræðingur? Er þetta ef
til vill tromp á hendur hjúkrunarmanna
og/eða kvenna í væntanlegu stríði
við háskólamenntað hjúkrunarfólk? Ef
breyting var nauðsynleg hefði þurft að
fara að venjubundnum nýyrðareglum og
finna nýtt og þjált, stutt orð.
Illa varð mér við er ég heyrði auglýsingu
í útvarpi frá sjúkrahúsi, að mig minnir frá
Ísafirði. Undir hana ritaði hvorki meira
né minna en hjúkrunarframkvæmdastjóri.
Þetta er eitt voðalegasta orð sem ég hef
heyrt á íslensku. Ef til vill er þetta sá eða
sú sem stjórnar því að framkvæmd sé
hjúkrun, sé notuð stofnanaíslenska um
það sem áður hét að hjúkra. Fróðir menn
segja mér að þetta 25 stafa orð þýði
yfirhjúkrunarkona á venjulegri íslensku.
Mér er og sagt að orð eins og hjúkri og
Ekki voru allir á eitt sáttir þegar starfheitið hjúkrunar fræðingur bar fyrst á góma.
Gísli Jónsson, íslenskufræðingur og kennari við Menntaskólann á Akureyri,
gagnrýndi það til að mynda í útvarpsþættinum „Daglegt mál“ 5. október 1977.
Lestextinn birtist í Tímariti hjúkrunarfélags Íslands, 1. tbl. 1978.