Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Qupperneq 22

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Qupperneq 22
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 201218 Elsa B. Friðfinnsdóttir, elsa@hjukrun.is Til umhugsunar AUKINN EINKAREKSTUR Í HEILBRIGÐISÞJÓNUSTUNNI Heilbrigðisþjónustan hér á landi hefur tekið umtalsverðum breytingum á undan­ förnum misserum. Þessar breytingar verða ekki einungis vegna áherslna stjórnvalda heldur er stundum eins og þær bara komi fram, án umræðu, án stýringar, bara einhvern veginn af sjálfu sér. Ein slík breyting er aukinn einkarekstur lækna. Hagstofa Íslands gefur reglulega út afar yfirgripsmikið rit sem kallast Hagtíðindi. Í þessu ágæta riti er meðal annars fjallað um fjöldamarga þætti er lúta að heilbrigðisþjónustu, fjárveitingum, einstökum rekstrarliðum, mannafla, launum, lyfjakostnaði og fleiru. Í sjötta tölublaði Hagtíðinda 2011 er fjallað um heilbrigðisútgjöld á Íslandi 1998­2010. Það er full ástæða til að vekja athygli hjúkrunarfræðinga og annarra á þeim breytingum á heilbrigðiskerfinu sem þessi greining Hagstofunnar sýnir. Heildarútgjöld til heilbrigðismála árið 2010 námu 143,5 milljörðum króna eða 9,3% af landsframleiðslu og hafa þau lækkað frá árinu 2003 þegar þau námu 10,4% af landsframleiðslu. Árið 2008 voru heildarútgjöld OECD­ríkjanna til heilbrigðismála að meðaltali 9% af landsframleiðslu. Hlutur sjúklinga í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu hér á landi hefur vaxið hægt og hægt á síðustu árum og er nú rétt tæp 20%. Á árinu 2009 greiddi hið opinbera 5,2 milljarða króna fyrir læknisverk sér­ fræðilækna. þessi þáttur heilbrigðis­ útgjalda jókst um 79,5% frá árinu 1998

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.