Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Side 29

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Side 29
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 2012 25 Nokkur ný ákvæði í kjarasamningum taka gildi 1. mars nk. Kjarasamningsbundin launa hækkun. 1. mars 2012 hækka laun sem nemur 3,5%. Félagsmenn eru beðnir um að fylgjast vel með breytingum á launaseðlinum og fullvissa sig um að launin hækka sem skyldi. Matar- og kaffitímar vaktavinnumanna. Frá 1. mars 2012 hækkar greiðsla vegna matar­ og kaffitíma vaktavinnumanna úr 15 mínútum fyrir hverja unna vakt í 25 mínútur fyrir hverja unna vakt. Greitt verður fyrir þennan tíma með yfirvinnukaupi en hlutavinnumenn fengu matar­ og kaffitíma til þess tíma greidda á dagvinnutaxta. Ákvæðið á ekki við um starfsmenn á kjarasamningi félagsins við sveitarfélögin þar sem þetta er greitt með þessum hætti nú þegar. Fæðisfé. Frá 1. mars 2012 skulu þeir starfsmenn, sem eru á vakt þegar matstofa vinnustaðar er ekki opin, fá það bætt með fæðispeningum sem nema 380 kr. fyrir þá vakt. Ef spurningar vakna vegna þessa eru félagsmenn hvattir til að hafa samband við trúnaðarmann eða skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. BREYTINGAR Á KJÖRUM FRÁ 1. MARS Kjörnefnd auglýsir eftir eftirfarandi framboðum: Þremur fulltrúum í ritnefnd. Sjö fulltrúum fagdeilda í stjórn. Þremur fulltrúum í stjórn (sem hvorki eru fulltrúar fagdeilda né svæðisdeilda). Framboð þurfa að berast kjörnefnd á skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunar fræðinga eða á netfangið hjukrun@hjukrun.is fyrir 31. mars nk. Framboð í stjórn og nefndir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Lög félagsins er að finna á vefsvæði félagsins, www.hjukrun.is. Aðalfundur Félags íslenskra hjúkunrar fræðinga verður haldinn 24. maí nk. Þar verður kosið í stjórn og nefndir samkvæmt lögum félagsins. Nánari upplýsingar veitir kjörnefnd: Sólveig J. Haraldsdóttir, solvhar@landspitali.is, s. 699-1106 Hildur Rakel Jóhannsdóttir, hildurjo@gmail.com, s. 699-7364 Ragna Dóra Rúnarsdóttir, ragnadr@landspitali.is, s. 866-6234 Sigríður Lóa Rúnarsdóttir, svalt@simnet.is, s. 861-2352

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.