Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Blaðsíða 30
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 201226
Anna Harðardóttir og Kristín Katla Swan, kristisw@landspitali.is
GJÖRGÆSLURÁÐSTEFNA Í KAUPMANNAHÖFN
Nokkrir ungir hjúkrunarfræðingar segja hér frá fyrstu kynnum sínum af erlendum
hjúkrunarráðstefnum. Mikilvægt er fyrir unga hjúkrunarfræðinga ekki síður en
reynda að fá faglegan innblástur á erlendum vettvangi.
Dagana 24.26. mars 2011 var haldin
gjörgæsluráðstefna á vegum European
federation of Critical Care Nursing
associations (EfCCNa) og Fagligt
Selskab for Anæstesi, Intensiv og
Opvågningssygeplejersker (FSAIO)
í Kaupmannahöfn. Ráðstefnan var
kynnt starfsfólki gjörgæsludeildarinnar í
Fossvogi á deildarfundi haustið 2010 og
hjúkrunarfræðingar hvattir til að sækja
um leyfi til þátttöku. Að fundi loknum
hófust á leið niður í lyftunni hressar
og skemmtilegar umræður milli fjögurra
ungra hjúkrunarfræðinga um áhuga sinn
á ráðstefnunni og á svipstundu var rokið
inn í lyftuna á ný, farið upp á sjöttu hæð
og umsókn lögð fyrir deildarstjóra. Við
tók þó nokkur undirbúningsvinna þar
sem sækja þurfti um styrki frá þremur
aðilum, fá leyfi frá deildarstjóra og fá
námsleyfi frá sjúkrahúsinu. Að lokum
gekk þó allt eftir og á svipstundu var
komið að ferðinni.
Eftir misheppnaða tilraun til að fljúga út
með Iceland Express pöntuðum við nýjan
flugmiða með Icelandair og héldum út
degi fyrr en áætlað var eða 22. mars. Við
komum til Kaupmannahafnar að kvöldi
til og þrömmuðum um götur borgarinnar
með töskurnar í eftirdragi í leit að íbúðinni
sem við gistum í. Daginn eftir var ákveðið
að þar sem við komum út degi fyrr en
áætlað var skyldi fyrsti dagurinn nýttur
í verslunarferð til Malmö. Eftir stutta og
góða lestarferð frá Hovedbanegården,
aðalbrautarstöðinni í Kaupmannahöfn, til
Malmö eltum við mannfjöldann í von
um að finna miðbæinn þar sem við
höfðum mælt okkur mót við afganginn
af Fossvogshópnum. Við tók langur og
afkastamikill verslunardagur sem lauk með
því að sjö ánægðir hjúkrunarfræðingar
klyfjaðir pokum héldu aftur í átt að
Kaupmannahöfn.
Ráðstefnan stóð í þrjá daga og var
haldin á Tivoli Hotel sem stendur við
Árna Magnússonargötu rétt utan við
miðbæ Kaupmannahafnar. Í upphafi
ráðstefnunnar voru gestir boðnir
velkomnir en þar sem dagskráin var
mjög þétt allan tímann byrjuðu sjálfir
fyrirlestrarnir mjög fljótt. Þeir voru í fjórum
misstórum sölum en hver dagur hófst
þó með ítarlegum fyrirlestri í stærsta
salnum þar sem tekin voru fyrir efni sem
talin voru eiga við alla ráðstefnugesti,
t.d. nýjustu rannsóknarniðurstöður og
leiðbeiningar í endurlífgun. Yfirþema
ráðstefnunnar var „Working together for
a better tomorrow“ eða „Að vinna saman
að betri framtíð“ og á hverjum degi voru
ný undirþemu í hverjum sal fyrir sig. Margt
var tekið fyrir á þessum þremur dögum,
til að mynda dagbókarskrif á gjörgæslu,
lífslokameðferð gjörgæslusjúklinga,
„delirium“ á gjörgæslu, streitustjórnun,
forvarnir gegn svefnvandamálum,
hjúkrun mismunandi menningarheima,
öryggi sjúklinga og upplifun sjúklinga og
aðstandenda á gjörgæsludvöl.
Fyrirlestrarnir um dagbókarskrif fyrir
gjörgæslusjúklinga vöktu áhuga okkar þar
sem þetta er fyrirkomulag sem við höfum
sjálfar ekki unnið eftir en mikið virðist vera
farið að nota í nágrannalöndum okkar, til
að mynda kom fram í einum fyrirlestrinum
að 76% gjörgæsludeilda í Svíþjóð og 40%
Á Ráðhústorginu.