Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Blaðsíða 41
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 2012 37
Fundur í Evrópuþinginu.
til að vernda heilbrigðisstarfsmenn gegn
skaða af völdum beittra og oddhvassra
áhalda. Einkum var horft til hættu á
alvarlegum blóðbornum sýkingum á borð
við B og Clifrarbólgu og HIV.
Ári síðar eða í júlí 2006 samþykkti
Evrópuþingið ályktun þar sem farið var
fram á að framkvæmdastjórn ESB legði
fram tillögu um hvernig verndun heilbrigðis
starfsmanna gegn slíkum sýkingum skyldi
háttað. Framkvæmda stjórnin leitaði til
Félags vinnuveitenda á sjúkrahúsum og í
heilbrigðisgeiranum í Evrópu (HOSPEEM)
og Evrópusambands starfsfólks í
almannaþjónustu (EPSU). Þessir tveir
aðilar voru árið 2006 skil greindir sem aðilar
vinnumarkaðarins eða „European Social
Partners“ af fram kvæmda stjórninni. Óskað
var eftir áliti þeirra á því hvort lagasetning
til verndar heilbrigðisstarfsmönnum gegn
blóð bornum sýkingum væri nauðsynleg
eða hvort sameiginlegar ráðstafanir aðila
vinnu markaðar væru réttara úrræði.
Í framhaldi af þessu var aðilum vinnu
markaðarins boðið að vinna að ramma
samkomulagi til að koma í veg fyrir stungu
óhöpp af völdum nála innan heilbrigðis
þjónustunnar. Eftir samráð og málþing um
tæknilega þætti málsins upplýstu aðilarnir
framkvæmdastjórnina um ætlan sína um
að semja ekki eingöngu um varnir gegn
stunguóhöppum af völdum nála heldur í
víðara samhengi um alla áverka af völdum
beittra áhalda.
Samningaviðræður hófust í janúar 2009
og í júlí sama ár var rammasamningurinn
undirritaður af aðilum vinnumarkaðarins.
Í október 2009 gaf framkvæmdastjórn
ESB út tillögu að tilskipun um að innleiða
ákvæði rammasamningsins og úrræðin
sem í honum felast. Tilskipun ESB
2010/32 tók gildi 10. maí 2010 en hún
færir þennan rammasamning í lagabúning.
Markmið tilskipunarinnar er að koma
í veg fyrir slys og blóðbornar sýkingar
af völdum beittra áhalda, eins og
nála, inni á sjúkrastofnunum og meðal
heilbrigðisstarfsmanna. Með innleiðingu
úrræða er ætlunin að ná fram eins öruggu
starfsumhverfi og kostur er, koma í veg
fyrir slys sem hljótast af völdum beittra
áhalda í heilbrigðisþjónustunni, þar með
talið nálum, og vernda starfsmenn sem
eru í áhættuhópi.
Hægt er að ná þessu fram með því
að innleiða eftirfarandi forvarnar og
verndunarúrræði:
• Eyða óþarfa notkun beittra áhalda
• Bjóða upp á bætt tæki og áhöld
• Innleiða sérhannaðan öryggisbúnað
• Innleiða örugga verkferla
• Innleiða örugga ferla fyrir notkun og
losun beittra áhalda
• Banna að setja lok aftur á nálar
• Nota hlífðarfatnað og búnað
• Bólusetja
• Veita upplýsingar og þjálfun.
Hjúkrunarfræðingar og aðrir starfsmenn
innan heilbrigðisþjónustunnar þurfa
að takast á við fjölmörg verkefni og
margs konar starfsumhverfi sem
er ógn við heilsu þeirra. Þeir eiga á
hættu að fá starfstengda sjúkdóma
og verða fyrir vinnutengdum slysum.
Innan heilbrigðisþjónustunnar starfa
um 10% allra opinberra starfsmanna
Evrópusambandsins og meira en 75%
þeirra eru konur. Eðli starfsins, hvort
sem um er að ræða hátækniþjónustu á
bráðadeildum, vinnu á skurðstofum og
gjörgæsludeildum, þjónustu við þá sem
eru líkamlega eða andlega skertir eða
almenna umgengni við sjúklinga, veldur
því að nauðsynlegt er að setja heilsu og
öryggi þeirra í forgang. Evrópsk gögn sýna
að hærra hlutfall heilbrigðisstarfsmanna
telur að heilbrigði þeirra og öryggi sé í
hættu vegna starfs þeirra en starfsmenn
annarra stétta innan ESB.
Tilskipunin var tekin inn í samninginn um
Evrópska efnahagssvæðið (EES) 1. apríl
2011. Stjórnvöld aðildarríkja EES og þar
með Ísland eiga að hafa innleitt ákvæði
tilskipunarinnar fyrir 11. maí 2013.
Ekki hafa fengist svör frá stjórnvöldum
um hvort unnið sé að innleiðingu
tilskipunarinnar hér á landi.
Sú ógn, sem heilbrigðisstarfsmönnum
stafar af óhöppum af völdum beittra
áhalda, ætti að vera íslenskum stjórn
völdum hvatning til að tryggja eins og
kostur er öryggi heilbrigðisstarfsmanna
á íslenskum vinnustöðum. Það verður
best gert með því að innleiða ákvæði
tilskipunar 2010/32 og tryggja að þau
úrræði, sem rammasamningur aðila
vinnumarkaðarins fjallar um, komi til
framkvæmda hér á landi.
Fari svo að íslensk stjórnvöld fullnægi
skyldu sinni um lagasetningu sem tryggir
ákvæði tilskipunarinnar er full ástæða
fyrir hjúkrunarfræðinga til að halda upp á
það á alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga 12.
maí 2013.
Jón Aðalbjörn Jónsson er alþjóðafulltrúi
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
http://www.efn.be/version1/EN/pos_stat_Devices.html http://osha.europa.eu/is/sector/healthcare/preventionsharpinjuriesworkplace
http://www.europeanbiosafetynetwork.eu/resources
http://www.saferneedles.org.uk/
http://www.europeanbiosafetynetwork.eu/EU%20Sharps%20Injuries%20Implementation%20Guidance.pdf
http://osha.europa.eu/data/casestudies/needlestick2014howtopreventneedlestickinjurieseffectively/needlestick.pdf
http://www.efta.int/~/media/Documents/legaltexts/eea/otherlegaldocuments/listofadoptedjointcommitteedecisionsjcds/2011
listadoptedjcd.pdf
Tenglar með frekari upplýsingum