Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Qupperneq 55

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2012, Qupperneq 55
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 88. árg. 2012 51 Ritrýnd fræðigrein SCIENTIFIC PAPER Meirihluti mældra vinnuathafna fór fram á morgunvöktum. Tíðni nokkurra athafna frá morgni til kvölds var nokkuð há bæði hjá hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum, svo sem að meta líðan sjúklings, að svara bjöllu sjúklings, þrífa og ganga frá á deild og undirbúa rúmstæði. Hins vegar var sú vinnuathöfn að færa sjúklingi vatn helst framkvæmd fyrir hádegi af hjúkrunarfræðingum en á kvöldin af sjúkraliðum. Nokkrar vinnuathafnir mældust sjaldnar en einu sinni á vakt að meðaltali en tóku nokkurn tíma. Leitar að eigum sjúklings mældist eingöngu einu sinni hjá sjúkraliða en tók nokkuð af tíma hans. Innskrift sjúklings mældist sjaldnar en einu sinni á vakt að meðaltali en tók að meðaltali a.m.k. 1% tíma hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á vakt. Áhrifaþættir vinnunnar Áhrifaþættir vinnunnar, sem mældust oftast hjá hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum, eru sýndir í töflu 3 og á mynd 2 má sjá áhrifaþætti sem mældust sjaldnar en einu sinni á vakt að meðaltali. Þeir þættir, sem mældust oftast hjá hjúkrunarfræðingum, voru: Óvænt samskipti annars starfsmanns við þátttakanda, að aðstoða annan starfsmann og óvænt samskipti aðstandenda við þátttakanda. Af einstökum mældum áhrifaþáttum fór mestur tími hjá hjúkrunarfræðingum í óvænt samskipti annars starfsmanns við þátttakanda og að aðstoða annan starfsmann. Áhrifaþátturinn, sem mældist oftast hjá sjúkraliðum, var óvænt samskipti annars starfsmanns við þátttakanda. Af einstökum mældum áhrifaþáttum fór mestur tími hjá sjúkraliðum á morgunvöktum í þrif eða frágang á skoli og á kvöldvöktum í að ganga frá líni og að leita að samstarfsmanni. Tíðni áhrifaþátta var í flestum tilvikum hærri á morgunvöktum og fram eftir degi en lægri á kvöldin bæði hjá hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum. Þó má greina þætti þar sem tíðnin er nokkuð jöfn frá morgni til kvölds, svo sem leit að samstarfsmanni, óvænt samskipti aðstandenda við þátttakendur og skort á lyfjum, líni og vörum. Ástand sjúklings breytt umtalsvert mældist sjaldan en tók nokkuð af tíma hjúkrunarfræðinga Atferli og athygli Í töflu 4 sést hversu oft hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar fóru á milli staða og hvert þeir fóru oftast. Að meðaltali fóru hjúkrunarfræðingar á milli staða 127 sinnum á vakt og sjúkraliðar 139 sinnum. Algengast var að hjúkrunarfræðingar færu á sjúkrastofur og setustofu sjúklinga, vaktherbergi og lyfjaherbergi. Sjúkraliðar fóru oftast á sjúkrastofur og setustofu sjúklinga, vaktherbergi, býtibúr og óhreint skol. Hreyfingar á milli staða voru nokkuð stöðugar alla vaktina og gengu þátttakendur að meðaltali um 4 km á vakt. Mynd 3 sýnir hreyfingar eins hjúkrunarfræðings á einni morgunvakt á milli staða á deild og mynd 4 sýnir hreyfingar eins sjúkraliða á annarri morgunvakt á milli staða á deild. Þykkari línur benda til tíðari ferða. Númerin á myndunum vísa til sjúkrastofa. Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar breyttu títt atferli sínu og beindu athyglinni iðulega að nýju viðfangsefni. Mælingar sýna tíð skipti milli vinnuflokka og vinnuathafna, tíð rof á vinnu og tíðar hreyfingar milli staða. Að meðaltali beindu hjúkrunarfræðingar athyglinni að nýju viðfangsefni 175 sinnum á vakt og sjúkraliðar 143 sinnum. Myndir 5 og 6 sýna mælingar á vinnuflokkum, áhrifaþáttum og staðsetningu í eina klukkustund annars vegar hjá hjúkrunarfræðingi og hins vegar eina klukkustund hjá sjúkraliða. Um er að ræða sýnishorn af mælingum á virkum degi í báðum tilvikum og á sama tíma dags í báðum tilvikum. Hins vegar er ekki um að ræða sömu deild né sama dag hjá hjúkrunarfræðingnum og sjúkraliðanum í þessum dæmum. Niðurstöðurnar lýsa flókinni vinnu hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða með fjölverkavinnslu þar sem vinna þeirra er títt rofin. Bein umönnun Súrefnisgjöf í nef/vit Vökvadæla stillt/fylgst með Húðhirða, athugun, krem, nudd Sjúklingur settur í hjartasírita Bláæðaleggur tekinn niður Þvagblöðruómun Andlegur stuðningur við sjúklingb Sýnataka þvags, hægða, hrákaa Sjúklingur vigtaður Blóðsykursmæling Sjúklingur fluttur út fyrir deildb Sjúklingur fluttur innan deildara Aðstoð við úthreinsunb Óbein umönnun Pappírar sjúklings – frágangur Rannsóknarbeiðni fyllt út Tæki fyrir sjúkling útvegað Aðstandendur aðstoðaðir Rannsóknarniðurstöður sjúklings prentaðar úta Leitað að eigum sjúklingsbd Deildarvinna Pappírsvinna – almenn fyrir deild Pantar vörurb Býtibúr – Þrif/frágangurb Bað – Þrif/frágangurb Gengur frá lyfjuma Gengur frá vörumb Sækir rúmb Leitar fyrir aðra deilda Þrífur tæki/áhöldb Pantar lyfb Mynd 1. Vinnuathafnir sem mældust sjaldnar en einu sinni á vakt að meðaltali hjá þátttakendum (n=8 hjúkrunarfræðingar, n=10 sjúkraliðar) aAthöfn sem mældist eingöngu hjá hjúkrunarfræðingum bAthöfn sem mældist eingöngu hjá sjúkraliðum dAthöfn sem a.m.k. 1% af tíma sjúkraliða fór í

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.