Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2011, Side 9

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2011, Side 9
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 87. árg. 2011 5 Tvær greinar í þessu tölublaði fjalla um næringu sjúklinga. Greinarnar fjalla að hluta til um sömu atriðin en frá ólíkum sjónarhornum. Góð saga er ekki of oft sögð, sérstaklega ekki þegar umfjöllunarefnið er jafnalvarlegt og hér. Til að ná bata þurfa menn að nærast vel og ekki má standa á hjúkrunarfræðingum að leggja sitt af mörkum til þess. Þeir sem veikir eru þurfa að borða meira, en hjúkrunarfræðingar þurfa yfirleitt að borða minna og hreyfa sig meira segja vísindamenn. Ein grein fjallar á hressandi hátt um hvernig hægt er að grenna sig án þess að koma líkamanum í ójafnvægi. Svo er sagt frá leyndarmáli: Besta megrunin felst í góðum styrktaræfingum. Líkaminn heldur áfram að brenna í nokkrar klukkustundir og svo eykst vöðvamassi líkamans og þar með eykst einnig grunnbrennslan. En þá er reyndar ekki málið að borða minna heldur að borða betur. Að vera veikur og að stunda lyftingar er ekki svo ólíkt – hvort tveggja veldur auknu álagi á líkamann og þá þarf líkaminn á góðri næringu að halda. Hvort sem matarlystin hverfur vegna veikinda eða það er meðvituð ákvörðun að borða sem minnst þá bregst líkaminn við á þann hátt að allt fer í óefni og árangurinn verður hverfandi. Hjúkrunarfræðingar vilja hins vegar sýna gott fordæmi í heilsueflingu og gera það sem réttara reynist. Þátttakendur á heilsuþingi félagsins í fyrra sýndu einmitt gott fordæmi með því að senda frá sér fjölda tillagna um hvernig hjúkrunarfræðingar geta tekið þátt í heilsueflingu og í samfélagsumræðu um heilsumál. Greinin hér í blaðinu, þar sem tillögur þeirra birtast, á það skilið að sem flestir lesi hana. Þetta er þéttur texti fullur af upplýsingum og þar leynist efni í heilsuvinnu hjúkrunarfræðinga um ókomin ár. Tímarit hjúkrunarfræðinga Suðurlandsbraut 22 108 Reykjavík Sími 540 6405 Bréfsími 540 6401 Netfang christer@hjukrun.is Vefsíða www.hjukrun.is Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Sími skrifstofu 540 6400 Ritstjóri og ábyrgðarmaður Christer Magnusson Ritstjórnarfulltrúi Sunna K. Símonardóttir Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu christer@hjukrun.is. Leiðbeiningar um ritun fræðslu­ og fræðigreina er að finna á vefsíðu tímaritsins. Ritnefnd: Árún K. Sigurðardóttir Brynja Örlygsdóttir Dóróthea Bergs Ingibjörg Jóna Friðbertsdóttir Kolbrún Albertsdóttir Sigríður Skúladóttir Þorsteinn Jónsson Ráðgjafi vegna handrits í ritrýni: Herdís Sveinsdóttir Fréttaefni: Aðalbjörg Finnbogadóttir, Christer Magnusson Ljósmyndir: Anders Olsson, Christer Magnusson, Hrafnhildur Hreinsdóttir, Inger H. Bóasson, Sigurður Bogi Sævarsson o.fl. Próförk og yfirlestur: Ragnar Hauksson Auglýsingar: Þórdís Gunnarsdóttir, sími 866 3855 Hönnun: Þór Ingólfsson, grafískur hönnuður FÍT Prentvinnsla: Litróf Upplag 4000 eintök Pökkun og dreifing: Pósthúsið AÐ NÆRAST VEL OG EFLA HEILSU Sjúklingar nærast yfirleitt illa. Það kemur fram í tveimum greinum hér í blaðinu. Hjúkrunarfræðingar nærast yfirleitt of vel en til eru ráð við því. Christer Magnusson. Ritstjóraspjall Því lengi býr að fyrstu gerð Fjölbreytt og gott veganesti fyrir lífið www.barnamatur.is Aðeins það besta fyrir börnin!

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.