Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2011, Blaðsíða 40
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 87. árg. 201136
Aðalbjörg Finnbogadóttir, adalbjorg@hjukrun.is
AÐALFUNDUR 2011
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldinn 19. maí 2011.
Á fundinn voru skráðir 97 atkvæðisbærir félagsmenn.
Formaður félagsins, Elsa B. Friðfinnsdóttir,
setti fundinn. Í ávarpi sínu benti hún á að
menntun hjúkrunarfræðinga hefði fleygt
fram á undanförnum árum og áratugum
og þætti það undur meðal erlendra kollega
að allt hjúkrunarfræðinám hér á landi
hefði farið fram í háskóla í aldarfjórðung.
Nefndi hún að yfir helmingur félagsmanna
væri með framhaldsmenntun, nær
3% hefðu lokið doktorsprófi og yfir 50
hjúkrunarfræðingar væru með sérfræðileyfi
í hinum ýmsu sérgreinum hjúkrunar. Hún
undirstrikaði að hið íslenska heilbrigðiskerfi
stæði á tveimur meginstoðum samkvæmt
lögum um heilbrigðisþjónustu frá
Stjórnarmenn að undirbúa sig fyrir fundinn.
2007, hjúkrun og lækningum. Þjónusta
hjúkrunarfræðinga er þungamiðja í allri
heilbrigðisþjónustu: á sjúkrahúsum og
heilbrigðisstofnunum, á hjúkrunarheimilum,
í heilsugæslu og í heimahjúkrun. Nefndi
hún sérstak lega þau tvö svið sem munu
vaxa sérstaklega á næstu árum, þ.e.
heilsu gæsluna og öldrunarþjónustuna,
og að hjúkrunarfræðingar hefðu miklu
hlut verki að gegna þar. Þá ræddi hún
hlut verk hjúkrunarfræðinga í viðhaldi og
uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar og
benti í því sambandi á stefnu félagsins í
hjúkrunar og heilbrigðismálum til ársins
2020.
Vonaðist hún til að velferðarráðherra og
starfsmenn velferðarráðuneytisins kynntu
sér vel stefnuna og að ráðuneytið sjálft setti
sér slíka stefnu í heilbrigðisþjónustunni þar
sem þjónustan væri vel skilgreind, tilgreint
hvar hvað væri gert, hver gerði hvað, hver
greiddi hvað og svo framvegis. Kvað hún
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga vilja
mjög gjarnan koma til slíkrar vinnu innan
ráðuneytisins.
Að lokum skoraði hún á ráðherra að ganga
á undan með góðu fordæmi á heimsvísu og
koma á fót stöðu leiðtoga í hjúkrun innan
velferðaráðuneytisins hið fyrsta. Á fundi