Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2011, Blaðsíða 31
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 87. árg. 2011 27
leiddi í ljós að tæp þrjú prósent (1 kona)
aðspurðra kvenna höfðu verið beittar
líkamlegu ofbeldi á undangengnu ári.“
Fram kemur í kaflanum að margar
skiluðu auðu þegar spurt var um
ýmsar aðrar tegundir ofbeldis. Samt
leggur Brynja það ekki til að gerð
verði eigindleg rannsókn meðal þessa
hóps sem myndi svara mörgum þeim
spurningum sem Brynja veltir upp.
Styrkur þessarar bókar liggur í því að
flestir höfundar hafa vandað mjög til
heimildaleitar og því er mikill fengur
að þeim upplýsingum sem fram koma
í þeim þætti kaflanna. Rannsóknir
Kolbrúnar og Sigríðar Síu eru einnig
aðferðafræðilega vandaðar miðað við
rannsóknarefnið og eru kaflar þeirra
skrifaðir af greinilegri umhyggju fyrir
þolendum ofbeldis. Að auki er mikill
fengur að efni í viðaukum, meðal
annars klínískum leiðbeiningum frá
Kanada fyrir hjúkrunarfræðinga
og ljósmæður um framkvæmd
kembileitar, mat og fyrstu viðbrögð
við heimilisofbeldi, sem eru aftast í
bókinni.
Veikleiki bókarinnar liggur í köflum
Erlu Kolbrúnar og Brynju sem nota
rannsóknaraðferðir sem viðurkennt er
á þessu sviði að hafi takmarkaða
þýðingu við rannsókn á þessu flókna
fyrirbæri sem heimilisofbeldi er, þ.e.
spurningalistakannanir. Ef þessir
rann sak endur hefðu haft eigindlegan
þátt sem hluta af rannsóknum sínum
hefðu rannsóknir þeirra haft mun
meira gildi. Að auki hefði ég viljað
sjá miklu fleiri töflur í bókinni þar sem
veitt væri yfirsýn yfir stöðu þekkingar
um áhrif ofbeldis á konur í kjölfar
rannsóknanna.
Sigríður Halldórsdóttir er prófessor í hjúkr
unar fræði og deildarformaður framhalds
námsdeildar heilbrigðisvísindasviðs
Háskólans á Akureyri. Hún hefur rannsakað
ýmsa þætti sem tengjast áhrifum ofbeldis
á þolendur.
Tilgangur samtakanna Blátt áfram er að efla forvarnir gegn kynferðislegu
ofbeldi á börnum á Íslandi. Vitað er að kynferðislegt ofbeldi hefur
gríðarmiklar heilsufarslegar afleiðingar. Allt sem er gert til þess að efla
forvarnir gegn þessu hefur því mikið lýðheilsugildi.
Á vef Blátt áfram er hægt að fræðast um samtökin og einnig sækja
fræðslu og upplýsingar um kynferðislegt ofbeldi. Blátt áframblaðið
er vandað tímarit sem hægt er að lesa á vefnum. Einnig má gerast
verndari barna og skrá sig á námskeið. Sömuleiðis er hægt að skoða
ýmis myndbönd og bæklinginn „7 skref til verndar börnum okkar“.
Stofnendur samtakanna eru tvær systur sem sjálfar hafa reynslu af
kynferðislegu ofbeldi. Nafn samtakanna vísar til þess hve mikilvægt
er að ræða þessi mál blátt áfram, bæði við börn og meðal fullorðinna.
Áhugaverðar vefsíður
www.blattafram.is