Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2011, Blaðsíða 38

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2011, Blaðsíða 38
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 87. árg. 201134 til læknis en áætlað var. „Við fáum hingað fólk sem er í meiri hættu en kannski Jón af götunni, fólk kemur oft út af einhverju sérstöku hingað, það er með einkenni eða eitthvað þess háttar. Því þarf ég að hafa þessa þekkingu og þar hjálpar mér reynslan af hjartadeild,“ segir hún. Bylgja hjálpar einnig til við þolpróf en í því þurfa alltaf að vera tveir af öryggis­ ástæðum. Í Hjartavernd vinna nú sex hjúkrunarfræðingar og eru þeir í ýmsum verkefnum. Þrír eru í nýrnarannsóknum og tveir í öðrum rannsóknum. Hjartavernd snýst ekki bara um hjartað heldur eru margar rannsóknir framkvæmdar í húsinu. „Það hafa safnast hér ógrynni af upplýsingum sem mörgum finnst áhugavert að komast í. Við gerum hálsæðaómun, tökum röntgenmyndir og mælum beinþéttni bæði í börnum og fullorðnum. Svo rannsökum við arfgengt hækkað kólesteról. En öldrunar­ rannsóknin hefur verið stærsta rann sóknin hér innanhúss,“ segir Bylgja. „Það er gaman að vinna á stað þar sem allir eru að vinna að sama markmiði en hver á sinn hátt. Ég gerði mér ekki grein fyrir hversu mikið starf var unnið hér og hversu akademískt umhverfið er,“ bætir hún við. Forvarnir Bylgja hefur mikinn áhuga á forvörnum og var það eitt af því sem vakti áhuga hennar á Hjartavernd. Hér fær hún að vinna við hjartahjúkrun út frá öðrum forsendum. Hér byggist starfið á að fræða og koma ákveðnum boðskap, sérstaklega um áhættuþættina, til fólks. „Það er skemmtilegt og fjölbreytt starf að reyna að fá fólk til að hugsa um heilsuna og fá fólk með sér í lið.“ Bylgja segir að auðvitað hafi einnig verið gert ráð fyrir að fræða fólk á hjartadeild, bæði fyrir ýmsar aðgerðir og þegar það fer heim. Því var hún líka í forvarnarvinnu á hjartadeild en henni fannst oft tíminn svo stuttur að fræðslan færi fyrir ofan garð og neðan. Í Hjartavernd sé gott umhverfi til þess að ná í fólkið og grípa tækifærið til þess að fá fólk til að huga betur að hreyfingu, mataræði og öðru sem getur minnkað líkurnar á hjartaáfalli. Bylgja vildi gjarnan vinna enn meira að fyrirbyggjandi störfum. „Maður vill alltaf fylgja fólki meira eftir. Við fáum fólk hér sem vill fara að hugsa meira um heilsuna en ég hitti það fólk bara í eitt skipti og það er ekki nóg. Ég reyni í staðinn að vera dugleg að benda fólki á það sem er í boði úti í samfélaginu. Þá hefur Hjartavernd lagt sig fram við að koma vitneskju út í þjóðfélagið, til dæmis með því að smíða áhættureiknivél og með útgáfu á Handbók Hjartaverndar sem er aðgengileg fyrir alla,“ segir hún. Umfangsmikil starfsemi Hjartavernd er sjálfseignarstofnun en landssamtök um hjartavernd voru upphaflega stofnuð 1964. Rannsóknarstöð Hjartaverndar hóf starfsemi sína þremur árum síðar eða árið 1967 með mjög viðtækri faraldsfræðilegri rannsókn, hóprannsókn Hjartaverndar, þar sem áhersla var lögð á að finna helstu áhættuþætti hjarta­ og æðasjúkdóma meðal Íslendinga. Rannsóknin hefur staðið í meira en 40 ár og hefur náð til rúmlega nítján þúsund Íslendinga. Nýjasti áfangi hóprannsóknarinnar er öldrunarrannsókn Hjartaverndar en hún er unnin í samvinnu við bandaríska heilbrigðisráðuneytið. Hjartavernd hefur frá upphafi lagt áherslu á að koma niðurstöðum úr rannsóknum sínum til almennings og heilbrigðisstarfsfólks. Stofnunin hefur gefið út Tímarit Hjartaverndar samfellt í 38 ár og einnig gefið út röð fræðslubæklinga um áhættuþætti hjarta­ og æðasjúkdóma. Á vef Hjartaverndar má einnig finna áhættureiknivél Hjartaverndar þar sem hægt er að reikna út líkur á fá kransæðasjúkdóm á næstu 10 árum. Starfsmenn Hjartaverndar eru rúmlega 60. Í hópnum er fólk með ólíka menntun, meðal annars læknar, lífeindafræðingar, líf­ fræðingar, tölfræðingur, geislafræðingar, hjúkrunar fræðingar og sjúkraliðar. Starf semi Hjarta verndar byggist á þremur stoðum en þær eru rannsóknir, fræðsla og áhættumat.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.