Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2011, Blaðsíða 13
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 87. árg. 2011 9
verið safnað með spurningalistum sem
sendir voru tæplega tvö þúsund manns
á aldrinum 18 til 80 ára. Til samanburðar
eru tæplega 700 Skagfirðingar á sama
aldri. Þegar þetta er skrifað í byrjun
maí 2011 er gagnasöfnun nær lokið og
innsláttur gagna hafinn.
Dýralæknar taka þátt í rannsókninni
og safna sýnum úr sláturdýrum
á Suðurlandi til að fylgjast með
hugsanlegum vefjabreytingum, einkum í
öndunarfærum. Í sláturhúsum hafa verið
tekin lungu og hausar af sauðfé og
hrossum frá 12 bæjum á svæðinu. Frá
þessum sömu bæjum er þegar safnað
sýnum til flúormælinga. Til að fylgja eftir
áhrifunum er ætlunin að taka sýni næstu
10 árin úr dýrum sem fædd eru árið 2010.
Viðmiðunarsýni verða tekin úr sauðfé og
hrossum frá tveimur bæjum í Skagafirði.
Brýnt er að rannsaka áhrif eldgossins
á loftgæði vegna öskufallsins og
áframhaldandi svifryks af völdum þess
en slíkt getur varað svo mánuðum
eða jafnvel árum skiptir. Fylgjast þarf
með magni og samsetningu svifagna
og hvernig þær veðrast með tímanum
til að greina hugsanleg langtímaáhrif á
öndunarfæri. Alþjóðlegt og þverfræðilegt
teymi sérfræðinga hefur þegar birt
frumniðurstöður um samsetningu og gerð
ösku sem féll til jarðar á svæðinu undir
Eyjafjöllum, sem sýna að þótt askan sé
mikil og töluverður hluti hennar sé mjög
fíngerður (213 hundraðshlutar rúmmáls
(h.r.) minni en 4 µm, og 426 h.r. minni en
10 µm) er nánast engar kísilnálar að finna
í henni. Það er vísbending um að askan
sé ekki líkleg til að valda lungnaskaða til
skamms tíma. Um langtímaáhrif er hins
vegar of snemmt að segja (Horwell o.fl.,
2011).
Rannsókn af þessu tagi er mikilvæg til
að geta komið í veg fyrir vaxandi skaða
og til að undirbúa varúðarráðstafanir við
svipaðar aðstæður í framtíðinni, bæði
hérlendis og erlendis.
Dr. Guðrún Pétursdóttir er forstöðumaður
Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla
Íslands, dósent í hjúkrunarfræðideild og
formaður stýrihóps um rannsóknir á áhrifum
eldgossins í Eyjafjallajökli á heilsu.
Heimildir
Berglind Guðmundsdóttir (2009). 75% upplifðu
jarðskjálftann á Suðurlandi í sumar sem
alvarlegt áfall. Ráðstefnuútdráttur frá 14.
ráðstefnu heilbrigðisvísindadeildar HÍ, 5.6.
janúar 2009.
Briem, H. 2010. Health effects of the volcanic
eruption in Eyjafjallajökull. EPI-ICE, 6 (3), 12.
Green, B.L., og Solomon, S.D. (1995). The mental
health impact of natural and technological
disasters. Í J.R. Freedy og S.E. Hobfoll (ritstj.),
Traumatic stress: From theory to practice.
(bls. 163177). New York: Plenum Press.
Hansell, A., Horwell, C.J., og Oppenheimer,
C. (2006). The health hazards of volcanoes
and geothermal areas. Occupational
and Environmental Medicine, Continuing
Professional Development Series, 63, 149
156.
Hansell, A., og Oppenheimer, C. (2004). Health
hazards from volcanic gases: a systematic
literature review. Archives of Environmental
Health, 59, 62839.
Horwell, C.J., og Baxter, P.J. (2006). The
respiratory health hazards of volcanic ash: a
review for volcanic risk mitigation. Bulletin of
Volcanology, 69, 124.
Horwell, C.J., Fenoglio, I., og Fubini, B. (2007).
Ironinduced hydroxyl radical generation from
basaltic volcanic ash. Earth and Planetary
Science Letters, 261 (34), 662669.
Horwell, C., Baxter, P., Hillman, S., og Damby, D.
(2011). Respiratory health hazard assessment
of ash from the 2010 eruption of Eyjafjallajökull
volcano, Iceland. Geophysical Research
Abstracts, 13, EGU201125982.
Longo, B.M., Rossignol, A., og Green, J.B.
(2008). Cardiorespiratory health effects
associated with sulphurous volcanic air
pollution. Public Health, 122 (8), 80920.
Ohta, Y., Araki, K., Kawasaki, N., Nakane, Y.,
Honda, S., Mine, M. (2003). Psychological
distress among evacuees of a volcanic
eruption in Japan: a followup study.
Psychiatry and Clinical Neurosciences 57 (1),
105111.
Shore, J.H., Tatum, E.L., og Vollmer, W.M.
(1986). Evaluation of mental effects of disaster,
Mount St. Helens eruption. American Journal
of Public Health, 76 (viðauki), 7683.
Viane, C., Bhugwant, C., Sieja, B., Staudacher,
T., og Demoly, P. (2011). Étude comparative
des émissions de gaz volcanique du Piton de
la Fournaiset des hospitalisations pour asthme
de la population réunionnaise de 20052007.
Revue Francaise d’Allergologie, 49 (4), 346
351.
Öskufall var gífurlegt undir Eyjafjöllum.