Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2011, Blaðsíða 21

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2011, Blaðsíða 21
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 87. árg. 2011 17 í innganginum að fullyrðingar hjúkrunar­ fræðinga um að þeir séu málsvarar sjúklinga séu oft innantóm orð. Suzanne vill meina að ekki sé rétt eins og oft má greina í tali hjúkrunarfræðinga að hjúkrunarfræðingar séu eina stéttin sem heldur uppi fána sjúklinga. Slíkt tal sé oft til þess fallið að hleypa illu blóði í aðrar starfsstéttir að óþörfu. Að auki sé stundum lítið um efndir, hjúkrunarfræðingar segist vera málsvarar en geri svo lítið í því. Margar sögur í bókinni virðast einmitt vera til þess ætlaðar að segja lesendum að það sé víst hægt að standa á sínu þegar þess þarf. Hjúkrunarfræðingar þurfa oft að standa fastir fyrir bæði gagnvart læknum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum og gagnvart stjórnendum, yfirvöldum og fjölmiðlum. Sumar sögur eru frekar einfaldar á yfirborðinu en í þeim getur leynst mikilvægur sannleikur. Einn hjúkrunar­ fræðingur segir frá því hvernig hann fór fram hjá aðstoðarlækninum og talaði beint við sérfræðinginn. Það varð sjúklingnum til happs því annars hefði hann dáið út af lifrarbilun. Flestum finnst þetta sjálfsagt – aðstoðarlæknirinn á að vera sérfræðingnum til aðstoðar og ekki eldveggur sem geti af eigin geðþótta komið í veg fyrir að reynsluboltar geti talað saman. Samt hafa allir hjúkrunarfræðingar lent í þessu. Með því að velja að birta þessa sögu er Suzanne Gordon að hvetja hjúkrunarfræðinga til að taka velferð sjúklingsins fram yfir brothætta sjálfsmynd aðstoðarlæknisins og goggunarröð sjúkrahússins. Að vísu þarf að velja vel orrusturnar því ekki er hægt að heyja þær allar. Um það fjalla reyndar nokkrar sögur í bókinni. Ímynd hjúkrunar Einn hluti bókarinnar fjallar um hjúkrunarfræðinga sem takast á við hugmyndir almennings, stjórnmálamanna og stjórnvalda um hjúkrun. Þetta er skemmtilegur lestur sem hreyfir við lesandanum. Í einum kaflanum fáum við að vita hvernig hjúkrunarfræðingar í Kaliforníu sigruðu vinnuveitendur og stjórnvöld í baráttunni um að lögleiða hversu margir sjúklingar hver hjúkrunarfræðingur mætti vera ábyrgur fyrir. Í öðrum kafla förum við til Sviss og heyrum hvernig hjúkrunarfræðingafélagið næstum því náði að lögleiða sjálfstæði hjúkrunarfræðinga. Það tókst ekki en heimurinn breyttist í huga margra hjúkrunarfræðinga og einnig í huga almennings. Félagið notaði auglýsinga ­ herferð og urðu margir hjúkrunar­ fræðingar hneykslaðir á myndinni sem þar var dregin upp af því hverning nútímahjúkrunarfræðingur vill láta líta á sig. Samt breytti herferðin hugsun margra þannig að ekki varð aftur snúið. Meira verður ekki sagt hér en ég hvet alla áhugamenn um ímynd hjúkrunar til þess að lesa kaflann. Ekki er úr vegi að hvetja sem flesta til að lesa bókina í heild sinni. Best er að lesa bókarhlutana í þeirri röð sem þeir koma – það er ekki tilviljun hvernig þeim er raðað – en ekki þarf að lesa strax alla kafla í hverjum hluta. Fyrir þá sem vilja fara dýpra í efnið skrifar Suzanne Gordon inngang að hverjum bókarhluta fyrir sig. Fr ét ta pu nk tu r Ráðinn hefur verið nýr fulltrúi á skrifstofu félagsins en hún heitir Guðrún Andrea Guðmundsdóttir. Hún hefur tekið við af Soffíu Sigurðar dóttur sem lét af störfum vegna aldurs 1. júní sl. Guðrún flutti nýlega heim frá Kansas í Bandaríkjunum eftir þriggja ára búsetu þar. Áður starfaði hún hjá Krafti hf. við fjölbreytt skrifstofustörf og móttöku. Henni finnst ósköp gott að vera komin heim aftur til fjöl­ skyld unnar og telur sig heppna að hafa fengið vinnu á þessum góða vinnu stað. Soffía er vel þekkt meðal hjúkrunar ­ fræðinga. Hún á að baki áratuga­ starf fyrir félagið og vann áður hjá Félagi háskólamenntaðra hjúkrunar­ fræðinga og í námsbraut í hjúkrunar­ fræði. Hún gerir ráð fyrir að fara af landi brott strax í sumar en hún á dóttur sem er búsett í Suður­Afríku. Nýr starfsmaður á skrifstofu félagsins Nýr og fráfarandi fulltrúi. Frá vinstri Soffía Sigurðardóttir og Guðrún A. Guðmundsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.