Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2011, Side 32

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2011, Side 32
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 87. árg. 201128 Brynja Ingadóttir, brynjain@landspitali.is HEFJUM BARÁTTU GEGN VANNÆRINGU! Á undanförnum árum hefur aukin athygli beinst að því að vannæring vegna sjúkdóma sé raunverulegt vandamál innan vestrænna sjúkrahúsa. Það hefur að mörgu leytið verið falið eða fallið í skuggann af mikilli umræðu um offitu en hugsanlega einnig af breytingum í sjúkrahúsumhverfinu þar sem æ meiri áhersla hefur verið lögð á hraða, tækni og sérhæfingu þjónustunnar. Árið 2009 skrifuðu fulltrúar heilbrigðis­ ráðherra aðildarríkja Evrópusambandsins undir yfirlýsingu þess efnis að útrýma skyldi sjúkdómatengdri vannæringu. Í aðgerðaráætlun þeirra er kveðið á um þörf fyrir vitundarvakningu um vannæringu. Gefa þurfi út klínískar leiðbeiningar, koma á lögboðinni skimun eftir vannæringu, auka rannsóknir, þjálfun og fræðslu heilbrigðisstarfsfólks og leggja fram áætlanir um innleiðingu og eftirfylgni meðferðar. Á Landspítala tóku sérfræðingar í hjúkrun og næringarfræðingar saman höndum haustið 2009 og unnu að því að skoða stöðu mála á sjúkrahúsinu, hvað varðar vannæringu sjúklinga, frá ýmsum sjónarhornum. Leitað var til fjölda starfsmanna um viðhorf og álit og safnað upplýsingum um verkefni sem höfðu verið unnin og gefin út um vannæringu innan spítalans og Háskóla Íslands. Gerðar voru tvær kannanir, annars vegar meðal deildarstjóra og næringarfræðinga og hins vegar var metið næringarástand meira en 600 sjúklinga á sjúkrahúsinu. Þessu átaksverkefni lauk með sérstökum degi helguðum næringu sjúklinga þar sem haldið var málþing og lögð drög að áframhaldandi vinnu. Næringardagur var haldinn í annað sinn í mars 2011 en þá urðu þau tímamót að gefnar voru út klínískar leiðbeiningar um næringu sjúklinga, unnar af vinnuhóp innan Landspítala. Til okkar kom hollenskur næringar fræðingur, Marian van Bokhorst, sem miðlaði af reynslu sinni og þekkingu varðandi innleiðingu á klínískum leið­ beiningum. Mig langar í þessum pistli að fjalla stuttlega um vannæringu frá sjónar­ horni hjúkrunar og jafnframt drepa á það helsta sem kom fram í fyrirlestri Marian van Bokhorst um árangur baráttunnar gegn vannæringu í Hollandi. Hvert er vandamálið? Þá tegund vannæringar, sem hér er til umræðu, má skilgreina sem ósjálfrátt þyngdartap eða vanþyngd í tengslum

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.