Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2014, Qupperneq 41

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2014, Qupperneq 41
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 3. tbl. 90. árg. 2014 37 Samráðsvettvangur norrænna hjúkrunarfræðinema (NSSK, Nordiske Sykepleie­ studenters Kontaktforum) hefur verið starfræktur frá 1956 með stuðningi frá SSN. Dagana 21. og 22. mars var Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga gestgjafi vorfundar NSSK og tók á móti fulltrúum hjúkrunarnema frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. SAMRÁÐSFUNDUR NORRÆNNA HJÚKRUNARFRÆÐINEMA Félög hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum hafa öll starfsmenn sem sinna samstarfi og tengslum við nemafélög. Á hinum Norðurlöndunum eru virk landsfélög hjúkrunarfræðinema en slíkt félag hefur ekki verið stofnað hér. Fulltrúi nema og nýbrautskráðra á skrifstofu FÍH skipulagði fundinn og tilnefndu stjórnir nemafélagana við HA og HÍ fulltrúa á fundinn fyrir hönd Íslands. Aðalumræðuefni fundarins var laun og starfsumhverfi nema en greinilegt er að hjúkrunarnemar á Norðurlöndum eiga margt sameiginlegt varðandi þessa þætti. Þó fannst norrænum vinum okkar launakjör hér í lakara lagi samanborið við það sem gengur og gerist á þeirra heimaslóðum. Misjafnt er hvar samningsumboð fyrir hjúkrunarnema liggur en það er ekki alltaf hjá kjarafélagi hvers hjúkrunarfélags. Norrænir hjúkrunarnemar virðast alls staðar vinna töluvert mikið með námi sínu. Námslán og námsstyrkir gegna þó töluverðu hlutverki því á flestum hinna Norðurlandanna virðist sem nemar geti fengið ákveðna upphæð sem námsstyrk og annað sem námslán. Það sem nemarnir töldu að hefði mest áhrif á þá í starfsumhverfinu voru þættir sem snúa að siðfræðilegum málum og ábyrgð. Einnig nefndu þeir að þegar nemar koma í verknám á deildir eða til starfa eftir nám skynjuðu þeir oft lítinn áhuga á þeirri nýju þekkingu sem þeir kæmu með inn á vinnustaðinn. Nemar heyra oft sagt: „Já, en við erum vön að gera þetta svona hérna.“ Þeir finna því fyrir bili milli þeirra gagnreyndu aðferða sem þeim eru kenndar í náminu og hvernig Eva Hjörtína Ólafsdóttir, eva@hjukrun.is hlutirnir eru í framkvæmd. Einnig voru nemarnir sammála um að mismunandi deildarbragur hafi áhrif. Fundarmenn voru almennt sammála um að of snemma væri sett of mikil ábyrgð á herðar nema sem vinna með námi. Lausnin á þessu er að forsvarsmenn félaga hjúkrunarfræðinema og stéttarfélög hjúkrunarfræðinga vinni að því sameiginlega að uppfræða nema um réttindi, kjör, skyldur og ábyrgð. Kenna þyrfti nemum að segja nei við því sem er utan þeirra þekkingar­ og ábyrgðarsviðs. Auka þarf samvinnu milli stofnana og skólanna. Næsti fundur NSSK verður í september nk. í Kaupmannahöfn. Þar verður aðalumræðuefnið hvernig körlum í hjúkrunarnámi verður fjölgað og hvað nemafélögin geta lagt á vogarskálarnar varðandi það. Einnig verður rætt um hvernig hægt er að styrkja og hvetja hjúkrunarfræðinema í námi og starfi. Eva Hjörtína Ólafsdóttir er kjararáðgjafi á skrif stofu FÍH og einnig fulltrúi nema og nýbrautskráðra.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.