Morgunblaðið - 02.09.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.09.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2015 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Túnikur Peysur Bolir Pils Kjólar o.fl Vinsælu velúrgallarnir alltaf til í mörgum litum Stærðir S-XXXXL Ný sending Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Vertu vinur okkar á Facebook Kjólar, túnikur, pils og toppar Ný sending frá Laugavegi 63 • S: 551 4422 Skoðið laxdal.is BUXUR - BUXUR fyrir allar konur w Niðurmjóar - Beinar Mörg snið - Margir litir GERRY WEBER - GARDEUR Lægra verð v/gengis- lækkunar Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is HB Grandi, Samherji og Þorbjörn hf. fengu mestu úthlutað í úthlutun aflamarks fyrir fiskveiðiárið 2015/ 2016, en úthlutun Fiskistofu var kunngjörð í gær. Fékk HB Grandi 10,1% af heildarúthlutun, Samherji 5,9% og Þorbjörn hf. 5,5%. Fyr- irtækin þrjú eru þau sömu og mest hafa fengið undanfarin ár; í ár fengu þau samanlagt 21,5%. Fjórðu og fimmtu hæstu úthlutunina fengu Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum og Vísir í Grindavík. Fimmtíu stærstu fyrirtækin fengu 86% heildarúthlutunarinnar, álíka mikið og í fyrra, en fyrirtæki og lögaðilar sem úthlutað var til í ár voru þó um 40 færri en í fyrra. Kaldbakur fær mest Alls fengu 534 skip úthlutað afla- marki í gær, samanborið við 578 í fyrra, og fór úthlutunin fram með sama hætti og fyrir síðasta fisk- veiðiár, á grundvelli aflahlutdeilda að teknu tilliti til frádráttar fyrir jöfnunaraðgerðir. Kaldbakur EA 1, í eigu Sam- herja, fékk mestu úthlutað sé litið til einstakra skipa. Fékk hann alls 8.111 þorskígildistonn, eða 2,2% af úthlutuðum þorskígildum. Þar á eftir komu Guðmundur í Nesi RE 13 með 2% úthlutaðra þorskígilda og Vigri RE 71 með 1,9%. Guð- mundur í Nesi er í eigu Brims hf. og Vigri í eigu Ögurvíkur ehf. Heildarúthlutunin í ár var 435.650 tonn, en af þeim voru 368.500 tonn í þorskígildum. Út- hlutun í þorski var rúmlega 190 þúsund tonn og ýsukvótinn var 28.950 tonn. Meira af ýsu og þorski Aukning á þorskígildistonnum frá fyrra ári nam 1.500 þorsk- ígildistonnum, ýsukvótinn hækkaði nú um tæp 5 þúsund tonn og út- hlutun í þorski jókst um 18.300 tonn. Síldarúthlutun var um 17 þús- und tonnum minni en í fyrra. Heildarúthlutun í ár jókst um 3.500 tonn frá fyrra ári. Líkt og undanfarin ár fá þrjár hafnir talsvert miklu meira úthlut- að en aðrar hafnir. Mest fengu skip með heimahöfn í Reykjavík, eða 12,4% af heildinni, samanborið við 12,9% í fyrra. Skip með heimahöfn í Grindavík fengu úthlutað 11,4% af heildinni, sem er einu prósentustigi meira en í fyrra. Skip í Vestmanna- eyjum fengu 9,9% úthlutunarinnar, sem er 0,6 prósentum minna en í fyrra, og skaust Grindavíkurhöfn því fram úr Vestmannaeyjum, sem jafnan hefur vermt annað sætið í aflamarksúthlutunum. Fækkun togara annað árið í röð Bátum með krókaaflamark fækkar talsvert. Þeir voru 318 í fyrra en nú eru þeir 297. Skip í aflamarkskerfinu eru nú 237 og fækkaði þeim um 21 milli ára. Alls fækkaði togurum sem fá úthlutun um fimm milli ára og eru nú 45 alls, en þeim fækkaði um sömu tölu í fyrra. Skuttogarar fengu úthlutað tæp- um 200 þúsund tonnum af heildar- aflamarki og skip með aflamark fengu 190 þúsund tonn. Smábátar og krókabátar með aflamark fengu tæp 50 þúsund tonn. Hlutföllin gætu breyst Í frétt Fiskistofu um úthlutunina er tekið fram að hlutfall milli heimahafna kunni að brenglast vegna breytinga á þorskígildis- stuðlum og tilfærslu aflahlutdeilda milli skipa sem hafa ekki sömu heimahöfn. Enn fremur segir þar að úthlut- un aflamarks í deilistofnum verði síðar á árinu og að ekki sé óalgengt að aukið sé við aflamark í upp- sjávarfiski. Í kjölfar slíkra úthlutana eigi heildaraflamark einstakra skipa og hafna og innbyrðishlutfall þeirra eftir að breytast þegar líður á fisk- veiðiárið. Mest fá þeir sömu og áður  Fiskistofa úthlutaði aflamarki í gær fyrir tímabilið 2015/2016  Grindavík skaust fram fyrir Vestmannaeyjar  Heildarmagn sem úthlutað var jókst um 3.500 tonn Morgunblaðið/Kristján Kaldbakur EA 1 Mesta úthlutun afla fékk skipið Kaldbakur í eigu Samherja, um 2,2% af heildarmagninu. Úthlutun aflamarks » HB Grandi, Samherji og Þor- björn hf. fengu mestu úthlutað fyrir næsta fiskveiði ár, saman- lagt 21,5%. Fyrirtækin þrjú voru líka í efstu sætunum í fyrra. » Heildarúthlutun aflamarks er 3.500 tonnum meiri en í fyrra, enda þótt síldarúthlutun sé um 17 þúsund tonnum minna nú. » Skip með heimahöfn í Grindavík fá nú meiru úthlutað samanlagt en skip með höfn í Vestmannaeyjum, en það er viðsnúningur frá fyrra ári. » Togurum íslenska flotans fækkar um fimm milli ára og eru nú 45 talsins. Sama fækk- un var í fyrra. Eftir fund með forsvarsmönnum Þórsbergs ehf. í gær segist sveitar- stjóri Tálknafjarðarhrepps, Indriði Indriðason, hæfilega bjartsýnn á ástandið í atvinnumálum bæjarins. Útgerðarfyrirtækið Þórsberg ehf. á Tálknafirði hefur sagt upp öllu sínu starfsfólki og frestað því að hefja aft- ur starfsemi eftir sumarhlé. Um 26 störf er að ræða, en Þórsberg er stærsti vinnuveitandi bæjarfélags- ins. Fyrirtækið er nú í endurskipu- lagningu og verða kannaðir þeir kostir sem eru til staðar til frekari vinnslu, samkvæmt tilkynningu sem það sendi frá sér. Sérstaklega er tek- ið fram að fyrirtækið nái ekki nægi- legri stærðarhagkvæmni nú. „Engu að síður er þetta mjög alvarlegt fyrir lítið sveitarfélag og sýnir hvernig stöðu lítil sveitarfélög eru í og hve viðkvæm þau eru fyrir áföllum,“ sagði Indriði. „Fyrir okkur hefði þetta þó getað komið á verri tíma. Við horfum björtum augum áfram veginn hér með laxeldi og fleira en eftir að ég hitti stjórnendur vona ég að það séu einhverjar leiðar eftir sem menn eru að skoða. Menn eru ekki alveg að leggja árar í bát.“ Engar sértækar aðgerðir er um að ræða af hálfu bæjarfélagins. Guðjón Indriðason, framkvæmda- stjóri Þórsbergs, vildi lítið annað segja um málið að svo stöddu en komið hefur fram í tilkynningu. Hann sagði þó höggið fyrir bæjar- félagið líklega ofmetið. bso@mbl.is Hæfilega bjart- sýnn eftir fund  Alvarlegt ástand fyrir Tálknafjörð Hinn heimskunni Qigong-meistari Kenneth Cohen flytur almennan fyrirlestur um Qigong á morg- un, fimmtudag, kl. 19-21 í Von, húsi SÁÁ að Efstaleiti 7 í Reykjavík. Þátt- tökugjald er 3.500 kr. Cohen er hér á landi á vegum Aflsins, félags qi- gong-iðkenda, og mun einnig leiða helgarnámskeið að Kvoslæk í Fljótshlíð um helgina. Qigong-meistari flytur fyrirlestur Kenneth Cohen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.