Morgunblaðið - 02.09.2015, Blaðsíða 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2015
AF BÓKUM
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Skáldsagan To Kill a Mocking-bird eftir Harper Lee telst tilhelstu verka bandarískra rit-
höfunda á 20. öldinni. Söguhetja
bókarinnar, Atticus Finch, fær það
verkefni að verja svartan mann,
sem gefið er að sök að hafa nauðg-
að hvítri konu. Atticus er hinn ær-
legi, réttsýni maður, sem stendur í
lappirnar gegn múgsefjun og kyn-
þáttafordómum á tímum aðskiln-
aðar í Suðurríkjunum á fjórða ára-
tug 20. aldarinnar og býður
dómskerfi þar sem svartir geta litl-
ar vonir gert sér um réttlæti byrg-
inn.
Sagan er sögð með áhrifarík-
um hætti frá sjónarhóli ungrar
dóttur hans, Jean Louise, sem köll-
uð er Scout. Hún er upptekin af
veröld bernskunnar, en heimur
hinna fullorðnu brýst í gegn, meðal
annars vegna þess hvernig sam-
félagið umhverfist út af baráttu
föður hennar, sem fylgir samvisku
sinni þótt það geti kostað útskúfun.
Þýdd á yfir 40 tungumál
Í hugum margra stendur per-
sóna Atticusar Finch, sem leikarinn
Gregory Peck gerði eftirminnileg
skil á hvíta tjaldinu, upp úr í bók-
inni To Kill a Mockingbird sem
málsvari umbyrðarlyndis og rétt-
sýni, en nú hefur henni verið hrint
af stalli sínum.
To Kill a Mockingbird kom út
árið 1960. Bókin hafði mikil áhrif
og hlaut Harper Lee Pulitzer-verð-
launin fyrir söguna. Hún hefur nú
selst í yfir 30 milljónum eintaka og
verið þýdd á rúmlega 40 tungumál,
þó ekki íslensku. Hún var eina bók
höfundar þar til bókin Go Set a
Watchman kom út nú í sumar. Tit-
illinn er úr Biblíunni, bók Jesaja,
þar sem fjallað er um fall Bab-
ylóníu: „Farðu og kallaðu til varð-
mann og láttu hann skýra frá því
sem hann sér.“ Velta má fyrir sér
hvort hlutverk varðmannsins er að
vera siðferðislegur áttaviti eða
greina frá því þegar oki lastanna er
aflétt.
Titillinn átti upprunalega að
vera heiti To Kill a Mockingbird. Í
Go Set a Watchman er Scout flutt
til New York og snýr aftur til hins
uppdiktaða heimabæjar síns, May-
comb í Alabama, með blendnar til-
finningar. Hún elskar bæinn sinn,
en finnst hann um leið þrúgandi og
forpokaður. Þar býr faðir hennar,
orðinn aldraður og þjakaður af
gikt. Einnig bíður hennar æskuvin-
ur og vonbiðill, sem starfar með
föður hennar. Þar er heimurinn,
ekki í New York.
Hinn upplýsti rasisti
Handritið að Go Set a Watchm-
an hafði legið í skúffu í hálfa öld,
ekki að ástæðulausu. Mikið hefur
verið gert úr væntanlegri útkomu
bókarinnar. Hún kom út 14. júlí og
viku síðar hafði hún selst í 1,1 millj-
ón eintaka.
Go Set a Watchman er und-
arlegur samsetningur. Stílfimi Lee
fær að njóta sín á köflum, en þess á
milli dettur bókin niður í lýsingar,
sem litlum tilgangi þjóna. Í ljós
kemur að Atticus er rasisti – upp-
lýstur rasisti – og eiga margir
aðdáendur hans erfitt með að sætta
sig við að hetjan sé orðin skúrkur.
Scout finnur á borði hans bækling-
inn „Svarta plágan“ og njósnar síð-
an um föður sinn á borgarafundi
þar sem hvítir íbúar bæjarins koma
saman og rasisti hefur orðið. Þar er
einnig vonbiðillinn.
Atticus heldur því síðan fram
við dóttur sína að blökkumenn í
Suðurríkjunum séu ekki tilbúnir til
að fá full borgaraleg réttindi. Arf-
ur fortíðarinnar, þrælahalds og að-
skilnaðar svartra og hvítra, er hon-
um í blóð borinn. Hann er í orði
kveðnu málsvari stjórnarskrár-
innar, en svartir eiga ekki að færa
sig upp á skaftið og ágeng rétt-
indabarátta þeirra er honum
þyrnir í augum.
Atticus
hrynur í
áliti dóttur sinnar og sömuleiðis
maðurinn, sem vill kvænast henni.
Frændi Scout reynir að sann-
færa hana um að hún megi ekki
dæma föður sinn. Hann heldur fyr-
irlestur um rétt ríkja Bandaríkjanna
gegn alríkinu. Afstaða föður hennar
snúist um afskipti alríkisins af mál-
efnum ríkisins, íhlutun stjórnvalda í
Washington í málefni heima í héraði.
Skáldsagan leysist upp og verður að
fyrirlestri.
Umdeild útgáfa
Útgáfa Go Set a Watchman hef-
ur verið umdeild. Lee hafði sagt að
hún myndi hvorki skrifa né gefa út
aðra skáldsögu. Lögmaður Lee,
Tonja B. Carter, hefur yfirumsjón
með öllum málum höfundarins og
hefur starfað fyrir hana í þrjá ára-
tugi. Hún fékk hins vegar aukin völd
þegar systir Harper Lee, Alice, lést í
fyrra, 103 ára að aldri. Hefur verið
látið að því liggja að Alice hefði aldr-
ei tekið útgáfu í mál og Carter hafi
sætt lagi eftir fráfall hennar.
Í fjölmiðlum hafa
sumir gengið
svo langt að segja að Carter hafi
knúið Harper Lee, sem er 89 ára
gömul, til að fallast á útgáfuna.
Carter sé mjög stjórnsöm og stýri
aðgangi að höfundinum harðri
hendi. Aðrir nákomnir Harper Lee
segja að hún sé fullkomlega með á
nótunum og hafi hvorki verið
þvinguð til eins né neins.
Carter sagðist hafa rekist á
handritið af Go Set a Watchman
þegar hún var að fara í gegnum
bankahólf Lee í ágúst. Reyndar
hefur því einnig verið haldið fram
að matsmaður frá uppboðshald-
aranum Sotheby’s hafi fundið
handritið 2011, en Carter hafnar
því.
Hún lýsti því einnig í Wall
Street Journal að hún hefði fundið
upprunalega handritið að To Kill a
Mockingbird í bankahólfinu í júlí
ásamt blaðsíðum, sem gætu verið
úr þriðju skáldsögu Harper.
Bókin hefur verið kynnt sem
framhald af To Kill a Mockingbird,
en í raun er þó um að ræða fyrsta
handritið að bókinni vinsælu. For-
lagið J.B. Lippincott keypti útgáfu-
réttinn 1957 og næstu tvö árin end-
ur- og umskrifaði Harper Lee
verkið nokkrum sinnum undir rit-
stjórn Tay Hohoff. Komið hefur
fram að Hohoff hafi þótt mest til
þeirra kafla í handritinu koma þar
sem Scout minntist bernsku sinnar
og urðu þeir að grunni bókarinnar.
Ekki var nóg með að sagan breytt-
ist í grundvallaratriðum, heldur
breyttust líka persónur og þá sér-
staklega Atticus.
Sú spurning vaknar hvort það
hefði átt að gefa út Go Set a
Watchman. Bókin stendur engan
veginn án To Kill a Mockingbird og
verður aðeins forvitnileg í sam-
hengi við hana. Útgáfa Go Set a
Watchman er því miður ekki þau
bókmenntalegu stórtíðindi, sem út-
gefandinn vill vera láta, og veldur
óhjákvæmilega vonbrigðum, þótt
bókin geti verið fróðleg fyrir fræði-
menn og rannsakendur. Púpan
stendur fiðrildinu langt að baki.
Hetju steypt af stalli
» Í ljós kemur aðAtticus er rasisti –
upplýstur rasisti – og
eiga margir aðdáendur
hans erfitt með að sætta
sig við að hetjan sé orð-
in skúrkur.
Eftirminnilegur Gregory Peck lék Atticus Finch í To Kill a Mockingbird.
Persónan er byggð á föður höfundar bókarinnar, Harper Lee. Lee fannst
mikið til frammistöðu Peck koma og gaf honum úr föður síns.
Atgangur Biðraðir voru í bókabúðum þegar Go Set a Watchman kom út 14. júlí, 55 árum eftir útgáfu To Kill a Mockingbird.
Höfundurinn Það kom á óvart þeg-
ar tilkynnt var að nýrrar bókar
væri að vænta eftir Harper Lee.
AFP