Morgunblaðið - 02.09.2015, Page 15

Morgunblaðið - 02.09.2015, Page 15
Ísafjarðarbær varð til við sameiningu sex sveitarfélaga á norðanverðum Vestfjörðum árið 1996, en sveitarfélagið er um 2.400 ferkílómetrar að stærð. Innan þess búa rúm- lega 3.600 manns og eru atvinnuvegir þar fjölbreyttir, m.a. sjávarútvegur, ýmiskonar þjónusta og landbúnaður. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2015 Styrkja þarf alla félagslega stöðu útlendinga, svo sem í skóla- málum og á vinnumarkaði, í nýrri framkvæmdaáætlun stjórn- valda í innflytjendamálum sem væntanlega verður lögð fram á Al- þingi nú í vetur. Þetta segir Rúnar Helgi Har- aldsson, forstöðu- maður Fjöl- menning- arsetursins á Ísafirði. Það starfar á landsvísu og veitir innflyj- endum – og öðrum eftir atvikum – ráðgjöf um líf og starf á Ís- landi. Að undanförnu hefur vel- ferðarráðuneytið unnið að mótun fyrrnefndrar áætlunar með þátt- töku Innflytjendaráðs, starfs- manna Fjölmenningarseturs og víslegum störfum af þeim toga. Á síðasta ári fluttu til landsins frá útlöndum alls 1.634 manns, umfram brottflutta. Segir Rúnar Helgi þetta að hluta til endur- spegla atvinnulífið í landinu, en flestir sem norður í svalann flytja koma hingað í atvinnuleit og nú þarf víða fólk til starfa. fleiri. Innflytjendur á Íslandi eru í dag um 31.000 og lætur nærri að það sé um tíundi hluti þeirra sem á Íslandi búa. Á Vestfjörðum er hlutfallið hærra eða 13,2%, en Vestfirðingar eru nú rétt um 7.000. Víða er fólk af erlendu bergi brotið í aðalhlutverki, svo sem í fiskvinnslunni og marg- Fjölmenningarsetur sinnir nýbúum á landsvísu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fiskvinnsla Innflytjendur eru í aðalhlutverki í þeirri grein vestra. Innflytjendur 13,2% Vestfirð- inga og óvíða á landinu fleiri Rúnar Helgi Haraldsson plássið í eitthvað annað,“ segir Gísli. Og áhrif nútímans láta þar ekki staðar numið. Sölu geisladiska var þannig hætt fyrir tveimur árum. „Unga fólkið kaupir ekki diska leng- ur. Undir það síðasta vorum við bara að selja tónlist fyrir fullorðið fólk.“ Opnuðu dyrnar upp á gátt En bræðurnir hræðast ekki nýtt og breytt rekstrarumhverfi heldur taka þeir því opnum örmum. „Fyrir nýliðna verslunarmannahelgi fengum við margar fyrirspurnir um hvort við gætum ekki haft opið allan sólarhringinn vegna Mýrarboltans,“ segir Gísli og vísar þar til keppn- innar sem haldin er árlega á Ísafirði. „Við ákváðum að taka þeirri áskorun og vorum því með dyr okk- ar opnar upp á gátt alla helgina. Það var ákaflega gaman þegar búðin fylltist klukkan fjögur á morgnana af svöngu fólki og næstu tvo tímana vorum við bara að moka út mat fyrir skemmtanaglaða Íslendinga. Ég hafði haft áhyggjur af því að þessu myndu fylgja einhver leiðindi, en það gladdi mig ótrúlega mikið hvað allir voru sælir og prúðir. Þetta varð því bara til að auka trú mína á mann- kynið,“ segir Gísli léttur í bragði. Erlendir ferðamenn eru tíðir gestir í Hamra- borg og skipta þeir reksturinn töluverðu máli á sumrin. „En þeir mættu alveg vera fleiri. Það eru ennþá svo fáir sem koma hingað út á land,“ segir Gísli og tekur sem dæmi ferð sína og konu sinnar til Reykjavíkur í janúar. „Við komum þarna á miðvikudegi og ég ætlaði að bjóða henni út að borða um kvöldið, sem ég hélt að yrði auðvelt mál á miðvikudagskvöldi. En þá var allt fullt alls staðar. Það væri gaman að fá meiri skerf af þessu.“ Hann segir mikinn mun vera á rekstri Hamraborgar á sumrin miðað við veturna. „Það er himinn og haf þar á milli. Það er meira en tvöföldun í rekstri hjá okkur á sumrin og þau skipta okkur öllu máli því þá býr maður til fituforða til að lifa veturinn af. Ef við fáum ekki gott sumar þá getur veturinn verið ansi harður.“ Fituforði til að lifa af veturinn SUMARIÐ ER TÍMINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.