Morgunblaðið - 02.09.2015, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.09.2015, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2015 Eru jakkafötin hrein fyrir næsta viðburð? Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími 553 1380 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Þegar velferð- arráðherra hefur framvísað ríkis- greiddum flugfarseðli sínum og er sestur í sæti sitt í góðu far- rými flugvélarinnar þá hlustar hann á flugfreyjuna fara yfir öryggisreglur fyrir flugtak. Farþegum er bent á að falli þrýst- ingur í farrýminu þá falli niður súrefnisgrímur og beri fullorðnum að setja fyrst á sig súrefnisgrím- una og síðan hjálpa þeim sem ekki geta veitt sér hjálp sjálfir. Er ekki þarna forsenda þess að geta veitt hjálp? Á Íslandi eru þúsundir aldraða og öryrkja sem þurfa að- stoð, þá vantar ekki súrefni en flest annað. Þessi kona sem í dag er kennd við velferð með ráð- herradóm þekkir lítið til með- systkina sinna. Saga úr lífi Íslendings Fullorðinn karlmaður sem varð fyrir alvarlegu slysi á síðustu öld og varð öryrki. Hann hefur nú líf- eyri eins og lágmark segir til um. Heils- unnar vegna hefur hann þurft á lækn- isaðstoð að halda. Hann hefur nú einnig greinst með krabba- mein. Vegna krabba- meinsins þurfti hann að fá sprautur á þriggja mánaða fresti. Hann átti að fá sprautu á vormán- uðum. Hann hafði ekki efni á að leysa lyfið út. Þessi maður vann við undir- stöðuatvinnuveg er hann varð fyr- ir slysi sem varð til þess að hann varð öryrki. Staða þessa manns er eins og fjölmargra Íslendinga. Í apóteki Ég bíð eftir afgreiðslu. Full- orðin kona var komin að af- greiðsluborðinu. Afgreiðslustúlkan afgreiddi konuna með lyf. Af- greiðslustúlkan sagði konunni verðið á lyfjapokanum hennar. Var að sjá sem konan stirðnaði og starði á afgreiðslustúlkuna, en síð- an stundi hún upp að hún hefði ekki gert ráð fyrir að lyfin gætu verið svona dýr. Afgreiðslustúlkan sagði konunni að hún væri komin á nýtt tímabil og þess vegna væru lyfin svona dýr. Konan sagðist ekki eiga næga peninga og gekk hún hokin út án lyfjanna sinna. Því miður er staða þessarar konu eins og fjölmargra Íslendinga árið 2015. Flóttafólk Velferðarráðherra er snortinn þessa daga vegna flóttafólks en ekki vegna landa sinna sem vegna öldrunar eða heilsuleysis búa við neyð eins og dæmi að framan sýna. Þessi velferðarráðherra þekkir ekki til stöðu samlanda sinna. Velferðarráðherra talar fyr- ir því að flytja inn fjölda flótta- manna frá m.a. Sýrlandi. Hvernig er aðstaða okkar til þess að taka við þessu flóttafólki? Verður þeim boðið upp á sama aðbúnað og sömu kjör og aldraðir og öryrkjar þurfa að búa við á Íslandi í dag? Hvernig verður svarið í huga þín- um lesandi? Velferðarráðherra kom fram í sjónvarpi og tjáði landsmönnum að það væri ekki vandamál að taka við nokkrum fjölda flóttafólks, „við værum með besta heilbrigðiskerfi í heimi“. Velferðarráðherra er ekki meðvit- aður um ástand heilbrigðiskerf- isins sem berst í bökkum, komið að fótum fram. Auðvitað vilja Ís- lendingar sýna manngæsku, til þess að það sé hægt þurfa innviðir þjóðfélagsins að vera í lagi. Til að veita aðstoð út fyrir landið þarf fyrst að huga að okkar minnstu ís- lensku bræðrum og systrum. Þeg- ar staða þeirra er orðin góð þá er gott að veita hjálp af myndug- leika. Ráðstjórn velferðarráðherra Íslands Eftir Eðvarð Lárus Árnason Eðvarð Árnason »Hjarðmennska gríp- ur Íslendinga nú varðandi flóttafólk. Ber ekki fyrst að búa betur að okkar minnstu ís- lensku bræðrum og systrum? Höfundur er fyrrverandi yfirlögregluþjónn. Maður nokkur að nafni Jón Gnarr var með grein í Frétta- blaðinu fyrir skömmu og fann hjá sér hvöt til að gera lítið úr því þeg- ar menn tala um að eiga sér sína barnatrú, en ekki er gott að hafa ekki skilning á þeim huglægu (andlegu) málum eins og það get- ur verið mikils virði fyrir börnin að geta í fullri einlægni notið sinnar barnatrúar og kannski leyft góðum félaga að njóta hennar með sér. Það var ekkert út í hött að ein þekktustu ummæli Jesú Krists, höf- undar trúar okkar, eiga einmitt við barnatrúna svo einlæg sem hún er og frá innstu hjartarótum barnshugans, en lærisveinar hans höfðu verið að ræða trúmálin sín á milli og við hann, hann svaraði þeim og sagði „sann- arlega, sannarlega segi ég yður að nema þér snúið yður og verðið eins og börnin komist þér alls ekki inn í guðsríkið“. Ef við viljum skoða þessi ummæli þá er auðséð hvað Jesús er að tala um. Barninu er kennt í æsku um guð og engla hans og að guð sé það afl sem stjórni allri okkar tilveru og lífi og ef það lendi í hættu eða slæmum málum þá geti það snúið sér til guðs og beðið hann um hjálp í sínu vanda- máli og þá sendi guð því engil sinn og verndi það fyrir hættum daglegs lífs, barnið á sér þannig orðið sitt guðsríki í huga sínum. Og getur sótt sér hugg- un innra með sér, sem hlýtur að vera því sem einstaklingi ákaflega mikils virði og ekki ætti það að vera minna virði fyrir einstaklinginn í stórsjóum þeim sem kunna að mæta þeim á lífs- ins leið hvort sem hann er kominn af barnsaldri eður ei. Þannig að í raun þá er barnatrúin nokkuð sem til verður við fræðslu í huga barnsins, barninu huglægt eða andlegt og þá hafi það sinn einka- verndarengil sem passi það í dag- legum athöfnum og í einlægni sinni á barnið sér orðið sína mynd um guðs- ríkið í huga sér og getur þá leitað til síns innri manns í eigin huga eftir styrk þegar það verður fyrir áföllum á sinni daglegu vegferð um lífsins veg, viðkom- andi einstaklingur á sér þannig orðið trú á al- mættið í bernsku sinni og getur leitað styrks í trú þeirri sem það eign- aðist strax í æsku. Það barn sem lifir við það að eignast sína barnatrú getur hæg- lega átt sér sína trú fram eftir öllum aldri og allt fram á efri ár, og getur því sagt frá því í elli sinni að hann eða hún lifi við og eigi sér sína barnatrú, yndislegt og gott hugtak að eiga sér sína barnatrú fram á elliár sín að geta þá í fullri ein- lægni og trú talað við guð sinn hvar sem viðkomandi er staddur hverju sinni. Þannig að það er ekkert flókið við það að gamli maðurinn eða konan eigi sér sína barnatrú þrátt fyrir kannski háan aldur en viðkomandi getur samt vel átt sína einlægu trú á guð sinn og leitað styrks hjá honum þá stormar stríðir kunna að vera í fangið á lífsins braut. Þannig að drag þú ekki, Jón Gnarr, dár að barnatrú manna, hún kann að vera ein helgasta eign gamals manns og er honum hugsanlega ekki minna virði en barninu sem lærði það í æsku að eiga sér sína hugmynd og trú um guðsríkið í hjarta sínu og geta beðið guð um hjálp lendi það í háska. Gamla konan eða karlinn hafa þurft að gíma við margskonar áföll og sorgir í sínu lífi og kannski oft þurft að takast á við erfiðleikana í einveru sinni með blikandi tár á brá og þá hefur verið gott að eiga sér sína barnatrú heila og óskerta. Barnatrúin Eftir Hjálmar Magnússon » Það barn sem lifir við það að eignast sína barnatrú getur hæglega átt sér sína trú fram eftir öllum aldri. Hjálmar Magnússon Höfundur er áhugamaður um lífið og tilveruna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.