Morgunblaðið - 02.09.2015, Qupperneq 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2015
NÝLÖGUÐ HUMARSÚPA
Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 10.00 - 15.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686
LÚÐUSNEIÐAR
AÐEINS 1990 KR/KG
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim
GLÆNÝ
LÍNUÝSA
KLAUSTUR-
BLEIKJA
Til að hressa uppá
Silvio Berlusconi,
þennan frægasta
stjórnmála mann Ítala
fyrr og síðar, ætla ég
að senda honum tvo ís-
lenska greiðsluseðla á
ítölsku vegna fasteign-
arláns til að kæta pilt.
Ekki mun af veita þar
sem hann daufur og
uppgefinn er nýkom-
inn úr samfélagsþjónustu. Þar sem
Silvio er talinn tengdur ítölsku
mafíunni eða mömmu Mafíu er
hann ákaflega reyndur maður og
þekkir manna best hið spillta og
ógegnsæja dásemdarland Ítalíu.
Munu greiðsluseðlarnir gleðja Silvio
og félaga þegar hann uppgötvar að
ítalska mafían er bara barnaleikur
miðað við hina íslensku mömmu
Mafíu, þegar hann uppgötvar að
höfuðstóll íslenskra lána hækkar við
hver mánaðamót og hin mánaðar-
lega innborgun sömuleiðis eftir ein-
hverri reikniformúlu sem hann í
sínum villtustu draumum hefði aldr-
ei látið sig dreyma um að væri
möguleg.
En svo þegar Silvio uppgötvar að
óskapnaðurinn er reiknaður út af
ríkisstofnun sem heitir Reiknistofn-
un bankanna þá hellir hann tvöföldu
í glasið.
Þetta virkilega kætir Silvio, ekki
vegna þess að hann láti sig dreyma
um að lögleiða slíka opinbera rán-
yrkju í gegnum ítalska þingið, hann
veit að við slíka tilraun myndi hann
vera hafður að hlátursefni út lífið
hjá ítölskum þingheimi, heldur til
að létta á samviskunni og geta sagt
við strákana: sjáiði
piltar, við getum hér
eftir alveg sofið rólega
því miðað við hina ís-
lensku mömmu M er-
um við algerir vesa-
lingar.
Sorglegt að mestu
okurvextir í heimi
skulu vera íslenskir og
verndaðir af þinginu.
Og er það ekki aðal-
ástæðan fyrir því að
þetta brjálaða fyr-
irkomulag hefur aldrei
verið endurskoðað.
Auðvitað, því svo áttuðu menn sig
á því hvað þetta var og er einföld og
snjöll leið til að þyngja skuldaklaf-
ann og pyngjuna.
Alþingi lögleiddi hina dæmalausu
vitleysu á sínum tíma og Alþingi
verður sömuleiðis að afnema hana.
Öngþveiti og okurvextir hafa
lengi einkennt íslenskan húsnæð-
ismarkað. Hefur ástandið aldrei
verið verra en nú ef frá eru talin ár-
in eftir stríðið þegar fólk m.a. bjó í
óupphituðum kjallarakytrum, músa-
bröggum og kartöfluskúrum.
Nú, eins og svo oft áður, er fólk á
öllum aldri að flýja Ísland. Það get-
ur ekki leigt vegna húsaleiguokurs,
það getur heldur ekki keypt vegna
mjög svo óheilbrigðs lánamarkaðar
þar sem verðtrygging og vaxtaokur
ráða ríkjum.
Fyrst að lána fólki peninga og
síðan að bjóða upp ofan af því.
Stjórnvöld á Íslandi hafa löngum
forðast að gera lífið mannsæmandi
fyrir venjulegt fólk í þessu landi
heldur dansað eftir vilja lánastofn-
ana og fjárfesta og er reyndar ótrú-
legt að forustusauðurinn í hópi
þeirra skuli vera þingmaður þar
sem hann hugsar um lítið annað en
sjálfan sig.
Er það ekki svo að asnarnir tveir
sem draga ríkisstjórnarkerruna eru
ekki þeir sömu huldumenn sem
halda í taumana?
Fjármálaráðherra núverandi
sagði fyrir tveimur árum að skuldir
heimilanna væru alltof miklar. Satt
og rétt.
En af hverju gerir maðurinn þá
ekkert í málinu, t.d. með að fjar-
lægja eitraða æxlið,verðtrygg-
inguna, og er ekki bráðnauðsynlegt
einmitt nú að setja hatt eða t.d. 4%
hámark á hana til öryggis fyrir
heimilin í landinu?
Forsætisráðherra hefur lýst því
yfir að það væri ekkert mál að fjar-
lægja meinið og lofaði því reyndar
fyrir síðustu kosningar að fjarlægja
verðtrygginguna. Bæði hann og ein
mesta málpípa Framsóknarflokks-
ins, Eygló Harðardóttir, beittu
þessu agni fyrir síðustu kosningar
og uppskáru en sviku síðan.
Það þykir vel rekinn banki t.d. í
Svíþjóð ef hann skilar 5-6% hagnaði
á ári.
Íslensku bankarnir skila um 20%
í hagnað á ári. Er ekki rányrkjan á
fólkinu augljós?
Í Kanada lánar banki 215 þúsund
dollara til húsakaupa til 20 ára.
Lánstími er ekki lengri.
Á þessum 20 árum borgar lántaki
95 þús dollara í vexti sem eru 2,7%.
Þetta lán er jafngreiðslulán og er
mánaðarleg afborgun sú sama allan
tímann, um 850 dollarar á mánuði.
Kanadísku bankarnir eru taldir
þeir best reknu beggja vegna Atl-
antshafsins. Svipaða reynslu hef ég
frá Svíþjóð.
Erlendir bankar kappkosta að
vinna með fólkinu, lána því peninga
með sanngjörnum vöxtum svo að
hvorki greiðandi né bankinn lendi í
erfiðleikum.
Heilbrigt þjóðfélag
En á Íslandi er þessu öfugt farið.
Hér í þessu guðlausa landi er með
stuðningi Alþingis reynt að merg-
sjúga hin íslensku heimili í gegnum
verðtrygginguna til síðasta blóð-
dropa. Uppboð og landflótti eru að-
alsmerki íslenskar stjórnsýslu.
Íslenskir þingmenn og ríkisstjórn
ættu að skammast sín vegna sinnu-
leysis gagnvart heimilunum.
Greiðsluseðlar verða einnig send-
ir til BBC, CNN og hins þýska
Burkner.
Mamma Mafía
Eftir Jóhann L.
Helgason » Sorglegt að mestu
okurvextir í heimi
skulu vera íslenskir og
verndaðir af þinginu.
Jóhann L Helgason
Höfundur er húsasmíðameistari.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.—með morgunkaffinu