Þjóðmál - 01.12.2012, Side 28
Þjóðmál VETUR 2012 27
Siðrof — „Anomie“
Hugtakið siðrof var upphaflega sett fram af franska félagsfræðingnum
Émile Durkheim í riti hans um verka skipt-
ingu í samfélaginu, De la division du travail
social, sem kom út 1893 . Hann setti það
reyndar einnig fram í öðru samhengi í riti
sínu um sjálfsvíg, Le Suicide, sem kom út
1897 . Þar fjallar Durkheim um mismun-
andi tíðni sjálfsvíga eftir kirkjudeildum og
vísar þar til þess að siðbreytingunni fylgdi
upplausnarástand þar sem aldagömlum við-
horfum var hafnað án þess að í stað þeirra
kæmu heildstæð viðhorf og siðareglur, sem
hafa þó mótast frá siðbreytingunni til vorra
daga (Durkheim, 1952/1897) .
Þannig er siðrof hugtak sem vísar til •
upp lausnar samfélags þar sem sam-
heldni og hefð bundið skipulag, sér stak-
lega það sem tengist viðmiðum og gild-
um hefur veikst og við tekur lögleysa .
Siðrof vísar til þjóðfélagsástands er •
mynd ast þegar breytingar eru svo örar
og þjóð félagsástandið, sem kemur í
kjöl far ið, svo framandi að umgengnis-
hættir og gildi, sem almenningur hefur
alist upp við, glata samhenginu við
hinn félagslega veruleika .
Miklar þjóðfélagsbreytingar, hvort heldur
vegna mikillar velmegunar, sem skapast
af hagrænum orsökum, mikilli vinnu og
greiðum aðgangi að auðlindum, eða vegna
samdráttar í framleiðslu og verðfalls á
framleiðslu og eignum, geta leitt til ástands
þar sem lög og siðareglur eru ekki virt .
Almennt viðurkenndar umgengnisreglur
og venjur, norm, missa gildi og virðingu, og
þeim er ekki fylgt, án þess að neitt komi
í staðinn . Þetta leiðir til ástands þar sem
siðrof ræður ríkjum og umgengnisreglur
verða óljósar .
Höfundur telur stofnanalegt siðrof (e .
Institutional Anomie) verða þegar stofnanir
samfélagsins, þ .e . stjórnvöld, eftirlitsaðilar
og dómstólar, viðurkenna með beinum
eða óbeinum hætti grundvallarbreytingar á
lögskýringum, venjum og siðum, sem leiðir
til upplaunar í samfélagi .
Viðurkenning á grundvallarbreytingum
getur orðið á ýmsa vegu:
Með því að stofnanir beinlínis hafna •
göml um og viðteknum gildum og
venjum .
Með því að stofnanir samfélagsins •
niðurlægja og þagga niður í þeim
sem telja að nýir siðir og venjur leiði
til óæskilegrar hegðunar með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum fyrir heildina .
Með því að stofnanir viðurkenna nýjar •
Vilhjálmur Bjarnason
Siðrof og tímasetning þess