Þjóðmál - 01.12.2012, Page 43
42 Þjóðmál VETUR 2012
Ágúst Þór Árnason
Hvers er að vænta af
Feneyjanefndinni?
Á fundi stjórnskipunar- og eftir lits-nefnd ar Alþingis 15 . nóvember
2012 samþykkti meirihluti nefndarinnar
að leggja fram á Alþingi frumvarp til
stjórn arskipunarlaga .* Frumvarpið byggir
að mestu á tillögum sem stjórnlagaráð
afhenti Alþingi 29 . júlí 2011 en þó með
þeim breytingum sem hópur sérfræðinga
(„lagatækninefnd“) lagði til að gerðar yrðu
á tillögunum .** Í skilabréfi sérfræðinga -
hópsins er lögð áhersla á mikilvægi verk-
efn is ins og m .a . mælt með því að við
* Eftirtaldir þingmenn greiddu atkvæði með frum-
varpinu á fundinum: Álfheiður Ingadóttir, þingmaður
VG, Lúðvík Geirsson, þingmaður Samfylkingarinnar,
Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar,
Róbert Marshall, sem gekk nýverið til liðs við Bjarta
framtíð, Magnús Orri Schram, þingmaður Sam-
fylk ing ar innar, og Valgerður Bjarnadóttir, formaður
nefndar innar og þingmaður Samfylkingarinnar .
** Að beiðni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fól skrif-
stofa Alþingis þeim Guðmundi Alfreðssyni, prófessor
við Háskólann á Akureyri og Háskólann í Strass-
bourg, Hafsteini Þór Haukssyni, lektor við Háskóla
Íslands, Oddnýju Mjöll Arnardóttur, prófessor við
Háskóla Íslands, og Páli Þórhallssyni, skrifstofu stjóra
í for sætisráðuneytinu og sérfræðingi við Há skólann í
Reykjavík, að undirbúa frumvarp til nýrra stjórn skip-
un ar laga á grundvelli tillagna stjórnlagaráðs .
frekari með ferð málsins verði „leitað
álits hjá erlend um sérfræðingum og nær-
tækt [sé] að snúa sér til Feneyjanefndar
Evrópuráðsins .“*** Jafnframt er bent á
þá staðreynd að „[e]kki [hafi] farið fram
heildstætt og skipu lagt mat á áhrifum
stjórn ar skrár tillagn anna í heild“ . og að
„Það verkefni kall[i] á þverfaglega vinnu
sem hópnum var ekki falin .“****
Í ljósi alvarlegra og skilmerkilegra ábend-
inga sérfræðingahópsins hefði mátt ætla
að Alþingi færi þess á leit við íslenskar
fræðastofnanir og sérfræðinga að lögð væri
fram áætlun um vinnu við umrætt heild-
stætt mat áður en lengra yrði haldið . Í stað
þess ákvað Valgerður Bjarnadóttir, for-
mað ur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ar
Alþingis, að byrja á að leita eftir áliti Fen-
eyja nefndarinnar á frumvarpinu . Í bréfi
Valgerðar til Feneyjanefndarinnar frá 16 .
nóvember er óskað álits á þeim ákvæð um
*** Skilabréf sérfræðingahóps um tillögur stjórnlaga ráðs
að nýrri stjórnarskrá . Stjórnskipunar- og eftirlits nefnd
Alþingis, Reykjavík, 12 . nóvember 2012 . Bls . 1 .
**** Skilabréf sérfræðingahóps um tillögur stjórnlaga ráðs
að nýrri stjórnarskrá . Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Alþingis, Reykjavík, 12 . nóvember 2012 . Bls . 6 og 7 .