Þjóðmál - 01.12.2012, Page 72
Þjóðmál VETUR 2012 71
hörmu lega þróun er okkur Íslendingum
ekki alveg óviðkomandi, svo mjög sem við
stóðum í broddi fylkingar í Sameinuðu
þjóð unum um stofnun þjóðarheimilis Gyð-
inga í Palestínu . Leiðtogarnir Ben Gurion
og Golda Meir komu hingað í þakk lætis-
heimsókn . Bandaríkjaforseti leggur greini -
lega aðaláherslu á friðsamlega og spennu-
lausa sambúð Kína og grannríkja þess við
Kínahaf . Eftir endurkjörið fór Obama
að reka það erindi á leiðtogafundi Suð-
austur-Asíuríkja — ASEAN — í Kamb-
ód íu í október . Þá heimsótti hann einnig
Myanmar eða Burma og Thailand sem
bandamenn í viðleitni Bandaríkjanna til
að halda hernaðarjafnvægi í Asíu eftir 2014
þegar NATO-herir hverfa frá Afghanistan .
Annars stendur slagurinn hjá nýrri
Obama-stjórn um að ná tökum á ríkis-
fjármál un um . Draga verður stórlega úr
ríkis útgjöld um og hækka skatta, ef koma
á í veg fyrir svo harða kreppu, að í stað
hagvaxtar í Bandaríkjunum árið 2014
komi 5% samdráttur . Er þessu réttilega líkt
við að steypast fram af hengiflugi . Nú hefur
ríkisstjórnarflokkurinn, Demókratar, ekki
meirihluta í annarri þingdeildinni, þannig
að kollsteypunni verður ekki forðað nema
með samningum við Repúblikana, sem lítið
verður spáð um .
Einar Benediktsson
Varnarmál — ný viðhorf
Oft er stórt spurt á tímum óvissu en minna verður um góð svör . Grein-
ing ar flestra sérfræðinga, en ekki allra, gefa
til kynna að gjörbreytt staða heims mála sé í
nánd vegna mikilla tilfærslna efnahagsstyrks
og hernaðarmáttar vesturvelda til Kína . Hvað
verður þá um heimsveldisstöðu Bandaríkj-
anna? Svarið er vafalaust háð því hvort þeir
endurheimti eigin tiltrú og annarra sem á ár-
þúsundamótunum var í sögulegu hámarki;
þeir höfðu leitt kalda stríðið friðsamlega
til lykta . Eftir hryðjuverkaárásirnar á New
York og Washington 11 . september 2001
nutu Bandaríkin meiri almenns stuðnings
og samúðar í heimsbyggðinni en fyrr . En
þessi staða snerist í andhverfu sína við
stríðsaðgerðirnar í Írak og Afghan istan .
Mikið mannfall, eyðilegging og gífurlegur
stríðs kostnaður bætti við banka- og fjár-
mála hrunið . Bandaríkin höfðu glatað orðstír
sínum, sóað þjóðar auði og stór skuldsett sig
við Kína .
Söguþróunin gefur stórveldum engin
grið . Er sambúð Ísrael og hinna marghrjáðu
Palestínumanna óleysanlegt vandamál? Ís-
lend ingar sem aðrir gagnrýna Bandaríkin
harð lega fyrir að vopnavæða Ísrael . Þessi
_____________
Ritgerð þessi er byggð á fyrirlestri höfundar á
aðalfundi Varðbergs 22 . nóvember 2012 .