Þjóðmál - 01.12.2012, Page 77
76 Þjóðmál VETUR 2012
Nauðsynlegt er að að 3 . hefja þátttöku í
samskiptaferli ESB við Bandaríkin . Allar
viðræður og samráð varðandi efna hags-
og viðskiptatengsl Evrópu ríkja og
Bandaríkjanna eru í skipulagi sem mjög
er sinnt en nær einungis til ESB-aðila .
Önnur Evrópulönd eru utangarðs . Er
framtíðin fríverslun ESB og BNA?
Að fylgja eftir hagsmunum í þróun 4.
varnarsamvinnu ESB. Öryggis- og varn-
ar málastefnan (CSDP) í tengslum við
NATO kann að þróast svo að Banda-
ríkin dragi hernaðarstyrk úr Evrópu
og það hugsanlega alveg . Frakkar og
Bret ar eiga varnarsamstarf innan ESB
með St . Malo-samningnum . Væri ráð
að einhver önnur ríki gerist aðilar að
tví hliða varnarsamningnum við Banda-
ríkin frá 1951?
Að viðskipti við Kína séu í ESBferlum.5.
— Tvíhliða viðskipta samn ingur við
Kína hefur víst átt að heita í umræðu
um langt árabil . Ef slík samningsgerð
fæli í sér ívilnanir risaveldinu til handa
um landvistar- og atvinnuleyfi fyrir
kínverskt starfsfólk í örríkinu Íslandi,
yrði hún ekki til ávinnings heldur
beinlíns hættuleg . Sama á við um
ívilnanir til fjárfestinga og framkvæmda
sem á ekki að gera frjálsari heldur þvert
á móti að hafa undir eftirliti, svo sem
áður greinir .
Það er athyglisvert að Obama lét vandamál in við Kína ekki bíða eftir
endurkjörið og heimsótti Suðaustur-
Asíu í október . Áherslan á leiðtogafundi
ASEAN-ríkja í Kambódíu var að draga
skyldi úr spennu í deilum í Suður-
Kínahafi . Heimsóknir hans til Burma og
Thailands voru væntanlega vegna flutnings
varna og vígbúnaðar á Kyrrahafssvæðið .
Heildarstefnumörkun Bandaríkjanna fyrir
Norðurskautið hefur verið vanrækt og þeir
enn ekki fullgilt Hafréttarsáttmálann sem
Bush og Obama reyndu árangurslaust að
koma í verk við hina tregu öldungadeild
Bandaríkjaþings .
Að lokum þetta:
Öryggi Íslands hvílir mjög á samvinnu •
við Bandaríkin . Hlutverk okkar er að
skilgreina í Washington að á norður-
slóðum eigum við sameiginlega hags-
muni .
En hvað með almenningsálitið 2012? •
Hefur allur áróðurinn gegn NATO
og herliði í Keflavík haft þau áhrif að
hluti þjóðarinnar trúi að Ísland búi
við varanlegt, sjálfgefið öryggi? Engin
umræða er um varnarmál . Væri hún
ekki tímabær einmitt nú?
V ið brottför varnarliðsins varð strategiskt tómarúm
— power vacuum — á Norður-
Atlantshafssvæðinu . Ísland, í
fjarlægð frá öðrum, varð þar
með eina aðildarríki NATO
sem var ekki með neinar
fastar heimavarnir . Þessi staða
hefur væntanlega vakið áhuga
Kínverja um að koma sér fyrir
í strategískri framtíðarstöðu á
Íslandi . Ekki hafa þeir verið lattir
af stjórnvöldum við heimsókn
Wens forsætisráðherra í sumar
og komu ísbrjóts ins Xuelong .