Þjóðmál - 01.12.2012, Blaðsíða 83
82 Þjóðmál VETUR 2012
Bókadómar
_____________
Gunnar Þór Bjarnason: Upp með fánann! Mál
og menning, Reykjavík 2012, 343 bls .
Eftir Björn Bjarnason
Þegar spurt er í hópi manna sem almennt eru vel að sér um stjórnmála-
sögu Íslands: Um hvað snerust deilurnar
vegna uppkastsins 1908? er svarið: Var það
ekki um ríkisráðsfleyginn? Áður en ég las
bók Gunnars Þórs Bjarnasonar Upp með
fánann! hefði ég svarað á þennan hátt . Í bók
sinni dregur Gunnar Þór allt aðra mynd
af baráttunni um uppkastið en að hún
hafi snúist um ríkisráðsfleyginn svonefnda
það er hvort málefni Íslands skyldu borin
upp við konung í danska ríkisráðinu . Mun
meira var í húfi .
Nú á tímum berast stundum fregnir
af sögulegum ákvörðunum sem þjóðar-
leiðtogar taka þegar þeir hittast við útfarir .
Þá er andrúmsloftið oft annað en ef langur
aðdragandi er að formlegum leiðtogafundi .
Aðdragandinn einn kann að skerpa á
ágreiningsefnum og skapa spennu um
hvor eða hver hafi betur þegar til fundarins
kemur . Við jarðarfarir hafa menn tækifæri til
að stinga saman nefjum á annan hátt og án
þess að um sé að ræða aðrar skuldbindingar
en þær að ætla að taka eitthvað til athugunar
í kyrrþey .
Þegar heimastjórn kom til sögunnar á
Íslandi árið 1904 hafði Kristján níundi
konungur, sem kom hingað til lands
árið 1874 og afhenti Íslendingum fyrstu
stjórnarskrána, ráðið ríkjum í 40 ár . Hann
lést 29 . janúar 1906 . Fréttin um andlátið
barst í loftskeyti til Íslands . Hannes Hafstein
ráðherra brást strax til brottfarar og náði til
Kaupmannahafnar í tæka tíð fyrir útför
konungs . „Svo nálæg voru útlönd orðin,“
segir Gunnar Þór .
Friðrik áttundi tók við konungdæmi í
Danmörku, „sannkallaður Íslandsvinur“
sem kunni dálítið í íslensku . Hannes Haf-
stein hitti hinn nýkrýnda konung í ferð
sinni, „þeim varð strax vel til vina og
samskipti þeirra einkenndust alla tíð af
hlýju og gagnkvæmri virðingu“ . Hannes
stakk upp á því á fundi með konungi og
ráð herrum ríkisstjórnarinnar að skipuð yrði
nefnd til að semja ný lög um samband Dan-
merkur og Íslands sem kæmi í stað stöðu-
laganna frá árinu 1871 . Gunnar Þór segir:
„Tillaga Hannesar varð ekki útrædd að
sinni . En hugmyndin var fædd . Baráttuna
um uppkastið tveimur árum síðar má rekja
til Danmerkurferðar Íslandsráðherrans í
febrúar 1906 þegar hann, ásamt mörgu af
helsta fyrirfólki Evrópu, fylgdi Kristjáni
níunda til grafar og notaði tækifærið til
að minna danska ráðamenn á málefni
Íslands .“
Í bókinni Upp með fánann! er saga þessa
sögulega áfanga í samskiptum Íslendinga
og Dana rakin á einstaklega greinargóðan
Mikilvægt framlag til stjórnmálasögunnar