Skólavarðan - 01.11.2013, Blaðsíða 17

Skólavarðan - 01.11.2013, Blaðsíða 17
Skólavarðan 2. tbl 2013 15 mikið framfaraskref fyrir marga og kennara um allan heim þyrsti í að hafa samband, deila reynslu, spyrja spurn- inga og hjálpast að. STJórNUN SeM SaM- ViNNUVerKeFNi Frank hvetur stjórnendur til að taka áhættu. Stjórnandinn á ekki að sitja einn á toppnum, það er úrelt hugmynd að hans mati. Hann sagði að hlutverk leiðtoga 21. aldarinnar væri að leiða sitt fólk fram á við í breytingaferlinu, gefa starfsfólki aukið svigrúm og leyfa því að njóta sín. „Stjórnun á að vera sam- vinnuverkefni þar sem allir fá byr undir vængina, og hæfileika og sérþekkingu hvers og eins á að nýta til hins ýtrasta,“ sagði Frank. Ollie Bray, er landafræðikennari í fram- haldsskóla auk þess að vera fyrirlesari. Hann byrjaði á því að segja frá kynn- um sínum af Íslandi og Íslendingum. Hann hjólaði til dæmis um landið í sumar og tók myndir af skólum. Hann sýndi mynd af skóla úti á landi þar sem myndlist nemenda var stillt út í gluggum skólans. Hann sá þetta sem frábæra aðferð til að gefa nemendum, foreldrum, kennurum og samfélaginu öllu byr undir vængi, en það segir hann að sé eitt af meginhlutverkum skóla. HVerNig ÆTLUM Við að NOTa TÆKiN? Ollie fjallaði um netmiðla og samskipti, og hvernig og af hverju við eigum að nýta tæknina í þágu menntunar. Hann sagði að tækniþróun hefði nú orðið afgerandi áhrif á alla þætti tilverunnar. Hún stjórni því hvernig við verslum, leikum okkur, og umgöngumst fólk. Það væri helst í skólanum sem ljón væru á veginum og tefðu fyrir eðli- legri þróun tækni og framförum. Ollie sagði að algengustu mistök sem skólar gerðu væru að leggja háar fjárhæðir til tækjakaupa en gleyma að spyrja grundvallarspurningarinnar sem er: Hvernig ætlum við að nota tækin? að NOTa TÆKNiNa Á ÁByrgaN Og SKapaNDi HÁTT „Kennsla er og hefur alltaf verið erfitt starf,“ sagði Ollie. „Tækni gerir kennslu ekki auðveldari en hún gerir hana öðruvísi. Hún gefur tækifæri til að efla almennt læsi, talnalæsi og endurgjöf. Flestir nemendur eru vel tæknivæddir og því er líklegt að kennsla sem bygg- ist á tækni, að minnsta kosti að hluta til, sé líklegri til að höfða til þeirra en sú sem er það ekki”. Hann er þeirrar skoðunar að meginhlutverk kennara 21. aldarinnar sé að kenna nemendum ábyrga og skapandi notkun vefsins. Hann nefndi og sýndi nokkur dæmi um góðar og vel heppnaðar leiðir til þess og af nógu er að taka. Hann nefndi Google Earth, samskiptatækni á borð við Skype, Facebook og Twitter sem gera fólki kleift að ná sambandi og leita upplýsinga í grænum hvelli. Hann sýndi dæmi um nýja leið til að leita á Google með því að tala við tölv- una. Það er vel þess virði að fara inn á heimasíðu Ollies og kynna sér þann hafsjó af efni sem þar er að finna. Skólakrakkar í Skotlandi eiga rétt á því samkvæmt lögum að læra á hljóðfæri. Það er pólitísk stefna að nota tónlistar- menntun á markvissan hátt til að efla læsi, talnalæsi og almenna vellíðan barna þar í landi. Áhrifin eru talin vara áfram og verða til góðs í námi þeirra fram á fullorðinsár. Fjölmargar rann- sóknir renna stoðum undir þessa skoðun. Ollie sagði frá frá atviki á skoskri eyju þar sem einungis búa átta krakkar á skólaaldri. Þar var þrautin þyngri að koma til móts við þetta lagaákvæði. Gripið var til þess ráðs að kenna krökk- unum á hljóðfæri gegnum fjarkennslu- búnað og kennslumyndbönd, þannig að þau fengu hljóðfæratíma og aðra Ollie Bray : „Tækni gerir kennslu ekki auðveldari en hún gerir hana öðruvísi.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.