Skólavarðan - 01.11.2013, Blaðsíða 18

Skólavarðan - 01.11.2013, Blaðsíða 18
16 SKóLaVarðaN 2. tbl 2013 kennslu tengda tónlistinni hjá kennur- um sem voru víðs fjarri. Ýmsir hnökrar komu upp en kennararnir sniðu þá af og aðlöguðu aðferðir sínar tækninni. Og viti menn, það gerðist kraftaverk. Aðferðin svínvirkaði. Reynsla þeirra sem að tilrauninni komu var yfirfærð á fjarkennslu í öðrum fögum og þar með opnuðust nýjar gáttir. Kennslumynd- böndin eru til og aðgengileg öðrum, hvar sem er og hvenær sem er. Kenn- arar sem nýta þau ganga svo skrefinu lengra í kennslunni og gegna öðruvísi hlutverki en áður. Það er engum blöðum um það að fletta að Skotarnir tveir voru miklir aufúsu- gestir. Báðir bentu á að skapandi og gagnrýnin hugsun er besta veganestið sem unga kynslóðin fær með sér inn í framtíð sem við vitum ekki hvernig verður. Heillandi framkoma þeirra og eldmóður smitaði alla viðstadda og fjörlegar umræður urðu eftir erindin. Tæknin og þau undur sem hún hefur í för með sér er veruleiki sem allir skóla- menn þurfa að takast á við í daglegu starfi. Frank og Ollie segja að sú glíma sé ekki bara nauðsynleg heldur um- fram allt ákaflega spennandi og bjóði upp á tækifæri sem séu engin takmörk sett. Ráðstefnustjóri var Katrín Jakobsdóttir, alþingismaður og fyrrverandi mennta- og menningarmálaráðherra. Texti: Guðlaug Guðmundsdóttir. Myndir: Aðalbjörn Sigurðsson. SVONa TÍSTU SKóLaSTJórar Í LOK DagS: •   Tækin skipta ekki máli. Hvernig þau  verða notuð skiptir máli. •   Næsti dagur, dagur ígrundunar. •   Biðja þrjá nemendur í hverri viku að  segja frá því hvað þeir hafi lært í vikunni og hvaða máli kennarinn skipti í því efni. •   Gaman að sjá hvernig kennarar nýta spjöld í kennslu. •  Spjaldtölvur greinilega málið. •  Hmmm notaðar smarttöflur til sölu? •  Fyrsta skrefið í að kenna ábyrga notkun snjalltækja er að leyfa og ýta undir notkun þeirra i skólanum. •  Komum verkefnum nemenda á framfæri. •  gladdi okkur Dalvíkingana að sjá mynd af skólanum okkar í fyrirlestri Ollie Bray og myndir barnanna. •  Börn eiga að glíma við verkefni í skó- lanum sem eru áhugaverð og hafa merkingu fyrir þau, með aðferðum sem eru þeim eiginlegar. Katrín Jakobsdóttir stýrði ráðstefnunni.Fyrirlesararnir hrifu viðstadda. Gunnar Svanlaugsson og Vilborg Lilja Stefánsdóttir. Hlýr og þægilegur ullarfatnaður fyrir alla ölskylduna! Laugavegi 25 Reykjavík s. 552-7499 Hafnarstræti 101 Akureyri s. 461-3006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.