Skólavarðan - 01.11.2013, Blaðsíða 23
félagsmálfélagsmál
Á tímum margbreytileika og hraðrar
þróunar er sú krafa gerð til ein-
staklinga að þeir geti beitt skapandi
hugsun, notað ímyndunaraflið, miðlað
upplýsingum og unnið í samvinnu
við aðra. Alla þessa þætti þjálfar gott
listnám hvað best. Það skapar um-
hverfi og ferla sem örva vitsmunalegan
þroska einstaklingsins og stuðlar að
betra jafnvægi milli tilfinningalegs og
vitmunalegs þroska.
Það er margsannað að tónlistarnám
er mikilvægur þáttur í menntun barna
og ungmenna. Allir eiga rétt á tón-
listarnámi. Vönduð tónlistarkennsla vel
menntaðra sérfræðinga á því sviði er
forsenda þess að hið öfluga tónlistar-
líf og menning sem einkennt hefur ís-
lenskt samfélag megi halda áfram að
vaxa og dafna.
Stefnuskrá Félags tónlistarskóla-
kennara inniheldur okkar sýn á tón-
listarkennslu o gagnast til að koma
málefnum greinarinnar á framfæri.
Eftirfarandi eru nokkur atriði úr stefnu-
skránni en hana hefur félagið gefið út í
bæklingsformi.
Stefna Félags
tónlistarskólakennara
• Allir eiga rétt á tónlistarmenntun
óháð aldri, búsetu og efnahag.
Tónlistarmenntun þarf að vera
samfelld frá unga aldri og fram
á fullorðinsár. Tónlistarmenntun
á að vera kjarnanámsgrein í
menntun barna og ungmenna.
• Komið verði á tónlistarkenn-
aramenntun á meistarastigi við
Listaháskóla Íslands.
• Tónlistarskólar beiti sér fyrir efl-
ingu íslenskrar tónmenningar.
• Tónlistarskólar stuðli að öflugu
tónlistarlífi í landinu.
• Gera þarf starf tónlistarskólakenn-
ara eftirsóknarvert og tryggja að
kjör þeirra séu samanburðarhæf
við kjör annarra sérfræðinga sem
vinna sambærileg störf.
• Styrkja þarf undirstöður tónlistar-
skóla í þágu menntunar, menn-
ingar og samfélagsins alls með
nýjum lögum um tónlistarskóla.
Stefna FT er
útfærsla á sam-
eiginlegri skóla-
stefnu KÍ en
byggist þar að
auki á niður-
stöðum tveggja
alheimsráðstefna
um listfræðslu á vegum UNESCO: Veg-
vísi fyrir listfræðslu og Seoul Agenda,
Goals for the Development of Arts
Education, auk þess að vera unnin með
hliðsjón af Bonn yfirlýsingunni frá 2012
þar sem framangreindar niðurstöður
eru aðlagaðar að evrópskum veruleika.
Bæklingnum var dreift á svæðisþing-
um félagsins í haust, en hann er einnig
aðgengilegur í Kennarahúsinu og á
rafrænu formi á vef FT.
U15 myndvarpar eru frábær lausn til að fanga
hluti og koma þeim til skila í tölvu, skjávarpa
eða gagnvirkri töflu
Tengist USB og þarf ekki spennubreyti
Myndvarpar
Verð frá kr. 49.500.-
U15 tilboðsverð
kr. 49.500.-
Varmás - Skólavörur
Markholt 2, 270 Mosfellsbæ
Sími 566 8144