Skólavarðan - 01.11.2013, Page 18
16 SKóLaVarðaN 2. tbl 2013
kennslu tengda tónlistinni hjá kennur-
um sem voru víðs fjarri. Ýmsir hnökrar
komu upp en kennararnir sniðu þá af
og aðlöguðu aðferðir sínar tækninni.
Og viti menn, það gerðist kraftaverk.
Aðferðin svínvirkaði. Reynsla þeirra
sem að tilrauninni komu var yfirfærð á
fjarkennslu í öðrum fögum og þar með
opnuðust nýjar gáttir. Kennslumynd-
böndin eru til og aðgengileg öðrum,
hvar sem er og hvenær sem er. Kenn-
arar sem nýta þau ganga svo skrefinu
lengra í kennslunni og gegna öðruvísi
hlutverki en áður.
Það er engum blöðum um það að fletta
að Skotarnir tveir voru miklir aufúsu-
gestir. Báðir bentu á að skapandi og
gagnrýnin hugsun er besta veganestið
sem unga kynslóðin fær með sér inn
í framtíð sem við vitum ekki hvernig
verður. Heillandi framkoma þeirra og
eldmóður smitaði alla viðstadda og
fjörlegar umræður urðu eftir erindin.
Tæknin og þau undur sem hún hefur í
för með sér er veruleiki sem allir skóla-
menn þurfa að takast á við í daglegu
starfi. Frank og Ollie segja að sú glíma
sé ekki bara nauðsynleg heldur um-
fram allt ákaflega spennandi og bjóði
upp á tækifæri sem séu engin takmörk
sett.
Ráðstefnustjóri var Katrín Jakobsdóttir,
alþingismaður og fyrrverandi mennta-
og menningarmálaráðherra.
Texti: Guðlaug Guðmundsdóttir.
Myndir: Aðalbjörn Sigurðsson.
SVONa TÍSTU
SKóLaSTJórar Í LOK DagS:
• Tækin skipta ekki máli. Hvernig þau
verða notuð skiptir máli.
• Næsti dagur, dagur ígrundunar.
• Biðja þrjá nemendur í hverri viku að
segja frá því hvað þeir hafi lært í
vikunni og hvaða máli kennarinn
skipti í því efni.
• Gaman að sjá hvernig kennarar nýta
spjöld í kennslu.
• Spjaldtölvur greinilega málið.
• Hmmm notaðar smarttöflur til sölu?
• Fyrsta skrefið í að kenna ábyrga notkun
snjalltækja er að leyfa og ýta undir
notkun þeirra i skólanum.
• Komum verkefnum nemenda á
framfæri.
• gladdi okkur Dalvíkingana að sjá mynd
af skólanum okkar í fyrirlestri Ollie
Bray og myndir barnanna.
• Börn eiga að glíma við verkefni í skó-
lanum sem eru áhugaverð og hafa
merkingu fyrir þau, með aðferðum
sem eru þeim eiginlegar.
Katrín Jakobsdóttir stýrði ráðstefnunni.Fyrirlesararnir hrifu viðstadda. Gunnar Svanlaugsson
og Vilborg Lilja Stefánsdóttir.
Hlýr og þægilegur ullarfatnaður
fyrir alla ölskylduna!
Laugavegi 25
Reykjavík
s. 552-7499
Hafnarstræti 101
Akureyri
s. 461-3006