Skólavarðan - 01.11.2013, Qupperneq 19

Skólavarðan - 01.11.2013, Qupperneq 19
Skólavarðan 2. tbl 2013 17 ferðalögferð lög Formaður FSL Á Ferð Og FLUgi Félag stjórnenda leikskóla var stofnað árið 2010. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að félagsmenn séu félagið og þátttaka og virkni hvers og eins skipti öllu máli. Hlutverk þeirra sem eru kjörnir til trúnaðarstarfa er að vera þjónandi forysta fyrir heildina. Á samráðsfundi á vordögum 2013 var ákveðið að formaður og/eða fulltrúar stjórnar skyldu leggja land undir fót og heimsækja leikskóla á landsbyggðinni. Ákveðið var að leggja áherslu á að hitta félagsmenn sem þurfa að fara um langan veg til þess að taka þátt í starfi, og þá leikskóla sem ekki hafa verið heimsóttir áður. Tuttugu og fjórir leik- skólar á Akranesi, Austfjörðum, Reykja- nesi og í Borgarbyggð fengu formann sinn í heimsókn í sumar og frekari heimsóknir um landið eru í bígerð með hækkandi sól. SVONa gerUM Við Ferðalögin hafa reynst gefandi og fróðleg fyrir gesti og gestgjafa. Til þess að leyfa FSL félögum að fylgjast með hefur ferðasagan verið sögð í stuttu máli í félagsbréfum og keðjuskrifum hefur verið hrundið af stað undir vinnuheitinu Svona gerum við. Félags- konur í Þorlákshöfn og Vopnafirði riðu á vaðið og skrifuðu greinar sem birtar eru á vef FSL og lýstu því hvernig leik- skólarnir þeirra og sveitarfélögin hafa tekið höndum saman um það að fjölga leikskólakennurum með áhrifaríkum hætti. póLiTÍSKUr MeTNaðUr OpNar Fyrir TÆKiFÆri Íslenskir leikskólar byggjast á sam- eiginlegri sýn leikskólakennara um það hvernig leikskólastarf er best. Stéttin er aðeins einnar kynslóðar gömul og sömu kennarar hafa jafnvel kennt flest- um þeim sem nú starfa. Lög um leik- skóla og aðalnámskrá ná til allra leik- skóla og langflestir leikskólakennarar eru félagar í FL og FSL. Því mætti ætla að leikskólar landsins væru einsleitir en það er öðru nær. Fjölbreytnin í umhverfi og þjónustu er mjög mikil. Munur er á pólitískum metnaði fyrir innra starfi leikskól- anna milli sveitarfélaga, sem veitir mismunandi svigrúm til verka. LÆrDóMSSaMFÉLag LeiKSKóLaNS eFLiST Ánægjulegt er að heimsækja sveitar- félög sem hafa metnað til að styrkja sitt fólk til þess að mennta sig í leikskóla- kennarafræðum og það er magnað að heyra hvað fólk leggur á sig til að læra með vinnu. Suður með sjó hittum við leikskólastjóra sem byrjaði sem ófag- lærður starfsmaður í leikskólanum fyrir 16 árum og hefur síðan samþætt starf og nám og unnið sig upp innan leik- skólans þrep fyrir þrep og er nú í seinni hluta meistaranámsins. Það er frábært að sjá að það er raunhæfur möguleiki að samþætta starf og nám og afla sér menntunar með stuðningi rekstrar- aðila. Lærdómssamfélag leikskólans eflist og þar af leiðir að samfélagið allt nýtur góðs af. HJarTa BÆJariNS eða HOrNreKa Fjölbreytileikinn í umhverfi leik- skólanna er líka mikill, allt frá litlum sveitabæ í brekku þar sem bú barnanna er í moldarbarðinu fyrir ofan bæinn og að skólahúsnæði í litlum firði sem myndi sóma sér í hvaða stórborg sem er. Sums staðar er leikskólinn hjarta samfélagsins en því miður er hann á einstaka stað hornreka. Skemmtilegast af öllu er þó að upplifa á hverjum stað metnaðinn og stoltið fyrir leikskólastarfi óháð staðháttum og aðbúnaði, en starfsgleðin er eðli- lega mest þar sem stjórnendur njóta skilnings og virðingar yfirmanna sinna og samfélagsins. Texti: Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður Félags stjórnenda leikskóla. það er frábært að sjá að það er raunhæfur möguleiki að samþætta starf og nám og afla sér menntunar  með stuðningi rekstraraðila. Lærdómssamfélag leikskólans eflist og þar af leiðir að samfélagið  allt nýtur góðs af. Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður FSL.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.