Skólavarðan - 01.11.2013, Blaðsíða 29
viðtal
SKóLaVarðaN 2. tbl 2013
viðtal
27
Illugi Gunnarsson var fyrst kosinn á
þing árið 2007 fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Rúmum sex árum síðar, nánar tiltekið
23. maí síðastliðinn, tók hann við lykl-
unum að mennta- og menningarmála-
ráðuneytinu. Þar með er þessi fjörutíu
og sex ára kennarasonur frá Siglufirði
kominn í þá stöðu að geta haft veruleg
áhrif á það hvernig skólakerfið á Íslandi
þróast næstu misseri.
„Það er margt í skólakerfinu sem er
mjög vel gert og margt af því gæti
jafnvel talist vera til fyrirmyndar. Ég get
þar nefnt áhersluna á að huga meira
að líðan barna í skólum, en okkur hefur
þannig orðið mjög ágengt í baráttunni
gegn einelti sem skiptir gríðarlegu
máli. Við leggjum líka hæfni nemenda
til grundvallar í skólastarfinu því við
erum að búa börnin okkar undir þátt-
töku í samfélagi sem við vitum ekki
hvernig á eftir að verða, þar sem
tækni- og samfélagsbreytingarnar eru
svo hraðar. Því þarf að búa nemendur
undir að geta aðlagast breyttum að-
stæðum. Ég held að kennarar standi
sig mjög vel í störfum sínum og ég er
ekkert að ýkja þegar ég segi að margir
þeirra vinni afrek á hverjum degi. En á
sama tíma held ég að við höfum heil-
mikið svigrúm til að bæta okkur.
Of fáir leggja stund á verk- og iðnnám,
námsráðgjöf í grunnskólum mætti
vera betri og brottfall úr framhalds-
skólum þyrfti að vera minna. Og svo er
það niðurstaða PISA könnunarinnar frá
árinu 2009 sem sýndi að 25% drengja
og 9% stúlkna geta ekki lesið sér til
gagns við námslok í grunnskóla. Ég
held að allir geti verið sammála um
að þetta sé óásættanlegt. Að mínu
viti þarf að efla lestrarkennslu í grunn-
skólunum. Þar þarf að hafa sérstaklega
í huga að grunnskólinn er hið mikla
jöfnunartæki samfélagsins. Allir sem
útskrifast eiga að hafa sömu tækifæri
í lífinu, óháð efnahag foreldra o.s.frv.
En þá hljótum við að spyrja okkur, hver
eru tækifæri sextán ára unglings sem
getur ekki lesið sér til gagns?“
STyTTiNg NÁMS TiL
STúDeNTSpróFS
Illugi hefur frá því hann varð mennta-
og menningarmálaráðherra ítrekað
lagt áherslu á að stytta eigi nám til
stúdentsprófs. Það taki að jafnaði
fjórtán ár að klára stúdentsprófið hér á
landi en í öðrum löndum innan OECD
útskrifist nemendur eftir tólf eða þrett-
án ár. Hann boðar því breytingu.
„Þar hef ég beint sjónum mínum að
framhaldsskólanum og því að stytta
námið þar niður í þrjú ár. Það útilokar
hins vegar ekki styttingu á grunnskól-
anum en í því sambandi vil ég skoða
Viðtal við illuga gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra
Kjör kennara ekki
samkeppnishæf
Menntamálaráðherra telur gott starf unnið í skólakerfinu en vill
stytta nám til stúdentsprófs og leggja aukna áherslu á
lestrarkennslu í grunnskólum.
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra.
Ég held að það sé
mjög ríkur metnaður
hjá forystunni og
kennurum almennt
að skila sem bestu
starfi fyrir nemendur.
Mikilvægt
að efla virðingu
kennarastarfsins