Félagsbréf - 01.09.1963, Síða 25

Félagsbréf - 01.09.1963, Síða 25
.1. D. SALINGER JVú er veður fyrir bananajisk Á hótelinu vóru komnir níutíu og sjö auglýsingamenn frá New York og höfðu lagt undir sig landsímalínurnar svo rækilega, að stúlkan á 507 varð að bíða frá hádegi og framundir klukkan hálf-þrjú, áður en hún næði sambandi. Hún var samt ekki iðjulaus á meðan. Hún las grein í smábrotstímariti handa konum, „Kynferðislíf er leikur — eða kvalræði.“ Hún þvoði úr greiðu sinni og hárbursta. Hún náði bletti úr mó- leitri dragt, sem hún átti. Hún færði til tölu í blússu frá Saksverzlun. Hún sleit tvö hár úr móðurmerki sínu með töng. Loks hringdi símastúlkan, og þá sat hún á gluggabekknum og var að Ijúka við að lakka neglur vinstri handar. Þetta var stúlka, sem kippti sér ekki upp við símahringingu. Það var engu líkara en hún hefði búið við hringj- andi síma óslitið frá því að hún kom til gagns. Meðan síminn hélt áfram að hringja, strauk hún með litla lakkburstanum sín- um yfir nögl litla fingurs til að af- marka skýrar fénöglina. Síðan lét hún hettuna aftur á lakkflöskuna, stóð upp og veifaði þeirri hendinni, sem blaut var, þ.e.a.s. hinni vinstri, aftur og fram. Með þurru hendinni tók hún upp kýfðan öskubakka og bar hann yfir á náttborðið, þar sem síminn var. Hún settist á annað tvírúmið — og tók upp heyrnartólið. „Halló,“ sagði hún, en hélt frá sér vinstri hendi með útglenntri greip til að óhreinka ekki hvíta silkisloppinn, sem hún var í einum fata fyrir utan morgunskó. Hringar hennar vóru í baðherberginu. „Hérna er New York fyrir yður, frú Glass,“ sagði símastúlkan. „Þakk fyrir,“ sagði stúlkan og rýmdi til fyrir öskubakkann á nátt- borðinu. Konurödd kom úr símanum: „Ert það þú, Muriel?“ Stúlkan hnikaði símtólinu örlítið frá eyranu: „Já, mamma, Hvernig líður þér?“ sagði hún. „Ég var orðin dauðhrædd um þig. Af hverju hefurðu ekki hringt. Er nokkuð að þér?“ „Ég reyndi að ná í þig í gærkvöldi og líka í fyrrakvöld. Síminn hérna hefur verið. .. .“ „Er nokkuð að þér Muriel?“ Stúlkan víkkaði enn hornið milli eyrans og heyrnartólsins. „Mér Iíður FÉLAGSBRÉF 21

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.