Félagsbréf - 01.09.1963, Page 32

Félagsbréf - 01.09.1963, Page 32
þetta skýrir málið,“ sagði ungi maður- inn. Sybil sleppti fæti sínum: „Hefurðu lesið Sambó litla svarta?“ „Það er skrýtið, að þú skyldir spyrja mig um þetta,“ sagði hann, „það vill nefnilega svo til, að ég var að ljúka við að lesa bana í gærkvöldi. „Hann laut niður og tók hendi hennar til baka. „Hvernig fannst þér hún?“ sagði hann. „Hlupu tígrisdýrin allt í kringum tréð?“ „Ég liélt, að þau ætluðu aldrei að sto])]>a. Ég lief aldrei séð svona mörg tígrisdýr.“ „Það vóru bara sex.“ „Bara sex,“ sagði ungi maðurinn. „Kallarðu það bara.“ „Þykir þér gott vax? spurði Sybil. „Þykir mér hvað gott?“ „Vax.“ „Já, mjög gott. Finnst þér það ekki líka.“ Syhil kinkaði kolli. „Þykja þér góð- ar olífur?“ spurði hún. „Olífur, já. Olífur og vax. Get ekki án þess verið.“ „En án Sharon Lipschutz?“ spurði Sybil. „Nei, sannarlega ekki,“ sagði ungi maðurinn. „Og það sem mér líkar bezt í fari hennar, er þetta, að hún er aldrei vond við litla hunda í forsal hótelsins. Litla agnar bolabítinn til dæmis, sem frúin frá Kanada á. Þú trúir því lík- lega varla, en sumar litlar telpur hafa gaman af að pota í hann með blöðru- legg. En ekki Sharon. Hún er aldrei vond eða harðbrjósta. Þess vegna lík- ar mér svo vel við hana.“ Sybil þagði. „Mér finnst gott að tyggja kerti,“ sagði hún loks. „Já, og finnst það ekki öllum?“ sagði ungi maðurinn og bleytti fæt- urna. „Ú, hér er kalt.“ Hann kastaði gúmmíflekanum á flot uppíloft. „Nei, híddu aðeins, Sybil. Bíddu þangað til við erum komin svolítið utar.“ Þau óðu út, þangað til að sjórinn var farinn taka Syhil í mitti. Þá tók ungi maðurinn Sybil upp og lagði hana á magann á flekann. „Notarðu aldrei baðhúfu eða neitt þess konar?“ spurði liann. „Slepptu ekki,“ skipaði Sybil. „Þú verður að halda í mig.“ „Ungfrú Carpenter. Gerðu það fyrir mig. Ég kann mitt fag,“ sagði ungi maðurinn. „Haf þú bara gát með han- anafiski. i dag er einmitt veður fyrir bananafisk. „Ég sé engan,“ sagði Sybil. „Það er skiljanlegt. Lifnaðarhættir þeirra eru mjög sérkennilegir. Mjög sérkennilegir.“ Hann ýtti flekanum sífellt framar. Sjórinn tók honum tæp- lega í bringu. „Ævi þeirra er mjög hryggileg,“ sagði hann. „Veiztu hvað J)eir gera, Sybil?“ Hún hristi höfuðið. „Jú, þeir synda inn í holu, J)ar sem er mikið af banönum. Þeir eru ó- sköp venjulegir fiskar, þegar þeir synda inn. ^ín um leið og þeir eru komnir inn, fara þeir að liaga sér eins og verstu hákar. Hvað, ég veit um einstaka ban- anafiska sem hafa synt inn í banana- holu og etið allt upp í sjötíu og átta banana.“ Hann ýtti fleka og farþega eins og feti í átt til sjóndeildarhrings- 28 FÉLAGSBRÉF

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.