Félagsbréf - 01.09.1963, Page 34
veit ekki hvers vegna í fjandanum nokk-
ur ætti að vera að horfa á þá,“ sagði
ungi maðurinn. „Fimmtu hæð, takk.“
Hann tók herbergislykil sinn upp úr
vasa sínum.
Hann fór út úr á fimmtu hæð, gekk
inn ganginn og hleypti sér inn í her-
bergi 507. Það var lykt af nýjum kálf-
skinnstöskum og naglalakkseyði í her-
berginu.
Hann leit sem snöggvast á stúlkuna,
sem lá sofandi í öðru tvírúminu. Síðan
gekk hann yfir að einni töskunni, opn-
aði hana og tók upp, undan nær-
buxna og skyrtuhlaða, Ortgies marg-
hleypu, hlaupvídd 7.65. Hann dró út
skothvlkið, leit á það og stakk því inn
aftur. Hann spennti upp gikkinn. Síð-
an sneri hann yfir að því rúminu, sem
autt var og settist niður, leit á stúlk-
una, mundaði byssunni og hleypti kúlu
inn um hægra gagnauga sitt.
Kristján Karlsson þýddi.
30 FÉLAGSBRÉF