Félagsbréf - 01.09.1963, Side 53
kalla þetta aevintýri, þar sem höfundur
gefur rómantísku hugarflugi og ímynd-
unarafli lausan tauminn. Þættirnir
eiga lítið skylt við þá sálfræði og raun-
sæi sem mest setja mark á nútímabók-
menntir, höfundi er mest í mun að
segja fallega sögu á fallegan hátt. Sum-
ir þættirnir nálgast það að hafa á sér
þjóðsagnasnið og stíllinn er ljóðrænni
og safarikari en við eigum að venjasl
af nútímahöfundum sem rita laust mál.
Björn Blöndal segir frá mönnum og
dýrum. Mannamyndirnar eru allar ein-
faldar að gerð, skýrar og ljósar og höf-
undur er blessunarlega laus við alla
„móderne“ síkólógíu. Dýrin gegna
jafnmiklu hlutverki og mennirnir og
oft raunar aðalhlutverki. Ekki þori ég
að fullyrða að lýsingar á dýrum
í þessari bók standist vísindalega við-
bragðsfræði enda mun það hreint ekki
ætlun höfundar, þau eru fremur í ætt
við málleysingja þjóðsögunnar og
ævintýrisins, verða oft allt að því
mennsk. Ást höfundar á dýrunum leyn-
ir sér ekki, hann gæðir þau lífi og
blóði frá sjálfum sér. Honum er einnig
mjög sýnt um að gæða jörðina og nátt-
úruöflin sérstæðu seiðmagni sem fang-
ar hug lesandans, læki og mosató,
sviptibylji og skýjafar. Fátt er hvers-
dagslegt í þáttum Björns, margt er þar
af dularfullum uppruna og sveipað
kynlegum ljóma annars heims. Örlögin
aru sífellt vakandi, válegir fyrirboðar
skjóta upp kollinum, lögmál ævintýr-
isins ríkir.
Björn skrifar hreinan og tæran stíl
sem er borinn uppi af næmri málkennd
og frjóu orðfæri, jafnframt gætir hann
ítrustu nærfærni og smekkvísin bregst
varla. Honum tekst að gera hugarsýnir
sjálfs sín furðulega nærtækar og jarð-
neskar.
Það er fengur að bók eins og Lund-
inum helga og ég efast ekki um að
hver sem les hana verði ríkari eftir.
Höfundur leitar á slóðir sem fáir eða
engir rithöfundar íslenzkir hafa áður
troðið. Meðan starfsbræður hans þreyta
virðingarverða glímu við að kryfja nú-
tímann til mergjar, lýsa aldarandanum
og ráða gátur lífs og dauða, bylta um
þjóðfélaginu og leysa mannssálina upp
í frumparta, þá gengur Björn Blöndal
út í grænan haga, leikur einn á hjarð-
pípu sína og seiðir fram kynjaverur
úr heimi draums og ævintýris.
Jökull Jakobsson.
PlÚS X
og space-buddies
Halldór Laxness:
De islandske Sagaer og dre
Essays. I udvalg ved Erik Sö.iil'-r-
holm.
Gyldendal 1963.
I þessu bókarkorni er úrval, eða öllu
heldur sýnishorn, úr ritgerðum Hall-
dórs Laxness, ætlað dönskum lesend-
um; og seilist útgefandi að vonum til
FÉI.AGSBRÉF 49