Frón - 01.06.1944, Side 9

Frón - 01.06.1944, Side 9
Að yrkja á íslenzku 71 Verði blíða veðurs, víðir blómgi hlíðar, veiðist vel á miðum, vaxi gengdin laxa, glitri grund og flötur, grói tún og flói, neytist afl til nota, nýtist allt til hlítar! Af þessum átta ljóðlínum fengju aSeins tvær staðizt ef gert væri ráð fyrir fornum framburði á orðunum: »víðir blómgi hlíðar« og »vaxi gengdin Iaxa«. Að vísu er hér ekki um beina stælingu fornvísna að ræða, heldur er kveöiö á nútímamáli undir fornum hætti. En þó að tekin væru einhver fornyrtari dæmi frá siöari öldum yrði niðurstaðan víÖast eitthvað svipuð. MáliS er efniviður ljóSasmiSsins, og hljóSbreytingar þess hafa einatt í för meS sér umskipti á aSstöðu hans. PaS er t. d. auSsætt aS þegar gömlu stuttu samstöfurnar tognuSu og urSu jafnlangar hinum, var íslenzkum skáldum drjúgum auðveldara aS yrkja á eftir, því aS nú var hvorttveggja liSiS jafnhlutgengt, í staS þess aS áSur varS aS raSa eftir gildi. Um svipaS leyti jókst einnig svigrúm skáldanna á annan hátt viS þaS aS hljóSiS y hvarf úr málinu og rann saman viS i; eftir þaS var unnt að ríma saman fjölda orSa sem áSur voru sundurgreind aS hljóSi, svo sem lind og synd, skilja og hylja, ís og mýs, skína og sýna. Ef viS berum saman færeysku og íslenzku, sjáum við glöggt hvernig ýmislegur samruni hljóSanna hefur lagt færeyskum skáldum í hendur fjölda rímmöguleika sem íslendingar verða án aS vera. l3au geta rímaS breiða og eiga, herða og gera, tala og mæla, ær og garð. Eitt erindi í þjóSsöng Færeyinga hljóSar svo: Mítt foðiland tað er ei stórt sum onnur lond, men so væl hevur Gud tað gjort við síni hond, at alla tíð tað til sín dregur hjarta mítt, tí rúm tað best í Foroyum hevur at sláa frítt. Þetta þykir okkur viS fyrstu sýn slælega kveSiS. En þegar við vitum að ó í stórt er framboriS eins og ö, og aS g í dregur hefur breytzt í v, verSur augljóst aS kveðandi er hér lýtalaus. Samt öfunda ég Færeyinga ekki af þessum hljóðbreytingum, alveg eins og mér virSist þaS eitthvert mesta óhapp sem drifiS hefur á daga

x

Frón

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.