Frón - 01.06.1944, Blaðsíða 60
122
Orðabelgur
krónólógía sé; SigurSur hefur sjálfur búiS til orSiS. PaS þýSir
öskutímatal, og bókin hljóSar í stuttu máli um þá hugmynd
SigurSar aS skipta jarSsögu Islands í öskutimabil. Pegar grafiS
er í moldina á íslandi verSa hvervetna fyrir öskulög, sum þykk,
önnur þunn, sum djúpt, önnur grunnt, eftir mismunandi eldgos
úr ýmsum fjöllum: Heklu, Kötlu, öskju, Trölladyngjum og
mörgum öSrum þeirra nótum. Pessi lög má rekja meS rann-
sóknum, fylgja þeim um landiS, sjá hvar þeirra gætir mest og
hvar þau þynnast og enda. Allt virSist óreiSa í fyrstu, en smátt
og smátt mun myndin skýrast og atriSin skipast í rétta röS;
sum lögin verSa ákveSin meS fullri vissu: þetta er úr Heklugosinu
1693, þetta úr öskjugosinu 1875, þetta úr Kötlugosinu 1918.
Pannig hlotnast jarSfræSingnum viSmiSanir sem honum eru
dýrmætar. Sú saga sem hann Ies úr einhverju tilteknu jarSlagi
er ekki lengur timalaus; ef t. d. öskulagiS úr Heklu 1693 er
undir, en annaS úr sama fjalli 1766 ofan á, er tíminn þar meS
markaSur innan árafjölda skaplegrar mannsævi. PaS sem ísland
hefur fram yfir flest eldfjallalönd önnur er aS vænta má aS
árfesta megi mörg lögin meS tilstyrk gamalla frásagna um gosin.
Pegar náttúrufræSin kemur svo til og greinir lögin hvert frá öSru
eftir efnasamsetningu og öSrum séreinkennum, er von til aS
langt megi komast.
Ennþá eru þessar athuganir rétt aS hefjast. PaS var ætlun
SigurSar aS halda þeim áfram sumurin 1940 og 1941, en því varS
eigi viSkomiS sökum stríSsins. Hann hefur þá tekiS þann kostinn
aS tjalda því sem til var, og getur þó nú þegar lagt fram
merkilega niSurstöSu. Hann sýnir fram á aS »efra ljósa lagiS«,
sem kalIaS er á NorSurlandi, sé komiS úr Heklugosinu áriS 1300,
og aS þetta gos hafi eytt byggSina í Pjórsárdal. Frá þessu hefur
áSur veriS skýrt í Fróni í sérstakri grein um fornleifarannsóknir
þar í dalnum 1939. Ef þær rannsóknir hafa veriS SigurSi mikils
verSar, þá má ekki síSur vænta aS öskutímatal hans verSi
framvegis íslenzkri fornminjafræSi hinn mesti styrkur. PaS er
tvennt ólíkt aS finna hlut eSa rúst í jörSu milli tveggja árfestra
öskulaga eSa aS hafa ekkert viS aS stySjast um aldurinn annaS
en getgátur og líkur. Svona veitir hver fræSigreinin annarri
fulltingi.
Bók SigurSar er auSug aS frjósömum hugmyndum, hún bendir
á ýms viSfangsefni og stuSlar til aS undirbúa nánari rannsóknir.