Frón - 01.06.1944, Page 18

Frón - 01.06.1944, Page 18
80 Jón Helgason reglulega hljómfalli skorðaSri hátta sem eyrað er vanast, enda má segja aS hvorttveggja hafi til síns ágætis nokkuS. En Heusler er ekki myrkur í máli fremur en hans er vandi. Honum þykja stuSlahættirnir hafa yfir sér tignarbrag og aSalsmót sem hina skorti. Hann, þessi mikli orSsnillingur á þýzka tungu, finnur ekki önnur orS en íslenzk til aS lýsa þeim mismuni þeirra er fyrir sér vaki. StuSlahættirnir séu mikilmannlegir, hinir suSrænu rímhættir lítilmannlegir. Þessir »mikilmannlegu« hættir eddukvæSanna eru íslenzkum skáldum ennþá tiltækir. En næmleiki okkar á sérkenni þeirra hefur, eins og getiS var, ekki haldizt óspilltur meS öllu. ViS höfum lagt of mikla stund á sléttubönd og annan listiSnaS orSsins, mestu andstæSur fornháttanna sem hugsazt geta, þar sem hver samstafa má heita reyrS og njörvuS. Ef viS berum saman aSdáun Heuslers á fornháttum og Einars Benediktssonar á sléttuböndum, sjáum viS bezt hve gjörólíkum augum tveir stórgáfaSir menn geta litiS á kveSskap. FjaSurmagn stuSlanna, sjálf líftaug fornháttanna, hefur slaknaS í höndum síSari tíma skálda. ÞaS er t. d. föst regla í fornum skáldskap aS nafnorS eSa lýsingarorS í fyrra risi línunnar hlýtur aS bera stuSul. »HljóSs biS ek allar! helgar kindir« segir skáldiS, en t. d. »HljóSs biS ek allar | ýta kindir« væri aS stuðla- setningu til einsdæmi í fornu kvæSi. ÁstæSan er auSvitaS ekki sú, aS fornskáld hafi lært þessa reglu málfræSilega og veriS sérstaklega slyng aS þekkja sundur partá ræSunnar, heldur aS þau stuSluSu eftir tilsögn eyrans um þunga orSanna, og þá hlutu nafnorS og lýsingarorS aS verSa atkvæSamest. Aftur á móti verSur einatt misbrestur á þessu hjá skáldum síSari alda. Hér eru þrjú dæmi eftir Bjarna Thorarensen þar sem reglan er brotin: 1. norðljósa brúskur 2. mundu það er guðs hjör 3. og lúin bein bylgjar á hjálmi. er við hjarta þér kemur. að beði lagt hafa. Og Sveinbjörn Egilsson, mestur smekkmaSur sinnar kynslóSar á íslenzkt orSfæri og bezt aS sér í fornu máli, hefur til aS stuSla þannig (í þýSingu sinni á OdysseifskvæSi); ok á hendur þeim En sjúkleik má Skjótt vér skunduðum, helltu vatni manngi forðast (IX 199) ok til skips rákum til handaþvottar sauði feitlagna þjónustumenn (I 53) fótum hraða (IX 227).

x

Frón

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.