Frón - 01.06.1944, Síða 63

Frón - 01.06.1944, Síða 63
Orðabelgur 125 Úr Stokkhólmsbréfi. Islendingur sem nýlega hefur flutzt til Stokkhólms frá megin- landi Evrópu skrifar ritstjóra Fróns meðal annars: »Ég hafSi gert mér vonir um að finna sterka þjóSlega strauma leggja um mann viS lestur íslenzkra blaSa og tímarita. AS því er snertir dagblöSin varS ég fyrir miklum vonbrigSum. Heildar- svipur þeirra er lítiS breyttur frá þvi sem áSur var, en frágangur allur og ritháttur hefir auSsjáanlega versnaS mikiS, og var þó varla á bætandi. Lélegastur virSist einmitt frágangur þeirra blaSa sem víSlesnust eru, og má furSulegt heita, aS almenningur skuli taka því mótmælalaust. 1’aS er ekki eingöngu þannig aS misvíxl á línum og aSrar prentvillur eru svo tíSar, aS stundum er eins og í hverri grein séu afbakaSar og lítt skiljanlegar setningar, heldur er rithátturinn oft svo lélegur, aS enginn »subeditor« mundi geta lagfært þær greinar svo vel aS þær yrSu læsilegar. Merkilegast er þó aS þeir blaSamenn sem hæst gjálfra um sambandsslit og sjálfstæSi, geta ekki skilaS frá sér blaSagrein á sæmilegri íslenzku. Menn þræta vikum og mánuSum saman um sambandsslitin og önnur formsatriSi, eins og heilsa einhvers manns væri mest undir því komin hvort hann gengi meS grænan hatt eSa brúnan, en færi ekki eftir eiginlegu likamlegu og andlegu atgervi hans. Hins vegar má finna ýmsa gleSilega menningarstrauma aS heiman og virSast þeir aSallega renna um farvegi »Bandalags íslenzkra listamanna« og tímaritsins »Helgafells«. Jafnvel í tónlist hefir gerzt sá merkisatburSur aS »JóhannesarguSspjalliS« eftir Bach hefir veriS flutt fjórum sinnum í Reykjavík meS íslenzkum texta, aS miklu leyti sungiS viS erindi úr Passírn sálmum Hallgríms Péturssonar. MeS lslendingum hér í Stokkhólmi er mikiS félagslíf, sem kunnugt er, enda fer þeim fjölgandi, rúmlega 100 landar kváSu vera staddir í SvíþjóS nú. Hin margumtalaSa »norræna sam- vinna« virSist hér annars mest koma fram í fyrirsögnum blaSa. Pekking og áhugi á íslenzkum málum auSsjáanlega í minnsta lagi. —« Frá Félagi íslenzkra stúdenta í Kaupmannahöfn. Á aSalfundi félagsins 25. febrúar þ á. var ný stjórn kosin, og er formaSur hennar GuSmundur Arnlaugsson cand. mag. Hér

x

Frón

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.