Víkurfréttir - 18.12.1986, Blaðsíða 37
VÍKUR-fréttir
JÓLABLAÐ
TIL ERU FRÆ
Rúnar Georgsson og Þórir Baldursson
saman á „instrumentar hljómplötu
Segja má að Rúnar Ge-
orgsson og Þórir Baldurs-
son hafi báðir verið undra-
börn á tónlistarsviðinu
þegar þeir kynntust í Kefla-
vík fyrir rúmum aldarfjórð-
ungi. Síðan hafa þeir náð
mjög langt í list sinni, er-
lendis sem innanlands, en
þótt leiðir þeirra hafi oft
legið saman, varð það ekki
fyrr en í október og nóvem-
ber sl. að þeir fóru í hljóð-
ver til að vinna sameigin-
lega að gerð hljómplötu,
þar sem þeir báðir koma
eingöngu við sögu. Ekki
þarf að fjölyrða um árang-
urinn, en platan er
nýkomin á markaðinn og
heitir TIL ERU FRÆ. Lag
með sama nafni (sem
Haukur Morthens gerði
vinsælt á sínum tíma) er
reyndar eina erlenda lagið á
plötunni, en alls eru lögin
tíu talsins. Meðal íslensku
laganna má nefna perlur
eins og VIKIVAKA Jóns
Múla Arnasonar, TONDE-
LEYÓ Sigfúsar Halldórs-
spnar, Ó ÞÚ og SÖNN
ÁST eftir Magnús Eiríks-
son, og NU ANDAR
SUÐRIÐ (Ég biðaðheilsa)
eftir Inga T. Lárusson.
Þarna er líka TALAÐ VIÐ
GLUGGANN eftir Bubba
Morthens og GAMLA
HUSIÐ, fallegt lag eftir
Þorgeir Ástvaldsson og
Bjartmar Guðlaugsson í
skemmtilegum búningi
þeirra Rúnars og Þóris, auk
tveggja nýrra laga eftir
Þóri. Þau heita BÆRINN
MINN og HVAR?
Þessi ljúfa og eigulega
plata er full af íslensku and-
rúmslofti og því vel til þess
fallin að senda vinum og
ættingjum erlendis, enda er
hún sterk landkynning.
Þetta er plata til að spila í
samkvæmum, t.d. um ára-
mótin eða einfaldlega til að
hlusta á aftur og aftur.
Rúnar Georgsson leikur á
saxófón og þverflautu, en
Þórir Baldursson á öll
önnur hljóðfæri, s.s. píanó,
bassa, trommur og hljóð-
gerfla. Þórir útsetti líka öll
lögin og annaðist hljóð-
blöndun, auk þess sem
hann er annar af framleið-
endum plötunnar ásamt
Rúnari Júlíussyni.
Platan var tekin upp í
Upptökuheimili Geim-
steins í Keflavík og var
pressuð í Alfa. Umslagið
utan um hana var prentað í
Prisma. Sveinbjörn Gunn-
arsson hannaði það og
Bjarni Jónsson tók ljós-
myndirnar sem prýða það.
Hljómplötuútgáfan Geim-
steinn gefur plötuna út.
Foreldrar, kennarar og nem-
endur Grunnskóla Njarðvíkur
áttu saman stund í skólanum
laugardsginn 6. des. sl. og var
tíminn notaður til föndurs.
Það var Foreldra- og kenn-
arafélag skólans sem stóð
að þessari uppákomu sem
tókst ákaflega vel og var fullt í
öllum kennslustofum skólans.
Sendum Suð-
urnesjamönnum
bestu jóla- og
nýársóskir, með þökk
fyrir samstarfið á árinu
sem er að líða.
Shell-stöðin, Fitjum
Fitjanesti
Tommaborgarar
Fitjanesti - bón- og þvottastöð
Sendum öllum íbúum
Gerðahrepps,
suo og öðrum
Suðurnesjamönnum
bestu jóla- og ngársóskir
Hreppsnefnd
Gerðahrepps
Sendum öllum íbúum
Miðneshrepps,
suo og öðrum
Suðurnesjamönnum
bestu jóla- og nýársóskir
Sueitarstjórn
Miðneshrepps