Víkurfréttir - 17.12.1987, Side 54
Skátar hjálpa
gömlum
konum
yfir götur
- segir Lárus Frans Guðmundsson,
ungur skátaforingi í Heiðabúum
mur<
jutm
Við komu Vigdísar forseta. Lárus til vinstri með fána.
Ljósm.: epj.
Skátafélagið Heiðabúar í
Keflavík varð 50 ára núna í
haust. Af því tilefni langaði
okkur að kynnast skátastarf-
inu aðeins nánar.
Útsendari Víkur-frétta
hafði upp á einum áhugasöm-
um skáta, sunnudag einn fyrir
skömmu, en þá var hann að
velta fyrir sér stærðfræðijöfn-
um fyrir próf daginn eftir.
Sá er hér um ræðir er Lárus
Frans Guðmundsson, til
heimilis að Nónvörðu 9 í
Keflavík. Lárus, eða Lalli,
eins og hann er kallaður, er
nýlega húinn að halda upp á
17. afmælisdaginn sinn, sem
var 11. desember.
Lalli liefur búið alla sína
tíð í Keflavík, utan sex fyrstu
ævidaga sína, sem hann varð
að eyða á fæðingardeild í
Reykjavík. En hvernig fékk
Lalli áhuga á skátastarfinu?
„Ég byrjaði í skátafélag-
inu Heiðabúum árið 1978.
Pabbi var í skátunum þegar
hann var yngri og sagði mér
margar sögur af starfinu. Til
dæmis þegar hann fór til Sví-
þjóðar. Svo voru það vinir
mínir sem plötuðu mig í
þetta.“
Nú hafa skátaflokkar hin
ýmsu nöfn. Hvað hét sá
flokkur sem þú byrjaðir í?
„Flokkurinn, sem ég byrj-
aði í, ber nafnið Ylfingar og
ég var tvö ár í þeim flokki.“
Hvað gera svo Ylfingar?
„Ylfingar, sem er karlkyns
og Ljósálfar, kvenkyns,
mæta á fundi einu sinni í
viku. Þar er sest niður og
sungið saman. Þar er þeirn
kenndur ýmis fróðleikur um
skátahreyfinguna og þéim
sagt hver stofnaði hana, en
það var, eins og allir eiga að
vita, Baden Powell. Þá eru
þeim kennd skátalögin,
skátaheitið og kjörorð skáta.
Þetta þurfa þau að kunna
utan að.
Við förum einnig í ferða-
lög. Höfum farið í tvö ferða-
lög til þessa með Ylfinga og
Ljósálfa, út á Stafnes og til
Reykjavíkur. I Reykjavík
fórum við í heimsókn til
bandalags skáta og frædd-
umst urn það. Þá fórurn við í
sund og til Vífils, en það er
skátafélag í Garðabæ. I bæði
skiptin keyrðu foreldrar
okkur.“
Hvað er þetta stór hópur í
dag?
„Ylfingar og Ljósálfar eru
40 hérna í Keflavík í dag.“
Nú eruð þið aðeins þrjú
sem hafið umsjón með þess-
um krökkum öllum. Hvernig
gengur að hafa stjórn á lýðn-
urn?
„Vanalega mæta um 35 á
fundina í hverri viku. Þaðeru
tvær stelpur með mér í þessu,
þær Sesselja G. Halldórs-
dóttir og Brynja Oddgeirs-
dóttir, og þær standa sig
alveg með ágætum. Það
gengur þokkalega að hafa
stjórn á öllu þessu fólki.
Auðvitað eru læti, það er
ekki hægt að búast við öðru,
með blöndu af strákum og
stelpum. Að sjálfsögðu koma
fyrir tilvik, þar sem allt fer úr
böndunum og ég vona að
foreldrar og aðrir sýni því
skilning og átti sig á því að
þetta er erfitt. Maður getur
auðvitað gert mistök. Maður
er mannlegur, a.m.k. vona
ég það. Hver krakki hefur
sinn persónuleika og þarf
ákveðna athygli.“
Ef við snúum okkur aftur
að þér. Eftir að þú hefur verið
Ylfingur í tvö ár, hvað tekur
þá við?
„Haustið sem ég geng í
skátana er ég nýliði og sum-
ardaginn fyrsta árið 1981
vígist ég sem skáti. Það hét
Áfangaskáti. Þegar maður
vígist þarna inn, þá tvístrast
strákar og stelpur. Stelpurn-
ar fara í stelpnasveitenstrák-
arnir í drengjasveit. Fyrsta
Viö óskum landsmönnum gleðilegra jóla,
árs og friöar og þökkum samstarfiö
á árinu sem er aö líða.
BMinnBiiinFtinc Isuwk
Umboðsskrifstofa - Hafnargötu 58 - Keflavík