Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2015, Side 16
hugleiða hvað það raunverulega
er við jólin sem gerir okkur sjálf
og aðra fjölskyldumeðlimi ham-
ingjusöm.“
Að létta álagið í vinnunni getur
verið flóknara, enda þarf jú að
vinna verkin. „En hvernig væri að
leyfa dögunum þá að vera á léttu
nótunum, og gera eitthvað skemmti-
legt til að veita smá tilbreytingu og
frí frá streðinu? Mikið er að gera
en alveg óhætt að allir gefi sér
smátíma s.s. til að halda litlu jólin
fyrir starfsmannahópinn, eða fá
jólasvein í heimsókn. Smá léttleiki
og jólagalsi ætti bara að verða til
þess að fólk vinnur betur.“
Bendir Ólafur líka á að stundum
Jólin eiga að vera tími gleði oghlýju. Desember vill samt stund-um breytast í mikið streitu-
tímabil og jólahamingjan á það
til að falla í skuggann af miklum
önnum bæði heima fyrir og í
vinnunni.
Ólafur Kári Júlíusson er vinnu-
sálfræðingur hjá Vinnuvernd og
segir hann að oft komi á hans borð
erfið vinnustaðamál á þessum tíma
árs. „Mál sem hafa kannski lengi
legið kyrr koma þá upp á yfirborð-
ið. Það er eins og álagið í aðdrag-
anda jóla valdi því að kveikjuþráð-
urinn styttist.“
Enda eru margir aðframkomnir.
„Oft er fólk í bullandi yfirvinnu til
að „klára árið“ fyrir fyrirtækið, og
eftir erfiðan dag í vinnunni kemur
fólk heim þar sem þarf að skreyta,
baka, skrifa í jólakortin, kaupa
gjafirnar og helst að þrífa svo vel
að heimilið er nánast sótthreinsað.“
En hvað má til bragðs taka? Er
eitthvert gagn í
því að segja þeim
sem er að farast
úr jólastressi og
útkeyrður af vinnu
að slaka á? Ólafur
segir strax hjálpa
mikið ef fólk gefur
sér örlítið svigrúm
til að skipuleggja
bæði verkefnin í vinnunni og
heimafyrir. Það geri vinnuna við-
ráðanlegri og geti hjálpað til að
dreifa álaginu betur ef skýrt liggur
fyrir hvað þarf að gera.
„En um leið er ágætt að staldra
við og spyrja hvers vegna þarf að
gera allt sem við teljum okkur
þurfa að klára áður en jólin
ganga í garð. Er þetta allt nauð-
synlegt? Höldum við að jólakött-
urinn komi og éti okkur ef jólin
verða ekki eins og í Disney-
mynd? Er kannski allt í lagi ef
það leynist lítill rykhnoðri bak við
sófann? Er öll yfirkeyrslan og
hlaupin hugsanlega að standa í
vegi fyrir því að við njótum
jólanna, og jafnvel að breyta tíma
gleði og samveru í andhverfu
sína? Okkur er öllum hollt að
geti fólk verið svo önnum kafið við
að reyna að eiga gleðileg jól, að
það nær ekki að vera til staðar í
augnablikinu. „Ef við ætlum okkur
stöðugt að reyna að líða á þennan
eða hinn veginn, og erum alltaf að
tékka á okkur sjálfum, þá er auð-
velt að missa af því sem er að ger-
ast í núinu, og jólin virðast kannski
vera misheppnuð þegar upp er
staðið því þau pössuðu ekki við
ákveðnar væntingar sem notaðar
voru sem mælistika. Upplifun okk-
ar af raunveruleikanum á stundum
ekkert skylt við raunveruleikann
sjálfan. Þess vegna þurfum við að
gæta þess hvar við setjum mæli-
stikuna fyrir „jólagleðina“.“
Það getur gerst ef fólk notar ákveðnar væntingar sem mælikvarða á gæði jólanna að illa gangi að njóta þeirra sem skyldi.
Morgunblaðið/G.Rúnar
ÞEGAR JÓLAUNDIRBÚNINGURINN SKEMMIR JÓLIN
Má ekki vera lítill rykhnoðri
bak við sófann?
ÞAÐ MÁ REYNA AÐ DRAGA ÚR ÁLAGINU MEÐ ÞVÍ AÐ
LEYFA LÉTTLEIKANUM AÐ KOMAST AÐ Í VINNUNNI. ER
LÍKA VEL ÞESS VIRÐI AÐ ENDURMETA HVAÐ ÞAÐ ER VIÐ
JÓLIN SEM VIRKILEGA GLEÐUR OG HVERJU MÁ SLEPPA.
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Ólafur Kári
Júlíusson
Heilsa og
hreyfing
Morgunblaðið/Ómar
Morgunblaðið/Golli
*Rannsókn sem gerð var á síðasta ári leiddií ljós að jólastressið nær hámarki hjábreskum konum um kl. 14:30 á Þorláks-messu. Rannsóknin, sem var ekki endilegahávísindaleg, leiddi í ljós að 8 af 10 mæðr-um sögðust gera „of mikið“ þegar þærundirbúa jólin og 67% upplifðu jóladag sem
streituvald.
Við suðupunkt á Þorláksmessu
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino
Jólaskeið ERNU 2015 og
servíettuhringur ársins
Verð 21.500,-
Verð 12.500,-
Silfurmunir og skartgripir síðan 1924
ERNA
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is
Í fyrsta sinn frá 1974
er jólaskeiðin
skreytt báðum megin.
Skeiðin er hönnuð af Ragnhildi Sif Reynisdóttur, gullsmið og hönnuði
og myndskreytt af Hildi Ingu Björnsdóttur, myndlistarmanni.
GULL- OG SILFURSMIÐJA