Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2015, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2015
Matur og drykkir
O
kkur langaði að vera með hálfgert míníjólaboð fyrir vini okkar
og eiga notalega kvöldstund,“ segir Íris Ágústsdóttir innan-
hússarkitekt sem ásamt eiginmanni sínum, matreiðslumann-
inum Ægi Friðrikssyni, bauð góðum vinum heim í sannkall-
aða hátíðarmáltíð. Á boðstólum var meðal annars síld og rúgbrauð í
forrétt, andalæri, girnilegt meðlæti og ekta „ris a l’amande“ í eftirrétt.
Þau hjón eru dugleg að bjóða heim þótt þau hafi í næg horn að líta en
þau opnuðu nýverið kaffihús á neðri hæð Gerðarsafns sem kallast Garð-
skálinn. Ægir er margverðlaunaður matreiðslumeistari og sér að sjálf-
sögðu um matreiðsluna en Íris tók þátt í hönnun staðarins. Á boðstólum
eru súpur, víðfræg súrdeigsbrauð Ægis, kökur og fleira. En að bjóða
heim þreytast þau aldrei á að gera.
„Okkur þykir þetta góð leið til að hitta vini okkar því við eigum þrjú
börn og það er ekki alltaf hlaupið að því að fá pössun. Hefðbundin kvöld-
verðarboð finnst okkur skemmtilegust með forréttum og tilheyrandi og
stundum leikum við okkur að ákveðnum þemum eins og indversku. Eitt
er víst að það verða alltaf að vera góðir eftirréttir enda gaman að para
saman gott rauðvín og ljúffenga eftirrétti,“ segir Íris.
Maturinn var ljúffengur eins og við var að búast og síldin kom mörgum
á óvart. „Síld er nokkuð sem margir af okkar kynslóð kunna ekki að
meta, það er oft eldri kynslóðin sem borðar hana frekar, en það kom
skemmtilega á óvart hvað það voru allir hrifnir af henni. Eftirrétturinn
var líka hrikalega góður.“
Íris segir það hafa verið þægilegt að mikið af matnum var hægt að
undirbúa fyrirfram. „Hrísgrjónarétturinn þarf hvort sem er að vera kald-
ur og það er frábært að vera ekki fastur inni í eldhúsinu og geta verið
frammi með gestunum.“
Borðið var með svolítið óvenjulegum jólaskreytingum svo sem gulum rós-
um sem komu þó sérlega vel út með grænu og hvítu.
SÍLD, ANDALÆRI OG MÖNDLUGRAUTUR
Síldin vakti
mikla lukku
Frá vinstri: Ragnheiður Ósk Jens-
dóttir, Sólveig Júlíana Guðmunds-
dóttir, Ólafur Helgi Kristjánsson, Íris
Ágústsdóttir, Ægir Friðriksson og
Sigurður Helgason.
HJÓNIN ÍRIS ÁGÚSTSDÓTTIR INNANHÚSSARKITEKT OG
ÆGIR FRIÐRIKSSON MATREIÐSLUMEISTARI BUÐU VINUM
HEIM Í SANNKALLAÐA HÁTÍÐARVEISLU.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
1 kg kryddsíld í bitum
200 g púðursykur
100 g dijon-sinnep
100 g grófkorna sinnep
200 g olía
1 msk. dill
1 tsk. fennelfræ, möluð
½ sítróna, börkur og safi
Takið síldina úr leginum og þerr-
ið. Setjið allt nema olíuna og síldina
í hrærivél og þeytið svo allt blandist
vel. Hellið þá olíunni saman við í
mjórri bunu og hafið vélina í gangi á
meðan svo hún blandist vel saman
við sinneps- og púðursykursblönd-
una. Smakkið til og blandið varlega
saman við síldarbitana og látið
standa í einn sólarhring áður en
síldin er borin fram.
Sinnepssíld
1 kg marineruð síld eða útvötnuð söltuð síld
250 ml vatn
250 ml appelsínusafi
250 g sykur
500 g lageredik, 4%
1 laukur, skorinn í sneiðar
1 rauðlaukur, skorinn í sneiðar
1 haus fennika, skorin í sneiðar
2 stk. appelsínur, börkurinn
1 msk. fennelfræ
1 tsk. svartur pipar, grófmalaður
3 stk. lárviðarlauf
1 tsk. garam masala
Skrælið börkinn af appelsínunni en
bara ysta lagið, ekki hvíta hlutann.
Skerið í þunna strimla og setjið í
pott ásamt öllu nema rauðlauknum.
Hitið að suðu og látið sjóða rólega í
15 mínútur, þá er rauðlauknum bætt út í og
slökkt undir, pottinum lokað og lögurinn kældur.
Þegar lögurinn er orðinn kaldur er honum hellt yfir
síldina og síldin látin standa í 3 daga í kæli áður en hún er
borin fram en a.m.k. í viku ef notast er við saltaða síld. Berið
síldina fram með góðu rúgbrauði, sýrðum rjóma og söxuðum lauk
eða vorlauk.
Fennel- og appelsínusíld
Ris a la mande
100 g grautargrjón
500 g mjólk
2 stk. vanillustangir
200 g hvítt súkkulaði
500 ml rjómi
100 g möndluflögur
söxuð frostþurrkuð kirsu-
ber og/eða kirsuberjasósa
Skerið vanillustangirnar eftir
endilöngu og skafið fræin úr.
Sjóðið grjónin í mjólkinni ásamt
vanillufræjunum. Eldið þar til
grauturinn er hæfilega þykkur.
Hellið heitum grautnum yfir
súkkulaðið og látið standa í skál í
2 mínútur svo súkkulaðið
bráðni. Þá er grjónablöndunni
blandað saman við út frá miðju
og smám saman er henni hellt
þannig að hún færist nær skál-
arbörmunum, þannig fæst gljá-
andi áferð.
Hellið rjómanum saman við
og kælið blönduna í minnst 2
klst.
Áður en grauturinn er borinn
fram er blandan sett í hrærivél
og þeytt þar til hún fer að
þykkna og verður loftkennd.
Blandið þá helmingnum af
möndlunum saman við og setjið
í skál. Skreytið með afganginum
af möndlunum og berið fram
með kirsuberjum og/eða kirsu-
berjasósu.