Morgunblaðið - 15.12.2015, Side 2

Morgunblaðið - 15.12.2015, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Nú þegar snjórinn er á undanhaldi í höfuðborginni, að minnsta kosti tíma- bundið, ættu erlendir ferðamenn að kætast. Hér spóka sig nokkrir í mið- bænum, heldur kuldalega klæddir, til í hvaða veðráttu sem er. Ferðamenn enn á ferli Morgunblaðið/Styrmir Kári Snjórinn á undanhaldi í höfuðborginni Þessi fallega mynd var send Morgunblaðinu af Herði Jónas- syni, Húsvíkingi. Hún var tekin við suðaustanvert Mývatn, horft til suðurs, þar sem volgt vatn vellur undan hrauninu í vatnið. Í fjarska bíða Bláfjall, vinstra megin, og Sellandafjall, hægra megin. Frosthörkur voru í Mývatnssveit yfir helgina eins og oft áður en þegar myndin var tekin var 18 stiga frost. Hörður segir að þótt kuldinn geti sannarlega orðið mikill í sveitinni sé það afar sjaldgæft að vatnið leggi, vegna hlýrra strauma vatnsins í gegnum hraunið, eins og sést. Ljósmynd/Hörður Jónasson Hlýir straumar úr iðrum landsins verma Mývatn Hitastigið í Mývatnssveit fór 18 stig niður fyrir frostmark á sunnudaginn Lögmaður tveggja albanskra fjöl- skyldna, sem ekki fengu hæli hér á landi og fluttar voru til síns heima í síðustu viku, hefur sótt um íslenskan ríkisborgararétt fyrir fólkið, alls um átta einstaklinga. Tvö börn í þessum fjölskyldum eiga við alvarleg veikindi að stríða. Unnur Brá Konráðsdóttir, formað- ur allsherjarnefndar Alþingis, segir að ekki hafi gefist tími til að fara yfir umsóknirnar. Hún er ásamt tveimur öðrum þingmönnum í undirnefnd allsherjarnefndar sem ætlað er að gera tillögu til nefndarinnar um hvaða einstaklingum eigi að veita ríkisborgararétt með lögum. Venjan er að Alþingi afgreiði slíkar tillögur tvisvar á ári. Unnur Brá segir að til- lagan verði lögð fram þannig að hægt verði að afgreiða hana fyrir þingfrest- un fyrir jól. Hún segir ekkert hægt að fullyrða um niðurstöðu Alþingis um málefni albönsku fjölskyldnanna. Skapar ekki fordæmi Meginreglan er sú að fólk sem sækir um ríkisborgararétt sé statt á landinu. Það á ekki við um albönsku fjölskyldurnar. Bobby Fischer skák- meistari og ómálga barn sem kom frá Indlandi eru undantekningar frá þessu. Unnur Brá óttast ekki að hugsanleg ákvörðun þingsins um að veita albönsku fjölskyldunum ríkis- borgararétt með þessum hætti skapi fordæmi fyrir aðra flóttamenn sem fá synjun hjá Útlendingastofnun. Hún bendir á að ríkisborgararétturinn sé ávallt veittur samkvæmt lögum frá Alþingi. Ef þingið telji að einhver mál séu svo sérstök að þau fari í þennan farveg, hafi það ekki fordæmisgildi. Innanríkisráðherra hefur óskað eftir því við forseta Alþingis að fá að flytja munnlega skýrslu um flótta- mannamálin. Vonast Ólöf Nordal til að það verði síðar í vikunni. helgi@mbl.is Fjallað um rík- isborgararétt  Sótt um ríkisborgararétt til Alþingis fyrir albönsku fjölskyldurnar Morgunblaðið/Ómar Alþingi Unnur Brá Konráðsdóttir er formaður allsherjarnefndar. „Þetta var mjög stuttur fundur og árangurslaus,“ sagði Gylfi Ingvars- son, talsmaður starfsmanna í Straumsvík, eftir samningafund vegna starfsmannadeilunnar sem haldinn var hjá ríkissáttasemjara í gær. Nýr fundur hefur ekki verið boðaður og býst Gylfi ekki við því að fundað verði aftur fyrr en eftir áramót. Gylfi sagði í kjölfar aflýsingar verkfalls 1. desember sl. að ítrekað hefði komið fram í viðræðunum að fulltrúar Rio Tinto Alcan vildu ekki gera sambærilega samninga og gerðir hafa verið við aðra launþega í landinu. Enn tekst ekki að semja í Straumsvík Óleyst Deilan heldur áfram í Straumsvík. Nafn karlmannsins sem lést í árekstri tveggja bifreiða á Suður- landsvegi á sunnudag er Árni Grétar Árnason. Hann var 81 árs að aldri, fæddur 23. júní árið 1934, til heimilis í Frumskógum 1, Hveragerði. Árni Grétar var einhleypur og lætur eftir sig einn uppkominn son. Ekki liggur nánar fyrir hver til- drög slyssins voru. Nafn manns- ins sem lést Innanríkisráðherra hefur óskað eftir skýringum Útlendingastofn- unar og Rauða kross Íslands á því hvernig staðið er að málum við brottvísun fólks sem ekki fær hæli hér á landi, sérstaklega með tilliti til barna. Kom þetta fram í svari við óundirbúinni fyrirspurn Katr- ínar Jakobsdóttur, formanns VG, um brottvísun tveggja albanskra fjölskyldna með tilliti til barna- sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Ólöf Nordal sagðist, eins og þing- heimur allur, þurfa að skilja það hvernig þessir hlutir ganga fyrir sig. Fyrirspurnin til Útlendinga- stofnunar lýtur sérstaklega að því hvort regluverkið nái utan um þennan tilgang og hvaða breyt- ingar þurfi að gera til að svo verði. Óskað eftir upplýsingum RÁÐHERRA UM MÁLEFNI ALBANSKRA FJÖLSKYLDNA Árekstrahrina var á höfuðborgar- svæðinu á fimmta tímanum í gær. Nokkrir árekstrar urðu á Höfða- bakka í Reykjavík og Gullinbrú. Einnig varð umferðaróhapp á Ný- býlavegi í Kópavogi um svipað leyti. Engin alvarleg meiðsl urðu í umferðaróhöppunum en nokkrir voru fluttir á sjúkrahús til skoð- unar. Fjöldi bifreiða sem urðu fyrir skemmdum í árekstrunum er ekki ljós að svo stöddu. Fjöldi árekstra á höfuðborgarsvæðinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.