Morgunblaðið - 15.12.2015, Blaðsíða 11
þegar kúlan og óróinn koma til okk-
ar. Auk þess er þetta vandaverk og
starfsmennirnir eru mjög meðvit-
aðir um það, þeir fara sér að engu
óðslega og vilja alls ekki brjóta kúl-
urnar,“ segir Valdís og Guðrún Ósk
sem stendur við hlið hennar og er í
óðaönn að pakka kúlunum grípur
þetta á lofti og bætir við ákveðin:
„Kúlan er brothætt og viðkvæm, við
þurfum að fara varlega með hana,
eins og hún sé litla barnið okkar.“
Sama vinna er við jólaóróann
og kærleikskúluna, það þarf að
brjóta alla kassana saman utan um
hann, klippa band og þræða í óró-
ann, binda hnút og setja bæklinga
með í kassann, en reyndar eru óró-
arnir færri, ekki „nema“ 2.500
stykki. Þó að óróinn sé ekki brot-
hættur, þá þarf að passa vel að hann
rispist ekki og að ekki komi á hann
fingraför. Fyrir vikið nota þau
hanska við pökkun bæði á kúlu og
óróa.
Heilmikið er um að vera
skemmtilegt á vinnustofunni í tilefni
jólanna, nýlega var þar jólamark-
aður og jólaball með hljómsveit og
framyndan var jólahugvekja.
Borðakonan Eva Peters sér um að klippa borðana fyrir kúlurnar. Hún hef-
ur klippt þúsundir borða. Hún leggur þá eftir borðinu til að mæla lengdina.
Mörg handtök Pökkun óróans. Fríða, Ari og Bubbi að störfum.
Bros Guðrún Ósk Ingvarsdóttir sér um að brjóta saman kassana en Ari Við-
ar Hróbjartsson sér um að hnýta hnúta á bandið sem Skyrgámur hangir í.
„Við þurfum að grand-
skoða hverja einustu
kúlu áður en hún fer í
kassa, athuga hvort
hún sé í lagi og hvort
nafn hönnuðarins sé í
sínum stað. Síðan þarf
að þræða rauðan borða
í hana og setja tvo
bæklinga með í hvern
kassa.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015
Kát Sigurður og Steinunn eftir að óróinn þeirra var hengdur á Óslóartréð.
Dýrð og dásemd!
Ég er kominn
að fremsta bænum í dalnum
Finn hvernig munnvatnið seytlar
Beint í skyrið beint í skyrið!
Skyr skyr skyr!
Hvítt allt er hvítt
Dýrð og dásemd!
ég er saddur
Veröldin er skyr
ég er Skyrgámur
allt til enda veraldarinnar.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
hefur staðið að útgáfu Kærleikskúl-
unnar frá árinu 2003 og eru kúlurnar
því orðnar þrettán. Ár hvert fær Kær-
leikskúlan nýtt útlit og er verkið í
höndum fremstu listamanna þjóðar-
innar. Landslag eftir Rögnu Róberts-
dóttur er nafn Kærleikskúlunnar árið
2015. Ragna segir um kúluna: „Verk-
ið kallast á við frumform jarðarinnar
og orkumynstur hennar, sköpunar-
og tortímingarkraftana og í raun það
sem mætti kalla lífskraftinn. Ég nota
sjálflýsandi plastagnirnar meðal ann-
ars sem tákn fyrir hin litríku íslensku
líparítfjöll og sláandi litadýrð þeirra
sem orsakast af háu steinefnamagni
og samspili þess við birtuna.“
Allur ágóði sölunnar af Kærleiks-
kúlunni rennur til starfsemi Reykja-
dals, sumar- og helgardvalar Styrkt-
arfélags lamaðra og fatlaðra.
Skyrgámur er tíundi óróinn í Jóla-
sveinaseríu Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra. Í seríunni fara saman ís-
lenskur menningararfur, íslensk
hönnun og ritsnilld ásamt mikils-
verðu málefni. Þau Steinunn Sigurð-
ardóttir hönnuður og Sigurður Páls-
son rithöfundur leggja félaginu lið í
ár og sameina krafta sína í túlkun á
Skyrgámi. Óróinn er gerður úr burst-
uðu stáli og fæst Steinunn við stálið
en Sigurður við orðin. Margir
fremstu hönnuðir og skáld Íslend-
inga hafa stutt félagið með túlkun
sinni á íslensku jólasveinunum og
fjölskyldu þeirra. Allur ágóði jólaóró-
ans rennur til Æfingastöðvarinnar,
en þar fer fram umfangsmesta
sjúkra- og iðjuþjálfun barna á land-
inu. Söluaðilar eru: Casa, Epal, Hafn-
arborg, Húsgagnahöllin, i8, Kokka,
Kraum, Listasafn Reykjavíkur, Litla
jólabúðin, Líf og list, Módern, Þjóð-
minjasafnið, Snúran, Blómaval,
Blóma- og gjafabúðin, Póley, Norska
húsið og Valrós.
Jólakúlan 2015 og jólaóróinn 2015
Ḱærleikskúlur Ragna með kúlurnar sínar sem geyma bláar og rauðar agnir.
Landslag í jólakúlunum núna
RÉTTARSTAÐA FYRIRTÆKJA
VIÐ RANNSÓKN MÁLA
Morgunverðarfundur á Grand Hótel Reykjavík
Fimmtudaginn 17. desember kl. 8.30-10
Frummælendur:
Helga Melkorka Óttarsdóttir, hrl.
Reimar Pétursson, hrl.
Una Særún Jóhannsdóttir, sérfræðingur hjá sænska samkeppniseftirlitinu
Viðbrögð:
Brynjar Níelsson, alþingismaður og varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Fundarstjóri: Marta Guðrún Blöndal, lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands.
Léttur morgunverður frá kl. 8.00
Vinsamlegast skráið þátttöku á www.vi.is