Morgunblaðið - 15.12.2015, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Húsnæðissamvinnufélagið Búseti
hyggst fjárfesta í íbúðarhúsnæði
fyrir samtals 15 milljarða á næstu
árum. Yfirstandandi uppbygging á
Smiðjuholtsreitnum í Holtunum í
Reykjavík er þá meðtalin.
Ef áform stjórnenda félagsins
um 10% vöxt og 1.270 íbúðir árið
2020 ganga eftir
gæti það verið
komið með 2.000
íbúðir árið 2025
og 3.000 íbúðir
árið 2030.
Gísli Örn
Bjarnhéðinsson,
framkvæmda-
stjóri Búseta,
segir félagið bíða
eftir því að frum-
varp um breyt-
ingar á lögum um húsnæðissam-
vinnufélög verði samþykkt fyrir jól.
Að því loknu muni félagið sækja
fjármögnun vegna frekari uppbygg-
ingar með skuldabréfaútgáfu.
Skili hagstæðari fjármögnun
Gísli Örn segir frumvarpið fela í
sér réttarbót fyrir félagsmenn og
skýra lagalegan rétt þeirra. Með
breytingunum muni búseturétt-
urinn erfast, réttaróvissu verða
eytt og eftirlit með stjórnun og
fjármálum húsnæðissamvinnufélaga
verða aukið. Það er mat Gísla Arn-
ar að þessar breytingar muni auð-
velda félaginu að sækja hagstæðari
fjármögnun. Það muni tryggja
lægri greiðslubyrði af undir-
liggjandi lánum sem muni skila sér
til búseturétthafa.
Eignir Búseta eru nú metnar á
um 21 milljarð króna og er eigin-
fjárhlutfallið um 28%. Hækkun
fasteignaverðs hefur styrkt eigin-
fjárhlutfallið. Félagið hefur sótt
verðtryggð lán til Íbúðalánasjóðs
en væntir þess að leita framvegis
einnig á almennan markað, enda
séu lánakjör sjóðsins ekki sam-
keppnishæf eins og sakir standa.
Með fyrirhugaðri fjárfestingu fer
verðmæti eignasafnsins í 36 millj-
arða. „Við viljum vaxa um 10-15% á
ári. Nú erum við með um 450 íbúðir
í pípunum. Þær dreifast yfir nokk-
ur ár. Vonandi koma um og yfir
100 íbúðir á markaðinn á hverju
ári, næstu fimm árin,“ segir Gísli
Örn.
Um 770 íbúðir eru í eignasafni
félagsins og eru þær á höfuð-
borgarsvæðinu og á Akranesi. Alls
204 íbúðir eru í byggingu á Smiðju-
holtsreitnum, milli Einholts og
Þverholts í Reykjavík, og 60 íbúðir
á Keilugranda eru í hönnun. Þá
áformar Búseti að byggja 52 íbúðir
í Suður-Mjódd, 20 íbúðir á Skógar-
vegi í Fossvogi, 18 íbúðir á Ísleifs-
götu í Úlfarsárdal og 4 íbúðir á
Laugarnesvegi. Samtals eru þetta
358 íbúðir, allar í Reykjavík.
Skoða Kirkjusandsreitinn
Gísli Örn segir Búseta jafnframt
eiga í viðræðum við Reykjavíkur-
borg um uppbyggingu á fleiri stöð-
um, þar með talið á Kirkjusands-
reitnum og í Úlfarsárdal.
Hann segir Búseta leggja
áherslu á að semja beint við verk-
taka – og í einhverjum tilfellum við
birgja – og þannig fækka milliliðum
við uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.
Sem fyrr segir gæti félagið verið
komið með 3.000 íbúðir árið 2030,
miðað við 10% vöxt á ári, og hækk-
ar sú tala auðvitað ef vöxturinn
verður 15% einhver árin.
Búseti stefnir á þúsundir íbúða
Búseti er með 450 nýjar íbúðir í pípunum Hyggst bæta við 100 íbúðum á ári Áforma 10-15%
vöxt á ári Gangi það eftir verður félagið með um 1.300 íbúðir 2020 og um 3.000 íbúðir árið 2030
Morgunblaðið/RAX
Horft úr Einholtinu Uppbygging Búseta á Smiðjuholtsreitnum er vel á veg komin. Alls 204 íbúðir verða á reitnum.
Íbúðirnar koma til afhendingar frá og með miðju næsta ári. Ofnasmiðjan var með starfsemi á reitnum á sínum tíma.
Teikning/Búseti/Sigríður Ólafsdóttir/Birt með leyfi
Laugarnesvegur Búseti undirbýr byggingu fjögurra íbúða á Laugar-
nesvegi í Reykjavík. Fjöldi fólks er á biðlista eftir íbúðum Búseta.
Teikning/Búseti/Hughrif ehf./Birt með leyfi
Úlfarsárdalur Hér má sjá hvernig innanrými verður í væntanlegum íbúðum
Búseta í Ísleifsgötu. Alls byggir Búseti 18 íbúðir í þessari götu í Reykjavík.
Gísli Örn
Bjarnhéðinsson
Frímerki sem hönnuð voru í tilefni
aldarafmælis íslenska fánans voru
færð forsætisráðuneytinu að gjöf
ásamt fánabókum í gær. Íslands-
póstur gaf frímerkin sem bera þjóð-
fánann út ásamt smáörk með frí-
merki sem sýnir fánanefndina frá
1913. Vilhjálmur Sigurðsson, for-
stöðumaður Frímerkjasölu Íslands-
pósts, og Hörður Lárusson, graf-
ískur hönnuður, færðu forsætis-
ráðuneytinu gjöfina en Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson forsætisráð-
herra veitti henni viðtöku.
Hörður hannaði bæði frímerkin
og fánabækurnar og var það hluti af
„Fánaverkefni“ sem hann sendi í
samkeppni um Hönnunarverðlaun
Íslands fyrir árið 2015. Verkefnið
Harðar var valið eitt af fimm fram-
úrskarandi verkefnum í forvali dóm-
nefndar, segir í frétt ráðuneytisins.
Frímerki Vilhjálmur Sigurðsson og Hörður Lárusson færðu Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni gjöfina í gær, f.v. Vilhjálmur, Sigmundur Davíð og Hörður.
Forsætisráðuneytinu
færð frímerki að gjöf
Tilefnið er aldarafmæli þjóðfánans
Þú gerir ekki
*samkvæmt dekkjaprófun
haustið 2014
Ipike W419Winter i'cept
Korna-
dekk
– Síðan 1941 –
Smiðjuvegi 68-72, Kóp Hjallahrauni 4, Hfj
Fitjabraut 12, Njarðvík Austurvegi 52, Selfossi
Skútuvogi 2, Rvk Sími 568 3080
betri kaup!
Áberandi gott
skv. FÍB*