Morgunblaðið - 15.12.2015, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015
Smáfræsarar &
brennipennar
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is | verzluninbrynja.is
Fræ
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16
ari 200 stk
Verð 15.425
s
Brennipenni
Verð 8.890
Fræsari lítill
Verð 9.980
Tilvalið
í jólapakka
handverksmannsins
Úrval af vönduðum brennipennum og smáfræsurum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Úlfarsfellið hefur þúsund andlit. Möguleikar göngu-
garpa þar eru endalausir og alltaf ber eitthvað nýtt fyrir
augu. Það þekki ég orðið þokkalega eftir 800 ferðir á
fjallið á fimm árum,“ segir Reynir Traustason. Tog-
araskipstjórinn að vestan, sem varð blaðamaður og rit-
stjóri, er nú kominn í nýtt hlutverk sem fararstjóri hjá
Ferðafélagi Íslands. Þar er með honum Ólafur Sveinsson
en saman hafa þeir klifið óteljandi fjöll á undanförnum
árum, bæði hér heima og erlendis.
Bakgrunnur Reynis og Ólafs í fjallamennsku er mjög
svipaður, báðir fóru þeir að stunda útiveru og göngur
þegar líkaminn fór að láta vita af sér. Það var í byrjun
2011 sem Reynir fór af stað, þá 140 kílóa maður í sleni og
hættumerkin og -ljós farin að blikka. Hreyfing var því
heillaráð og heimatökin hæg hjá Reyni sem býr í Mos-
fellsbænum og undir hlíðum Úlfarsfells. Fyrsta ferðin á
fjallið var strembin, sú næsta aðeins léttari og svo koll af
kolli. Eftir því sem þrekið jókst jókst áhuginn og brátt
tóku við göngur á Helgafell við Hafnarfjörð, Esjuna og
svo mætti áfram telja. Hápunkturinn er svo ganga á
Mont Blanc, sem er 4.808 metrar á hæð.
Fara á þægileg göngufjöll
Verkefni Ferðafélags Íslands sem þeir Reynir og Ólaf-
ur fara fyrir ber yfirskriftina Fyrsta skrefið þar sem
gengið er á fjöll tvisvar sinnum í viku. Verkefnið er hugs-
að fyrir þá sem vilja taka fyrstu skrefin í fjallgöngum.
Það verður fastur liður að arka alltaf á Úlfarsfellið síð-
degis á fimmtudögum, en svo önnur þægileg göngufjöll
um helgar: laugardag og sunnudag til skiptis.
„Verkefnið skiptist í tvö tímabil, vor og haust, og þeg-
ar árið er úti verða þátttakendur væntanlega orðnir
óstöðvandi göngugarpar. Það er annars að mörgu að
hyggja þegar fólk byrjar í fjallamennsku. Eitt er að
koma sér í form, en svo er mikilvægt líka að læra á landið
og aðstæður,“ segir Reynir sem bætir við að í fjallgöng-
unum verði með þeim Ólafi Auður Elva Kjartansdóttir
landfræðingur, þaulvanur fararstjóri hjá FÍ. Hún starfar
hjá Veðurstofu Íslands sem sérfræðingur á sviði snjó-
flóðavarna en þekkir vel til fleiri atriða sem snúa að
hættum í umhverfinu og að því leyti er þátttaka hennar í
starfinu mikilsverð. „Þetta verður mjög áhugavert,“ seg-
ir Reynir Traustason sem með Ólafi kynnir verkefni
Fyrstu skrefin á fundi í sal FÍ hinn 7. janúar næstkom-
andi kl. 20.
Fleiri skref í framhaldinu
„Mér finnst ánægjulegt þegar byrjendur í fjalla-
mennsku hafa samband til að leita ráða. Sumir hafa
fengið að vera í samfloti við okkur Ólaf. Einu sinni
hringdu í mig göngukonur sem voru villtar við topp
Baulu í Borgarfirði og leituðu ráða. Spurðu hver væri
besta leiðin niður sem ég gat leiðbeint þeim með í síman-
um, enda hafði ég farið þarna um ekki löngu áður. Svona
gæti ég haldið áfram. Æ fleiri uppgötva hvað fjallgöngur
eru frábært sport og góðar fyrir heilsuna, bæði líkam-
lega og andlega. Hugurinn tæmist og endurnýjast á
göngu. Því á fólk að taka fyrsta skrefið og fleiri í fram-
haldinu.“
Verða orðnir óstöðv-
andi göngugarpar
Fyrstu skrefin á Úlfarsfellið Blaðamaður í fararstjórn
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjallamaðurinn Eitt er að koma sér í form, en svo er
mikilvægt að læra á land og aðstæður,“ segir Reynir.
„Særifið er traustur bátur sem fer
vel með mannskap. Aðstaða og
búnaður á að stuðla að gæðum
aflans, en æ meiri kröfur eru nú
gerðar til þess hráefnis sem komið
er með að landi,“ segir Arnar Lax-
dal Jóhannsson skipstjóri en nýr
bátur, Særif SH 25, kom til heima-
hafnar í Rifi um helgina. Eigandi
bátsins og útgerð er Melnes hf.,
fyrirtæki sem er í eigu fjölskyldu
Arnars. Þar eru í aðalhlutverki for-
eldrar hans, þau Jóhann Rúnar
Kristinsson og Katrín Gísladóttir.
„Við áttum minni bát fyrir sem
við látum nú frá okkur. Fyrir lítið
fjölskyldufyrirtæki er þetta mikil
fjárfesting en þó óumflýjanleg þeg-
ar hugsað er til framtíðar. Við telj-
um okkur ráða vel við þetta, höfum
nægar aflaheimildir og erum að
fiska þetta 800-900 tonn á ári,“ seg-
ir Arnar Laxdal. Afla segir hann að
mestu leyti fara til vinnslustöðva
sem eru í föstum viðskiptum við út-
gerðina.
Særifið var smíðað 2012. Bát-
urinn var til skamms tíma gerður
út frá Bolungarvík og hét þá Hálf-
dán Einarsson ÍS. Þetta er 30
tonna og 15 metra langur bátur
sem er vel búinn öllum tækjum og
búnaði. Gert er út á línu og í gær-
dag voru Arnar og áhöfn hans út af
Öndverðanesi.
„Við sækjum því stíft á sjóinn,
eða eins og gefur. Tökum okkur
ekki pásu fyrr en þremur til fjórum
dögum fyrir jól,“ segir Arnar sem
hefur verið til sjós síðan hann var
unglingur. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Útgerðarfólk Hjónin Katrín Gísladóttir og Jóhann Rúnar Kristinson og
milli þeirra í stólnum er sonur þeirra, Arnar Laxdal, sem er skipstjóri,
Fjárfestingin
var óumflýjanleg
Nýtt Særif SH til heimahafnar í Rifi
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Bátur Særifið öslaði öldurnar við
Öndverðarnes á leiðinni í land.
Herkastalinn, gistiheimili Hjálp-
ræðishersins í Reykjavík, verður
settur á sölu á næstunni. Um er að
ræða 1.405,4 fermetra húsnæði við
Kirkjustræti 2 í Reykjavík. Aldar-
afmæli hússins nálgast.
Hjördís Kristinsdóttir, lautinant
hjá Hjálpræðishernum, staðfesti við
mbl.is að ákveðið hefði verið að setja
húsið á sölu, en vildi að öðru leyti
ekki tjá sig um málið. Samkvæmt
heimildum mbl.is var málið kynnt á
félagsfundi á sunnudaginn, en þar
kom meðal annars fram að húsið
væri að nálgast það að verða sjálf-
krafa friðað vegna aldurs. Gerist það
við 100 ára afmæli húsa samkvæmt
lögum um menningarminjar.
Íslandsdeild Hjálpræðishersins er
rekin sameiginlega með deildum í
Noregi og í Færeyjum. Samkvæmt
upplýsingum mbl.is frá fundinum
kom beiðni að utan frá yfirstjórninni
í Noregi um söluna, en húsið þarfn-
ast talsverðs viðhalds.
Húsið er sem fyrr segir 1.405,4
fermetrar og er fasteignamat þess
109 milljónir. Brunabótamat er aftur
á móti 352,45 milljónir.
Upphaflega var byggt svokallað
Scheelshús á þeim reit sem Herkast-
alinn stendur nú á. Árið 1844 var
nýtt húsnæði reist sem síðar varð
aðsetur Hjálpræðishersins. Hann
var síðar rifinn og núverandi hús
byggt árið 1916. thorsteinn@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Herkastalinn Gistiheimili Hjálpræðishersins var byggt árið 1916.
Herkastalinn seldur
Húsið verður 100 ára á næsta ári