Morgunblaðið - 15.12.2015, Qupperneq 23
23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015
Þóf á þingi Valgerður Gunnarsdóttir, þriðji varaforseti Alþingis, og starfsmenn þingsins hlýða á aðra umræðu um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem stóð enn í gær, sjötta daginn í röð.
Eggert
Öll norrænu ríkin
hafa mótað áætlanir
um markaðssetningu
eigin lands, en a vett-
vangi norræns sam-
starfs hefur einnig ver-
ið rætt um að vinna
saman að þessum mál-
um. Menn óttast að
rödd hvers lands verði
sífellt veikari í hávað-
anum á alþjóðavett-
vangi. Málið snýst ekki
aðeins um útflutningstækifæri og
þar með velmegun í hverju landi. Á
vettvangi stjórnmálanna hafa
Norðurlönd orðið fyrir áföllum á síð-
ustu árum. Finnar, Íslendingar og
Svíar biðu ósigur í kosningum til
mikilvægra nefnda hjá Sameinuðu
þjóðunum. Þrátt fyrir að norrænu
löndin raði sér í efstu sæti í ýmsum
alþjóðlegum könnunum virðist sem
ekki sé alls staðar litið á þau sem
góðar fyrirmyndir, eða þá að þau
eru hreinlega ekki nógu vel þekkt.
Norræna ráðherranefndin hefur
um áratuga skeið staðið fyrir ýms-
um sameiginlegum viðburðum á al-
þjóðavettvangi í því skyni að vekja
áhuga á Norðurlöndum. Nokkur af
nýjustu dæmunum eru herferðin Ný
norræn matargerðarlist, sem hefur
að markmiði að kveikja áhuga Norð-
urlandabúa sjálfra á eigin matar-
gerðarlist, en jafnframt að kynna
norræn hráefni á alþjóðavettvangi.
Menningarhátíðin Nordic Cool 2013
í Kennedy-listamiðstöðinni í Wash-
ington er annað dæmi um vel heppn-
að átak. Í því skyni að styrkja stöðu
Norðurlanda sem vörumerkis hafa
Norðurlandaráð og Norræna
ráðherranefndin tvinnað saman al-
mannatengsl, vöru-
merkjastjórnun og
menningarpólitík.
Norðurlönd hafa
verið töluvert í sviðs-
ljósinu á alþjóðavett-
vangi á síðustu árum.
Margir minnast þess
eflaust að tímaritið The
Economist lagði sér-
stakan blaðhluta undir
umfjöllun um norræna
líkanið í öðru tölublaði
sínu árið 2013. Í grein-
inni „The Nordic
Countries: The Next Supermodel“
segir að Vesturlönd ættu að taka
Norðurlönd til fyrirmyndar.
Í framhaldi af lofgjörð The Eco-
nomist gaf Michael Booth, sem er
Breti búsettur í Danmörku, út bók-
ina „Almost Nearly Perfect People:
The Truth About the Nordic
People“ (2014) þar sem hann tekur
fyrir hina sjálfumglöðu Norður-
landabúa. Booth er þreyttur á að
heyra um rétttrúnað í jafnréttismál-
um, rúgbrauð og mínímalíska hönn-
un sem helstu einkenni Norður-
landa. Í staðinn beinir hann sjónum
að áfengismisnotkun, sjálfsmorðum,
einsemd og fleiri vandamálum.
Látum gott heita að umheimurinn
líti oft á Norðurlönd sem eina heild,
en mótun sameiginlegs vörumerkis
þarf að hefjast á heimavelli. Hvernig
er sjálfsmynd okkar? Hversu nor-
ræn erum við í raun og veru?
Til þess að hægt sé að efla sam-
heldni landanna innbyrðis, sem er
forsenda þess að hægt sé að móta
sterkt vörumerki, þarf að vera til
sameiginlegur, norrænn umræðu-
vettvangur. Sum okkar fylgjast með
sjónvarpi grannlandanna og lesa
kannski norræn dagblöð á netinu, en
það er ekki til neinn sameiginlegur,
opinber umræðuvettvangur. Sænsk-
norski umræðuþátturinn Skavlan og
dansk-sænski spennuþátturinn Brú-
in eru góð byrjun, en meira þarf til.
Ríkissjónvarps- og útvarpsstöðv-
arnar gætu til dæmis í vissum til-
vikum verið með sameiginlega
fréttaritara í útlöndum. Hægt væri
að skiptast á norrænu sjónvarpsefni
í enn ríkari mæli en nú er gert. Og
til þess að efla samheldnina enn
meira þurfum við líka að verða betri
í tungumálum nágrannalandanna.
Þar þurfa allar þjóðirnar að taka til
hendinni. Danir þurfa að tala skýr-
ar, Svíar þurfa að leggja sig fram
um að skilja norsku og dönsku,
Norðmenn þurfa að forðast að tala
mállýskur þegar þeir ræða við aðra
Norðurlandabúa, Íslendinga þurfa
að læra dönskuna betur og Finn-
arnir þurfa að leggja sig fram við
sænskunámið.
Tungumála- og menningarsam-
starfið er það sem fólk utan Norð-
urlanda bendir oft á til að skýra
sterk tengsl landanna. Það var með-
al annars sú reynsla sem fékkst af
Nordic Cool, stærsta sameiginlega
kynningarverkefni Norðurlanda
fram að þessu.
Tungumála- og menningartengsl-
in eru líka meðal grunnstoða sam-
eiginlegs gildismats Norðurland-
anna. Bæði stjórnmálamenn og
almenningur vilja að íbúar landanna
geti skilið hverjir aðra. Að stuðn-
ingur komi úr báðum þessum áttum
er einstakt á alþjóðavísu og er sterk-
ur þáttur í alþjóðlegu vörumerki
Norðurlanda.
Velgengni norrænna kvikmynda,
popptónlistar og bókmennta sýnir
að eftirspurn er til staðar, jafnvel í
þeim tilvikum þar sem dreifingarað-
ilar hafa enga trú á því. Nýlega var
Norræni spilunarlistinn (Nordic
Playlist) kynntur til sögunnar, en
það er vefgátt þar sem safnað er
saman nýrri norrænni dægurlaga-
tónlist. Skapa þarf fleiri nýjar gáttir
af þessu tagi til að vörumerkið geti
vaxið og dafnað.
Í fótbolta, ísknattleik, handbolta
og í söngvakeppnum er það hörð
samkeppni sem gildir, en samstarfið
ætti að verða nánara á öðrum svið-
um samfélagsins þannig að Norð-
urlönd geti í raun orðið landamæra-
laus, til hagsbóta fyrir almenning,
samtök og fyrirtæki.
Við þurfum að segja nýja sögu af
Norðurlöndum þar sem þeir þættir
sem eru grundvöllur velgengninnar
koma skýrt fram og þar sem sköpuð
er ný, sameiginleg norræn framtíð.
En hvernig á að byggja upp þetta
vörumerki? Geta fimm lönd komið
sér saman um eina frásögn? Hvern-
ig yrði sú frásögn og hver á að ráða
ferðinni?
Það væri ólíkt einfaldara að ná
samkomulagi um sameiginlegt vöru-
merki ef öll norrænu löndin fimm
hefðu farið sömu leiðir hvað varðar
grundvallarþætti á borð við stefnu í
öryggismálum og samþættingu inn-
flytjenda.
Ef Norðurlönd væru með sameig-
inlegan gjaldmiðil og sameiginlega
lausn í varnarmálum væru þau
sterkari sem heild á alþjóðavett-
vangi. Eins og staðan er nú ganga
Norðurlönd ekki í takt á mikilvæg-
um samfélagssviðum og ekkert
bendir til þess að það breytist í bráð.
Hugmyndin um að heildstætt
bandalag Norðurlanda í ESB og
Atlantshafsbandalaginu er í dag
draumsýn ein og í ljósi þess að sam-
kennd Norðurlanda sækir kraft sinn
í grasrótina er óskynsamlegt að
óska eftir yfirbyggingu þar sem
valdið kemur að ofan. Að sjálfsögðu
þarf að virða fulltrúalýðræðið, eitt af
sterkustu gildum Norðurlanda.
Þá er sá kostur einn eftir að
byggja vörumerkið á mýkri gildum,
á Norðurlöndum sem „mjúku stór-
veldi“.
Hvað felst í því sem nú er oft
nefnt Norræna leiðin (The Nordic
Way)? Hún felst í sterkri samkeppn-
ishæfni samhliða félagslegu öryggi,
ókeypis menntun á öllum skólastig-
um, grænum vexti og sjálfbærri
orku, hagnýtri hönnun og svo fram-
vegis.
Svonefnd mjúk gildi geta verið að
minnsta kosti eins áhugaverð fyrir
umheiminn og svonefnd hörð gildi.
Þegar verið er að byggja upp vöru-
merki er gott að hafa í huga að vöru-
merkið á sér sjálfstæða tilveru óháð
gerðum handhafa þess.
Ef unnið er skipulega að eflingu
vörumerkis verður að byggja það á
haldbærum rökum og raunveruleg-
um gildum. Ekki er hægt að komast
hjá því að móttakendur upplifi vöru-
merkið á mismunandi hátt.
Eftir Henrik Wilén » Til að efla samheldni
Norðurlandabúa,
sem er forsenda þess að
Norðurlönd geti verið
sameiginlegt vöru-
merki, þarf sameig-
inlegan opinberan um-
ræðuvettvang.
Henrik Wilén
Höfundur er framkvæmdastjóri
Sambands Norrænu félaganna.
Norðurlönd sem alþjóðlegt vörumerki