Morgunblaðið - 15.12.2015, Síða 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015
Ég man daginn
15. desember fyrir
69 árum þegar lítil stúlka fædd-
ist heima hjá afa sínum og
ömmu á Ísafirði. Þessi litla snót
átti eftir að verða algjör gleði-
gjafi á heimili þeirra til nokk-
urra ára. Alltaf kát og létt á
fæti, með góða og jákvæða nær-
veru. Það er ánægjulegt að rifja
upp minningarnar af því þegar
hún fæddist, hvað allt lifnaði við
á heimilinu. Um leið og hún kom
í heiminn fór afinn að huga að
rúmi handa prinsessunni. Hann
var ávallt mjög ráðagóður enda
reynslan mikil hjá afa og ömmu
Herdísar eftir að hafa eignast 14
börn. Hann fór í Smjörlíkis-
Herdís
Harðardóttir
✝ Herdís Harð-ardóttir
(Heddý) fæddist 15.
desember 1946.
Hún lést 21. sept-
ember 2015.
Útför Herdísar
fór fram í kyrrþey
að ósk hinnar
látnu.
gerðina á Ísafirði
og fékk trékassa,
sem síðan var
klæddur og bólstr-
aður að innan og
utan og svaf hún
litla Heddý í hon-
um.
Þegar Heddý var
10 ára gömul skrif-
aði hún mér bréf til
Noregs þar sem ég
bjó á þeim tíma.
Þetta bréf geymdi ég sem gull í
um 56 ár, Herdís kunni vel að
meta það þegar ég sýndi henni
bréfið þessum 56 árum seinna.
Vildi hún ólm halda því sem ég
leyfði henni með góðu, enda
grunaði mig að hana langaði að
sýna það börnunum og barna-
börnunum sínum sem hún elsk-
aði og unni svo mikið.
Ég sendi einlægar samúðar-
kveðjur til Toffa og fjölskyldu
Herdísar.
Megir þú hvíla í friði, Herdís
mín, og blessuð sé minning þín.
Þín frænka,
Unnur Guðmundsdóttir.
✝ Kristján Þor-geir Magnússon
fæddist í Banda-
ríkjunum 12. júní
1953. Hann lést þar
26. nóvember 2015.
Foreldrar hans
voru Magnús Blön-
dal Jóhannsson tón-
skáld, d. 2005, og
Bryndís Sigurjóns-
dóttir BA, d. 1962.
Bræður hans eru
Jóhann Magnús og Marinó Már.
Móðir þess síðarnefnda er Krist-
ín Sveinbjörnsdóttir.
Þorgeir, eins og hann var
kallaður, ólst upp og bjó á Ís-
landi. Hann var í Mennta-
lands. Auk flugmenntunarinnar
tók Þorgeir BA-próf í sálarfræði
frá Háskóla Íslands og próf í
alþjóðlegri mannauðsstjórnun
frá University of California –
Riverside.
Þorgeir eignaðist þrjú börn.
Sonur hans og Eddu Andrés-
dóttur er Jóhann Svavar, f.
1974. Sambýliskona hans er
Guðrún Halldórsdóttir. Sonur
þeirra er Mikael Kári. Sonur
Guðrúnar og stjúpsonur Jó-
hanns er Viktor Orri Jakobsson.
Synir Jóhanns Svavars og Sæ-
unnar Klöru Breiðfjörð eru
Magnús Blöndal og Andrés Þór.
Börn Þorgeirs og Mörtu Bryn-
dísar Marteinsdóttur, sem er
látin, eru Davíð Blöndal, f. 1988,
sambýliskona hans er Guðrún
Ólafsdóttir, og Kristín Diljá, f.
1991.
Útför Þorgeirs fer fram frá
Dómkirkjunni í dag, 15. desem-
ber 2015, klukkan 15.
skólanum við
Tjörnina og
Menntaskólanum
við Hamrahlíð en
fór fljótt að læra
flug og kenndi það
þegar hann var
ráðinn flugmaður
hjá Flugfélagi Ís-
lands 1977 og starf-
aði síðan sem flug-
maður og flugstjóri
hjá Flugleiðum,
seinna Icelandair. Á níunda ára-
tug síðustu aldar kenndi hann
hjá Flugleiðum og Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja og frá 1999 til
2008 kenndi hann lífeðlis- og
sálarfræði við Flugskóla Ís-
Pabbi minn, það er svo frá-
leitt að ég sé að skrifa þessa
minningargrein hér og nú. Það
er aðeins rétt meira en vika síð-
an við borðuðum okkar síðasta
„lunch“ hérna heima en jafnt
okkar fyrsta „lunch“ saman
hérna heima þar sem við vorum
aðeins búin að búa saman í þrjá
mánuði. Tvo af þeim varstu úti í
verkefni en við erum sko búin
að fá okkar ferðir út í heim
saman og virkilega góðar sam-
ræður, jafnt sem rökræður,
hvort sem það var í Kóngsins
Köben eða á Jómfrúnni í
101…eins lengi og það hafði
upp á að bjóða gott rauðvín og
ekki var verra ef boðið var upp
á góða steik. Þó að árin sem við
höfum fengið saman hafi
kannski verið hálf mín ævi þá
eru þau virkilega dýrmæt og
aldrei hefði mig grunað að minn
eigin faðir gæti líka verið minn
besti vinur, enda var eins og ég
væri stundum að líta í spegil
þegar þú sagðir eitthvað sem ég
var innst inni sammála en lét
eins og ég væri það ekki. Eftir
að mamma dó þá sá ég hversu
lík henni ég er, en eftir hvert
samtal sem innihélt rökræður
við þig þá sá ég hversu mikið
þið bæði eigið í mér. Ég mun
alltaf meta það, að vissu leyti,
að vera kvenkyns útgáfan af
þér af því það er það sem mér
finnst hafa komið mér í gegnum
allt það svarta í lífinu, enda
mun ég nýta þá eiginlega líka í
þessu áfalli. Allar okkar ferðir,
hvort sem það var um Ísland
eða utan þess, eru ógleyman-
legar. Ég gæti skrifað enda-
laust um hversu erfitt það er að
missa þig en það er nógu erfitt
að enda þessa grein því það er
viss partur af mér sem líður
eins og þetta sé eina tækifæri
mitt til að segja síðustu orð mín
til þín, sem það er ekki. Þetta
eru aðeins rituð orð í blaði sem
almenningur les. Síðustu orð
mín til þín og mömmu eru og
verða alltaf þau sem ég fer með
rétt áður en ég sofna á kvöldin.
Ég mun aldrei slíta okkar
samning, við getum aðeins
stjórnað því hversu hátt eða
lágt við stefnum í lífinu og það
er eins gott að það sé fjandi
hátt.
Þitt örverpi,
Kristín Diljá Þorgeirsdóttir.
Elsku pabbi. Ég man þegar
þú sendir mig fyrst í strætó frá
Garðabænum í Laugarnesskól-
ann. Ég var á mínum fyrstu ár-
um í barnaskóla og þurfti að
taka tvo strætisvagna. Já,
skiptimiða og allt. Þetta fannst
mér rosalegt en þú sagðir mér
að þetta væri ekkert mál og þú
færir með mér í fyrstu ferðina
og við létum reyna á þetta.
Daginn eftir fór ég einn út á
stoppistöð og gerði þetta allt
hárrétt. Mér óx ferðalagið í
augum og hafði ekki hugmynd
um að þú hafðir lætt þér inn í
vagninn án þess að ég sæi til að
fylgjast með. Mikið var ég stolt-
ur af mér að hafa tekist þetta
vandræðalaust. Þetta var nokk-
uð dæmigert fyrir þig; láta mig
redda mér, en fylgjast með að
það gengi upp.
Oft þegar ég spurði þig um
álit á hinu og þessu eða bað um
svör við einhverju sem ég var
að velta fyrir mér svaraðir þú á
frábæran hátt. Þú spurðir mig
hvað ég héldi að væri rétt eða
hvað mér fyndist. Fékkst mig
til að átta mig á hlutunum sjálf-
ur. Auðvitað komstu með svarið
ef ég var alveg tómur. En þetta
þjálfaði mig.
Ef ég fór yfir strikið, eins og
ærslafullum drengjum er lagið,
sendir þú tiltekið augnaráð sem
sagði meira en öll orð. Það var
yfirvegað og ákveðið og þýddi:
„Svona hegðar maður sér ekki.“
Þú vildir okkur börnum þín-
um allt það besta og hafðir mik-
inn metnað fyrir okkar hönd.
Þar að auki varstu eins og besti
vinur og félagi. Mér eru ferð-
irnar okkar utanlands sem inn-
an mjög minnisstæðar, t.d. á
Range Rovernum og Patroln-
um. Þetta voru frábærar ferðir.
Þú varst góður ferðafélagi og
alltaf með hlutina á hreinu. Það
var einhvern veginn svoleiðis að
þegar þú varst við stjórnvölinn
treysti maður því að hlutirnir
gengju upp.
Einhver skemmtilegasta
ferðin sem við fórum í var sum-
arið sem við leigðum seglskút-
una í Tyrklandi eftir að þú
hafðir tekið siglingaréttindi árið
áður. Við sigldum í tæpar tvær
vikur meðfram suðurströnd
Tyrklands. Við vorum tveir á
skútunni þar sem mælt var með
sex manna áhöfn. En við vorum
öruggir og unnum saman eins
og við hefðum gert þetta í 30
ár. Einn eftirminnilegasti
dagurinn var þegar við sigldum
langt út á Miðjarðarhafið í vit-
lausu veðri og öldugangi. Eini
báturinn á hafi. En öruggir.
Það var þannig að þegar við
ferðuðumst saman varst þú oft-
ast við stjórnvölinn, að minnsta
kosti framan af. Svo deildum
við því þegar á leið. En undir
lok nóvember þegar ég fékk
símtalið frá Orlando um að þú
værir farinn var komið að mér
að taka við stjórninni og flytja
þig heim eins og þú hafðir oft-
ast gert fyrir mig áður. En ég
veit að við eigum eftir að
ferðast saman á öðrum stað.
Þinn sonur og vinur,
Jóhann (Jói).
Elsku Þorgeir minn, mig
langar til að kveðja þig með ör-
fáum orðum þrátt fyrir það
hversu hræðilega ósanngjarnt
það er að kveðja þig svona
snemma.
Vinátta okkar byrjaði fyrir
sjö árum er við Jóhann, sonur
þinn, hófum samband. Strax frá
fyrstu stundu náðum við vel
saman og gátum talað um allt
milli himins og jarðar. Fróðari
mann var vart að finna og hafði
ég mjög gaman af öllum okkar
samtölum og samverustundum.
Þú hafðir sterkar skoðanir á
hlutunum og oft enduðu samtöl
okkar í hláturskasti því hvorugt
okkar gaf sig. Húmor þinn var
lúmskur og beinharður. Þú
varst stór hluti af okkar fjöl-
skyldu og fagnaðir jólum, ára-
mótum og afmælum með okkur
og strákunum hvert ár. Fyrir
mér var jólaundirbúningurinn
ekki byrjaður fyrr en ég heyrði
í þér. Þá hringdir þú í mig til að
skipuleggja jólamatinn með mér
hvort sem þú varst staddur hér
á landi eða í Afríku. Við vorum
góð í að skipuleggja veislur
saman og héldum þær nokkrar
og þær fara seint úr minni
mínu. Mestu og stærstu sam-
skiptin okkar voru árið sem þú
keyptir húsið þitt í Garða-
bænum. Þá sýndir þú mér eitt
mesta traust sem nokkur hefur
sýnt mér. Þú réðst mig sem
hönnuð á húsinu á meðan þú
varst við störf erlendis. Við hóf-
umst handa og rifum allt út úr
húsinu og breyttum því algjör-
lega. Millilandasímtölin voru
ansi rífleg það árið. En við unn-
um stórkostlega vel saman og
allt gekk eins og í sögu. Enda
fögnuðum við vel í sextugsaf-
mælinu þínu fyrir tveimur árum
þegar húsið var tilbúið. Ferða-
lögin eru mér líka ofarlega í
huga. Þú varst flugstjóri hjá
Icelandair og hafðir ferðast út
um allan heim en leyfðir okkur
fjölskyldu þinni einnig að njóta
þeirra fríðinda að ferðast með
þér. Sýna okkur það helsta í
flottustu borgum heims, njóta
góðrar steikar og velja rétt
rauðvín með steikinni. Þú varst
skemmtilegur ferðafélagi og
vissir ansi mikið um sögu Evr-
ópu og menningu. Það er tví-
mælalaust gott að geta hugsað
um góðar minningar á svona
stundu og minningarnar eru
eitthvað sem aldrei verður tekið
frá okkur sem eftir erum. Minn-
ing um góðan mann lifir, mann
sem hugsaði vel um fólkið sitt,
var séntilmaður á allan máta og
ákaflega góður félagsskapur
sem gaman var að vera í kring-
um.
Elsku Þorgeir, ég veit að þú
ert á góðum stað með foreldr-
um þínum. Ég á eftir að sakna
þín alveg svakalega mikið. Takk
fyrir vinskap okkar og tímann
sem við fengum saman, ég vildi
óska að hann hefði verið lengri.
Þinn vinur og tengdadóttir,
Guðrún J. Halldórsdóttir.
Elsku afi. Þú kemur víst ekki
að ná í okkur í flugvélinni þinni
í sumar eins og þú gerðir alltaf.
Það var alltaf rosalega gaman
þegar þú komst að ná í okkur.
Við fengum að sitja með þér í
flugstjóraklefanum og fylgjast
með þér fljúga. Þú kenndir okk-
ur hvað allir þessir takkar gera
og við fengum að panta okkur
allt sem við vildum. Það var svo
kúl. Þú varst svo kúl. Flottasti
afi sem nokkur getur eignast.
Takk fyrir allt sem þú gerðir
fyrir okkur, allar skemmtilegu
stundirnar og allar flottu gjaf-
irnar sem við eigum eftir að
sakna að fá frá þér.
Við eigum eftir að sakna þín
mikið og hugsa til þín. Vonandi
eru fjöll og flugvélar þar sem
þú ert núna, svo þér leiðist
ekki.
Góða ferð, elsku afi okkar.
Magnús og Andrés.
Eftir góða vinnutörn um víða
veröld ákveða þrír félagar að
fara í nokkurra daga frí burtu
frá vetrinum á Íslandi í sólina á
Flórída áður en tekið er á að-
ventu jólanna. Góðir dagar líða
fljótt, það er hlegið, sagðar sög-
ur, tekið á fortíð og framtíð,
alltaf gaman. Góðar steikur,
gott vín og góð tónlist alltaf
bætist í sögurnar og félags-
skapinn. Menn fjárfesta meira
að segja í gúmmístígvélum til
að eiga í jeppanum sínum í úti-
legum næsta sumars. Skyndi-
lega er öllu lokið, einn af okkur
kemur ekki með heim til Ís-
lands, margar spurningar
vakna, þetta stóð aldrei til, en
eftir stendur minning um góðan
og skemmtilegan dreng, og þá
góðu daga sem við áttum saman
í Flórída áður en áfallið dundi
yfir.
Ég vil þakka Kristjáni Þor-
geiri Magnússyni fyrir þær
samverustundir sem við höfum
átt á undanförnum árum. Börn-
um hans sendi ég innilegar
samúðarkveðjur og óska þeim
alls hins besta á erfiðum tímum.
Einar Örn Jónsson.
Fæddur og látinn er í Banda-
ríkjunum Kristján Þorgeir
Magnússon, samstarfsfélagi og
stórvinur minn.
Þorgeir var heimilisvinur á
okkar heimili og er hans sárt
saknað af bæði Írisi eiginkonu
minni og sonunum fjórum.
Hann var alltaf aufúsugestur og
urðu fjölmargir vinir mínir og
ættingjar vinir hans, við hans
skemmtilegu kynni enda höfð-
ingi heim að sækja og hitta.
Þorgeir var afar listelskur
maður, eins og hann átti kyn til,
faðir hans tónskáld og móðir
hans leikkona. Fátt þótti honum
skemmtilegra en sækja tónleika
sinfóníunnar enda alinn að
mörgu leyti upp innan veggja
Þjóðleikhússins þar sem faðir
hans var hljómsveitarstjóri á
æskuárum hans. Klassíkin var
hans aðal og oft reyndi ég að
gera hann að djassgeggjara,
það tókst ekki. Mér tókst þó á
allmörgum árum að kenna hon-
um að meta djassinn en hann
varð að vera framúrstefnulegur.
Leikhúsferðirnar hans voru
margar á hverjum vetri og oft-
ast reyndi hann að komast yfir
bækur til að lesa sér til um
verkin sem hann kaus að sjá.
Slíkur var lista- og bókmennta-
áhuginn.
Íslenska hálendið var honum
afar kært og í hálendisferðum
var hann í essinu sínu.
Þorgeir var farinn að hlakka
til starfsloka en þá ætlaði hann
að leggja land undir fót og
njóta efri áranna á ferðalögum
innanlands sem utan en ferðin
síðasta kom of fljótt.
Um leið og ég kveð minn
trausta og góða vin vil ég votta
fjölskyldu Þorgeirs alla mína
samúð, frá mínum dýpstu
hjartarótum.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Þorsteinn Kristmannsson.
Enginn veit sína ævina fyrr
en öll er. Fyrr en varir er ein-
hverju okkar kippt út úr leikn-
um, algerlega að óvörum. Þá er
maður minntur á hverfulleika
lífsins og mikilvægi þess að lifa
hvern dag eins og hann sé
manns síðasti.
Kær vinur og vinnufélagi er
fallinn frá, fyrirvaralaust. Krist-
ján Þorgeir Magnússon, eða
Toggi eins og hann var kall-
aður, var kominn á þann stað í
lífinu að hann sá fram á starfs-
lok innan fárra ára og þá ætlaði
hann að sötra sitt rauðvín, lesa
fagurbókmenntirnar, sem hann
hafði ekki þá þegar komist yfir
að lesa, og kaupa sér Benz, ráða
jafnvel bílstjóra með. Hann ætl-
aði svo sannarlega að njóta lífs-
ins og hlakkaði til.
Toggi fékk alveg að finna
fyrir lífinu. Honum var ekki út-
hlutað auðveldustu sporunum í
bernsku og sú reynsla markaði
allt hans lífshlaup. Hann ein-
setti sér því að ná því besta út
úr lífinu, fara ekki fleiri grýttar
brautir, njóta heldur líðandi
stundar.
Toggi hafði sínar skoðanir,
bæði á mönnum og málefnum,
og fór ekkert leynt með þær.
Sagði þær oft umbúðalaust.
Þess vegna var hann ekki allra,
eins og menn segja. En hver er
allra í meiningunni að öllum líki
við mann? Enginn.
Hann kom til dyranna eins
og hann var klæddur, kunni
ekki að þykjast. Brosið hans
var líka einlægt og fölskvalaust.
Toggi fékk fljótlega viður-
nefnið „í tauinu“. Honum var
umhugað um útlit sitt og sagan
segir að eitt árið á Fokkernum,
þegar honum þótti vetrartrefill-
inn sem fylgdi uniforminu ekki
nógu „lekker“, keypti hann sér
annan úr silki í staðinn.
Við Toggi urðum vinir 1979
þegar hann bauð mér í lautar-
ferð í Öskjuhlíð einn sólríkan
laugardag. Þá voru engar brott-
farir innanlands milli 14 og 17
og hann notaði tækifærið, náði í
kaffi á brúsa og kökur í box á
innanlandsteríunni, teppi úr
skýlinu og fékk frí fyrir mig úr
inntékkinu sem ekkert var á
þessum tíma. Við sátum flötum
beinum í uniforminu okkar í tvo
tíma og skröfuðum um heima
og geima.
Aldrei fyrr né síðar hefur
mér verið boðið í lautarferð.
Leiðir okkar áttu svo eftir að
liggja saman í millilandafluginu,
við uppgötvuðum nýja heima í
Afríku og á Maldíveyjum, fór-
um saman í verkefni og tókum
fjölskyldumeðlimi með. Drösl-
uðumst hálfan hnöttinn með
trégíraffa í handfarangri og
kepptum innbyrðis í Airport-fit-
ness, hvort væri stórstígara og
næði fyrr á brottfararhliðin.
Þess á milli veltum við fyrir
okkur tilgangi lífsins og hvernig
bjarga mætti heiminum og gera
hann betri.
Nú verður koníaksstofan
þéttsetin á himnum og plönum
okkar um hvernig bæta megi
heiminn eflaust kollvarpað.
Fínasta rauðvínsflaskan
hefur þegar verið opnuð.
Blessuð sé minning góðs
drengs.
Sigurlaug Halldórsdóttir
(Dillý).
Kristján Þorgeir
Magnússon
HINSTA KVEÐJA
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Elsku afi Þorgeir, við
söknum þín mjög mikið og
vildum að þú værir enn hjá
okkur. Þú hefur verið svo
góður afi og vinur okkar.
Viktor Orri og Mikael Kári.
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann